Morgunblaðið - 28.08.2014, Síða 66
66 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Á www.xg.is, þar
sem stefnuskrá Hægri
grænna er að finna og
birt var fyrir síðustu
kosningar, kemur ef-
irfarandi fram, en
þetta á enn við:
(Grein eftir Bjarna
Má Gylfason sem er
hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins síðan 2005.
Kenndi áður hagfræði
við Verzlunarskóla Ís-
lands 2000-2005 og var blaðamað-
ur á Viðskiptablaðinu frá árinu
1998.)
„Stjórnvöld í Danmörku hafa
ákveðið að leggja af umdeildan
fituskatt sem lagður var á fyrir
rúmu ári. Markmið með skattinum
var að hafa áhrif á neyslu fólks og
vinna gegn vaxandi offitu. Enn-
fremur hafa hugmyndir um nýjan
sykurskatt þar í landi verið lagðar
til hliðar. Helsta ástæðan fyrir
þessu er að ekki tókst að stýra
neyslunni með þeim hætti sem til
stóð auk þess sem skattlagningin
var flókin og kostnaðarsöm, bæði
fyrir skattayfirvöld og greiðendur
skattsins. Um þessar mundir und-
irbúa íslensk stjórnvöld stóraukna
skattlagningu á matvæli undir því
yfirskini að ráðast gegn offitu-
vandanum og bæta lýðheilsu.
Þetta á að gera með því að skatt-
leggja sykraðar matvörur um 800
m.kr. til viðbótar við 2.200 millj-
ónir sem þegar eru lagðar á mat-
væli, einkum drykkjarvörur og
sælgæti. Langstærsti hluti þess-
arar skattlagningar mun beinast
að innlendri framleiðslu en minni-
hluti að innfluttum vörum. Þol-
endur aukinnar skattlagningar eru
því helst innlendir framleiðendur
og auðvitað íslenskir neytendur.
Hér er um að ræða ríflega 35%
hækkun á skattlagningu.
Engin ástæða er til að ætla að
sértækir skattar á matvæli geti
stjórnað neyslu hér
frekar en í Dan-
mörku. Full ástæða
er hins vegar til að
ætla að skaðsemi og
vandamál við slíka
skattlagningu séu
sambærileg. Þetta
leiðir hugann að því
hvert sé raunveru-
legt markmið ís-
lenskra stjórnvalda.
Ef bætt lýðheilsa er
raunverulegt mark-
mið mæla sérfræð-
ingar WHO einkum
með því að unnið sé að því að
draga úr salti, transfitu og mett-
aðri fitu í matvælum. Í nágranna-
löndum okkar er helst rætt um
mikilvægi víðtækrar samvinnu
matvælaframleiðenda og stjórn-
valda við að ná tökum á vandanum
og stuðla að heilbrigðu mataræði.
Aðeins á Íslandi er nú rætt um
sykurskatta í þessu samhengi. Ef
hins vegar hærri tekjur ríkissjóðs
eru markmið stjórnvalda munu
skattasérfræðingar örugglega ekki
mæla með að nota úrelt og kostn-
aðarsamt vörugjaldskerfi í þeim
tilgangi. Virðisaukaskattur er eina
skilvirka tækið til að skattleggja
matvæli. Vandi stjórnmálamanna
er auðvitað að almenningur skilur
vel hvernig það kerfi virkar og (á
kosningavetri) litlar líkur eru á að
hróflað verði við því kerfi þótt það
væri hagkvæmara og skilvirkara.
Ekki skal gera lítið úr vanda-
málum tengdum offitu. Full
ástæða er til að vinna að bættu
mataræði og lýðheilsu og íslenskir
matvælaframleiðendur hafa þróað
vöruframboð sitt mikið síðustu ár
með það fyrir augum að draga úr
salti, sykri og óhollri fitu. Raunar
hefur sykurneysla landsmanna
dregist jafnt og þétt saman síð-
ustu áratugi á sama tíma og lík-
amsþyngd hefur aukist. Skýringin
á því liggur í öðru en sykurneyslu.
Sértækir skattar á sykraðar vörur
munu ekki draga úr offitu hér á
landi frekar en annars staðar.“
Heimild: Mbl.is.
Skoðun Viðskiptaráðs: Neyslu-
skattar komnir á síðasta söludag
„Fjölmargar breytingar á skatt-
kerfinu hafa átt sér stað á und-
anförnum árum og frekari tekju-
öflun er áætluð í fjárlögum næsta
árs. Á meðan deilt hefur verið um
hagkvæmni þeirra standa óskil-
virkustu hlutar kerfisins nær
óhreyfðir. Tollar og vörugjöld eru
margfalt hærri en í nágrannalönd-
unum, virðisaukaskattur hérlendis
mismunar atvinnugreinum og
neysluskattar í heild eru óskilvirk-
ir á alþjóðlegan mælikvarða.
Einn stærsti dragbítur hag-
vaxtar hérlendis er skortur á opn-
anleika hagkerfisins, sem dregur
úr alþjóðaviðskiptum og hindrar
aukna samkeppni á innlendum
mörkuðum, eins og bent var á í
skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins
McKinsey. Háir tollar, vörugjöld
og almennt þrep virðisaukaskatts
vega þungt í því samhengi. Enn-
fremur er beinn kostnaður neyt-
enda í formi velferðartaps veru-
legur við núverandi fyrirkomulag.
Endurskoða þarf neysluskatta
hérlendis til að opna hagkerfið og
draga úr velferðartapi ríkjandi
fyrirkomulags. Leggja þarf niður
tolla og vörugjöld, breikka skatt-
stofn virðisaukaskatts með afnámi
undanþágna og sameiningu skatt-
þrepa og lækka samhliða því al-
menna hlutfallið. Slíkar umbætur
myndu auka alþjóðaviðskipti, bæta
samkeppnisstöðu fyrirtækja og
vænka kjör neytenda án skerð-
ingar á skatttekjum hins op-
inbera.“
Í skoðuninni kemur eftirfarandi
fram:
Hægt er að afnema tolla og
vörugjöld, afnema undanþágur frá
virðisaukaskatti og lækka almenna
hlutfallið í 20% án tekjuskerðingar
fyrir ríkissjóð.
Tollar hérlendis eru um þrefalt
hærri en í nágrannaríkjum, mis-
muna í tvöfalt meiri mæli og fram-
kvæmd þeirra er óskilvirkari.
Háar álögur tolla og vörugjalda
hérlendis orsaka umtalsvert vel-
ferðartap, sem gerir hreina skatt-
heimtu þeirra neikvæða í sumum
vöruflokkum.
Í tilfelli heimilis- og raftækja
nema skatttekjur tolla og vöru-
gjalda 5 ma. kr. en velferðartap af
völdum álagningarinnar nemur 11
ma. kr. Gjöldin eyðileggja því
meiri verðmæti en þau afla.
Ísland er 15% undir meðaltali
OECD-ríkjanna þegar kemur að
skilvirkni virðisaukaskatts.
Um þriðjungur einkaneyslu hér-
lendis er annaðhvort í lægra
skattþrepi eða undanþeginn
virðisaukaskatti með öllu, sem
dregur úr skilvirkni skattsins.
Útilokað að
draga úr offitu
með sköttum
Eftir Kjartan Örn
Kjartansson
»Einn stærsti drag-
bítur hagvaxtar er
skortur á opnanleika
hagkerfisins og endur-
skoða þarf alla neyslu-
skatta, þ.m.t. tolla, til
þess m.a. að það sé
unnt.
Kjartan Örn
Kjartansson
Höfundur er fyrrv. forstjóri og vara-
formaður Hægri grænna, flokks
fólksins og endurreisnar.
Unnt er að afnema tolla og vörugjöld, leggja af þrepaskiptingu virðis-
aukaskatts og lækka skattahlutfallið án samdráttar í tekjum ríkissjóðs
Heimild: Sótt af xg.is / Fjárlög; Tollstjóri; skýrsla fjármálaráðherra á Alþingi um einfaldara skattkerfi; Viðskiptaráð Íslands
ma. kr.
280
260
240
220
200
180
Neyslu-
skattar
í dag
Afnám
tolla
Afnám
vöru-
gjalda
Afnám
undan-
þága frá
VSK
Sameining
VSK
þrepa
Lækkun
VSK í
20,0%
Neyslu-
skattar eftir
breytingar
218 -6
-12
+48
+15 -44
218
VEISLUSALIR
SÉRBLAÐ
Í blaðinu geta
lesendur fundið sér
veislusal, veitingar,
borðbúnað og
blómaskreytingar
fyrir öll tilefni og
tækifæri.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út sérblað um
veislusali föstudaginn 12. september.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 8. sept.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda. Morg-
unblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar
smellt er á lógóið birtist felli-
gluggi þar sem liðurinn „Senda
inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerfið.
Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.
Aukablað
um bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga