Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 64
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Skyldu það vera
margar þjóðir sem
eiga annan eins gull-
mola og Rás 1 eða
gömlu gufuna sem
sumir kalla? Það er
mikið vafamál. Hinir
gömlu góðu útvarps-
menn gerðu þar
garðinn frægan:
Helgi Hjörvar, Jón Múli, Pétur
Pétursson, Svavar Gests, Stefán
Jónsson og Jónas Jónasson svo
örfáir séu nefndir. Allir farnir
heim. En raddir þeirra og mál-
flutningur er varðveittur í svoköll-
uðu segulbandasafni útvarpsins.
Og aðrir hafa tekið upp merkið og
gert það vel að ýmsu leyti.
En nú ber svo við allt í einu að
það er skollið á stríð. Einhvers
konar biblíustríð hér uppi á land-
inu milli strákanna í Efstaleiti á
gömlu gufunni og margra hlust-
enda. Almenningur skilur nátt-
úrlega ekki það stríð frekar en
flest önnur. Upp er komin sú
staða að forsvarsmennirnir ku
vera hættir við að hætta að fara
með gott í Efstaleiti á morgnana.
Það er ágætt. Hvað sem verður
svo með síðkvöldin. Að fara með
gott ætti að vera fremst á dagskrá
Rásar 1 ef eitthvað er. „Það sem
þér viljið að aðrir menn gjöri yð-
ur, það skuluð þér og þeim gjöra.“
Má ekki slíkur boðskapur hljóma
á öldum ljósvakans kvölds og
morgna? Eða sagan af miskunn-
sama Samverjanum? Ef við hætt-
um að hafa slíkt um hönd getum
við bara lagt okkur.
Þess er að minnast að þetta er
ekki fyrsta biblíustríðið okkar. Á
sínum tíma notaði Vestfirðing-
urinn Eiríkur skipherra Krist-
ófersson tilvitnanir úr Biblíunni á
Tjallana í fyrsta þorskastríðinu.
Og vann það stríð sem frægt var.
Eiríkur skipherra vissi hvað hann
söng. Bresku aðmírálarnir sendu
gjarnan klausur úr Biblíunni í nið-
urlagi skýrslna sinna til flota-
málaráðuneytisins í Lundúnum. Í
upphafi fyrsta þorskastríðsins
sendi Barry Anderson flotaforingi
eftirfarandi ritningargrein úr
orðskviðum Salómons til yf-
irmanna sinna í White Hall: „Þeg-
ar óguðlegum fjölgar fjölgar og
misgjörðum en réttlátir munu
horfa á fall þeirra.“
Eiríkur náði þessu í talstöðinni
á Þór. Með aðstoð Stefáns Jóns-
sonar fréttamanns, sem staddur
var um borð, sendi hann Anderson
eftirfarandi úr þeim sömu Orðs-
kviðum: „Því að til einskis þenja
menn út netið í augsýn allra
fleygra fugla, og slíkir menn sitja
um sitt eigið líf, liggja í launsátri
fyrir sjálfum sér. Þannig fer fyrir
öllum þeim sem fíknir eru í rang-
fenginn gróða: Fíknin verður þeim
að fjörlesti.“ Um þetta allt geta
menn lesið í bók Gylfa Gröndal,
Eldhress í heila öld.
Í miðju biblíustríði dagsins
heyrist svo ramakvein úr Efsta-
leiti. Segulbandasafn þjóðarinnar
er í stórhættu. Það liggur undir
skemmdum og mun eyðileggjast
meira og minna ef ekkert er að
gert. Svo segir sjónvarpið okkar
og Mogginn. Ekki lýgur hann!
Mogginn hefur eftir þeim góða
manni sem sér um segulbanda-
safnið að hann sé með fjall fyrir
framan sig af spólum, plötum,
kassettum og diskum. Og tvær te-
skeiðar í höndunum! Hann er að
reyna að bjarga menning-
arverðmætum þjóðarinnar sem
annars verða meira og minna
ónýt. Það væri eftir okkur að láta
slíkt gerast. Og kasta svo pen-
ingum villivekk í alls konar rugl
úr landsins kassa. Er ekki séns að
láta eitthvað af þessum strákum
og stelpum þarna í Efstaleitinu í
það djobb að hjálpa til við að
bjarga safninu mikla? Og hvað
með sjálfboðaliða sem kunna til
þessara verka? Gamla útvarps-
jálka og -konur sem hafa kannski
ekkert annað þarfara að gera en
vildu gjarnan leggja hönd á plóg!
Nánast á hverjum dagi er geng-
ið í gullasafnið eins og Gunnar
Stefánsson hefur kallað seg-
ulbandasafnið. Þar kennir margra
grasa sem holl eru fyrir alla. Ný-
lega heyrðum við rödd Ragnars í
Smára. Hvað sagði Ragnar? Jú,
hann sagði að ríkisstjórnin ætti að
hætta erlendum lántökum og taka
þess í stað lán hjá almenningi í
landinu. Þetta sígilda hollráð
Ragnars var að vísu borið fram
upphaflega fyrir hálfri öld, þegar
átökin stóðu um Búrfellsvirkjun.
Hvað skyldi Ragnar hafa ráðlagt í
dag?
Segulbandasafnið er skóli alþýð-
unnar. Lífsins skóli að mörgu
leyti. Það má bara ekki koðna nið-
ur. Það væri algjört þjóðarslys.
Þar eru slík dýrmæti samankomin
að taka ætti sem skyldugreinar í
háskólum landsins. Þar er af nógu
að taka. Unga fólkið hefði svo
sannarlega gott af því að hlusta
markvisst á gengnar kynslóðir og
læra af því. Þar er lífsviska ís-
lensku þjóðarinnar í hnotskurn og
mætti meta til eininga eins og
kallast í dag. Láta svo háskóla-
borgarana hreinlega taka próf í
slíkum vísindum. Það gæti verið
liður í því að þjóðin finni sjálfa sig
aftur.
Er ekki í lagi með ykkur
þarna í Efstaleitinu?
Eftir Hallgrím
Sveinsson og
Bjarna Georg
Einarsson
Hallgrímur Sveinsson
» Í miðju biblíustríði
dagsins heyrist svo
ramakvein úr Efstaleiti:
Segulbandasafn þjóð-
arinnar er í stórhættu.
Það liggur undir
skemmdum að hluta til.
Hallgrímur er bókaútgefandi og
léttadrengur á Brekku í Dýrafirði
en Bjarni er fyrrverandi útgerðar-
stjóri og núverandi ellilífeyrisþegi.
Bjarni Georg Einarsson
Traust og góð þjónusta Í 18 ÁR
Umgjarðir
í miklu úrvali
Er ekki
kominn t
ími á
sjónmæl
ingu
Eigum 18 ára afmæli
FRÁBÆR TILBOÐ Í GANGI!
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200
OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18
3 - IN - 1
MICELLAR
WATER
0%PARABENLITAREFNIILMEFNI
HREINSAR
FJARLÆGIR FARÐA
VEITIR RAKA
ALLT MEÐ 1 HREINSIVÖRU
NIVEA SENSITIVE
FYRIR VIÐKVÆMA HÚÐ: