Morgunblaðið - 28.08.2014, Side 68
68 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
HÁDEGISMATUR
Í FYRIRTÆKI OG
STOFNANIR
VINSÆLT - HEILSUBAKKAR
Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Við sendum
hádegismat í bökkum
og kantínum til fyrirtækja
og stofnana alla daga ársins!
Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum:
Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka.
Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags.
Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is
Fjölbreyttur matseðill
og valréttir alla daga
SKÚTAN
Aldraðir og ör-
yrkjar fengu 3,6%
hækkun á lífeyri sín-
um frá almannatrygg-
ingum sl. áramót.
Þetta var minna en
nam aukningu verð-
bólgunnar og minna
en hækkun lægstu
launa en þau hækkuðu
um 5%. Vísitala
neysluverðs hækkaði
um 4,2% árið 2013.
Samkvæmt lögum á lífeyrir aldr-
aðra og öryrkja aldrei að hækka
minnna en nemur hækkun neyslu-
vísitölunnar og hækkun lífeyris á
ennfremur að taka mið af hækkun
launa. Eftir þessum ákvæðum var
ekki farið um áramótin. Það var
klipið af réttmætum hækkunum
aldraðra og öryrkja. Það er eins og
stjórnvöld geti aldrei unnt lífeyris-
þegum þess að fá réttmætar kjara-
bætur. Markmið stjórnvalda virðist
ávallt vera það að halda kjörum
aldraðra og öryrkja niðri.
Talsvert launaskrið,
þó ekki hjá öldruðum!
Talsvert launaskrið hefur orðið
frá gerð síðustu kjarasamninga. Í
rauninni er alltaf í gangi nokkurt
launaskrið. Meðaltal heildarlauna
hækkaði t.d. um rúmlega 6% 2012-
2013. Einnig voru gerðir ýmsir nýir
kjarasamningar eftir að ASÍ og SA
sömdu um 2,8% launahækkun.
Sumir þessara samninga gengu
mun lengra en samningur ASÍ og
SA. Grunnskólakennarar sömdu
t.d. til langs tíma um 20–30% kaup-
hækkun. Sú hækkun var m.a. miðuð
við það, að kennarar seldu kennslu-
afslátt, sem þeir áttu rétt á. Ýmsir
aðrir sérsamningar gengu miklu
lengra í kjarabótum en samningar
ASÍ. Tekjublað Frjálsar verslunar
upplýsti nýlega, að stjórnendur fyr-
irtækja hefðu tekið sér óeðlilega
miklar launahækkanir, forstjórar
13% hækkun og næstráðendur
hvorki meira né minna en 40%
hækkun. Laun næstráðenda hækk-
uðu um 600 þús. kr.
milli ára. Með þessu
háttalagi gaf atvinnu-
lífið verkafólki langt
nef. Samtök atvinnu-
lífsins sögðu, að ekki
mætti hækka laun
verkafólks og al-
mennra launamanna
um meira en 2,8% en
forstjórar fyrirtækja
atvinnulífsins tóku sér
13% kauphækkun og
aðstoðarforstjórar
tóku sér 40% kaup-
hækkun!
Laun verkafólks hækka – laun
aldraðra ekki!
Lífeyrir aldraðra og öryrkja er
ígildi launa. Þetta eru nokkurs
konar laun lífeyrisþega. En það er
munur á launum launþega og laun-
um lífeyrisþega. Það er ekkert
launaskrið hjá öldruðum og ör-
yrkjum. Á sama tíma og kaup
launafólks í landinu skríður fram
og hækkar umfram samninga og
sumir fá óheyrilegar hækkanir er
lífeyririnn bundinn og hækkar
ekkert. Ákvæðið um að lífeyrir eigi
að fylgja launum og verðlagi virkar
ekki nema að hluta til. Það eru því
miður mörg dæmi um það, að líf-
eyrir sé frystur, þegar laun hækka.
Þannig var það á krepputímanum.
Þá hækkuðu lægstu laun talsvert
en lífeyrir aldraðra og öryrkja
hækkaði ekkert. Þetta er það sem
kallað hefur verið kjaragliðnun og
hún var mikil á krepputímanum.
Til þess að leiðrétta þessa kjaragl-
iðnun þarf að hækka lífeyri um
a.m.k. 20%. Það mundi þýða rúm-
lega 40 þús. kr. hækkun á mánuði
hjá einhleypum ellilífeyrisþega,
sem ekki hefði neinar tekjur frá
öðrum en almannatryggingum.
Það kostar 17 milljarða kr. að
hækka lífeyri aldraðra og öryrkja
um 20%. Stjórnarflokkarnir, Sjálf-
stæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur, lofuðu því í kosninga-
baráttunni að framkvæma þessa
leiðréttingu, ef þeir kæmust til
valda. Það var samþykkt á flokks-
þingum beggja flokkanna. Nú er
komið að efndum á þessu kosninga-
loforði. Það þolir ekki meiri bið.
Hækka þarf skattleysis-
mörkin verulega
Kjör margra aldraðra og öryrkja
eru erfið um þessar mundir, einkum
þeirra, sem hafa húsnæði á leigu.
Húsaleiga er mjög há og hefur
hækkað mikið. Lyfjakostnaður er
einnig mjög hár svo og lækniskostn-
aður. Þeir lífeyrisþegar, sem hafa
einungis tekjur frá almannatrygg-
ingum, eiga mjög erfitt með að láta
enda ná saman. Þeir verða að neita
sér um marga sjálfsagða hluti. Það
er þess vegna mjög brýnt að bæta
kjör þeirra. Ein besta leiðin til þess
að bæta kjör lífeyrisþega og lág-
launafólks er að hækka skattleys-
ismörkin. Aðalfundur Félags eldri
borgara í Reykjavík, í febrúar sl.,
ályktaði að hækka ætti skattleys-
ismörkin myndarlega. Hið sama
gerði síðasta þing Landssambands
eldri borgara. Kjaranefnd FEB hef-
ur einnig ítrekað ályktað um málið.
Fróðlegt verður að sjá hvort rík-
isstjórnin tekur upp hækkun skatt-
leysismarka í fjárlög næsta árs.
Skattleysismörk vegna tekjuskatts
og útsvars vegna ársins 2014 eru 141
þús. kr. á mánuði. Þau hækkuðu um
4,2% sl. áramót. Það var aðeins verð-
lagshækkun. Það þarf að hækka þau
miklu meira, ef þau eiga að leiða til
kjarabóta. Sennilega þyrfti að
hækka skattleysismörkin í 200 þús.á
mánuði svo eitthvert gagn væri í
hækkuninni. Vonandi verður ríkis-
stjórn og Alþingi við óskum eldri
borgara um slíka hækkun skattleys-
ismarkanna.
Aldraðir fengu 3,6%
– stjórnendur 13–40%!
Eftir Björgvin
Guðmundsson »Ein besta leiðin til
þess að bæta kjör
lífeyrisþega og lág-
launafólks er að hækka
skattleysismörkin.
Hækka þarf þau mynd-
arlega
Björgvin
Guðmundsson
Höfundur er formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara.
Ekki veit ég svo
sem nákvæmlega
hvað bænin er eða
hvernig hún virkar.
En hitt veit ég fyrir
víst, af því ég hef
upplifað það sjálfur,
að mér finnst ósegj-
anlega gott að fá að
hvíla í henni og með-
taka friðinn og lausn-
ina sem henni fylgir.
Þá veit ég fátt dýrmætara en það
að vita til þess að til sé fólk sem
biður fyrir mér. Það er hreint al-
gjörlega ómetanlegt.
Okkar dýrmætasti
menningararfur
Bænin er hluti af frumþörf
mannsins. Dýrmætur menningar-
arfur. Boð um að fá að lifa í teng-
ingu við höfund og fullkomnara
lífsins. Bænin er æfing í trú og
trausti, von og kærleika.
Við nemum staðar, kyrrð kemst
á hugann, hjartað opnast, við ger-
umst einlæg og heiðarleg um
stund.
Bænin er kvíðastillandi og
streitulosandi. Hún skerpir ein-
beitingu og veitir huganum ró. Við
köfum inn í innsta kjarna og
leggjum hugsanir okkar á borð,
áhyggjur og vonbrigði, þrár og
væntingar, framtíð og líf.
Við stingum á kýlum, áhyggj-
urnar taka að líða á braut og frið-
urinn tekur að flæða inn.
Bænin mýkir hjartað og auð-
veldar ævigönguna. Hún stillir
okkur af svo markmið okkar verða
skýrari. Við tökum að sjá Guð,
samferðamenn okkar, umhverfið
allt og okkur sjálf í nýju ljósi.
Bænin styrkir fjölskyldubönd.
Samkennd vex, umburðarlyndið
eykst og umhyggjan dýpkar. Hún
er góð forvörn og allra besta
áfallahjálpin.
Bænin er sem græðandi smyrsl.
Hún líknar og læknar, laðar og
leiðir, uppörvar og hvetur. Hún er
ekki spurning um orðalag heldur
hjartalag. Hún mildar sjónarhorn
okkar á menn og málefni og færir
okkur nær hvert öðru.
Bænin er andardráttur lífsins.
Allt það súrefni sem þarf til að
komast af. Í bæninni drögum við
að okkur fyrirgefninguna og þann
frið sem enginn getur gefið annar
en Jesús Kristur. Frið sem er
æðri mannlegum skilningi og eng-
inn og ekkert megnar frá okkur
að taka. Frið sem
sprottinn er af ást
Guðs. Með bæninni
upplifum við fegurð
lífsins.
Bænin eykur vellíð-
an
Bænin eykur orku
og léttir lund. Hún
veldur vellíðan og un-
aði svo maður fyllist
öryggistilfinningu,
þakklæti og gleði,
jafnvel í gegnum tárin.
Bænin treystir vináttubönd.
Hún eykur skilning og minnkar
fordóma. Hún fær okkur til að
staldra við, standa saman, þótt
ólík séum og með misjafnar skoð-
anir á svo mörgu en líklega svip-
aðar þrár, svona þegar allt kemur
til alls.
Bænin getur hreinlega öllu
breytt. Þjáningar linað og kvalir
sárar. Þá getur hún vonbrigðum
og harmi eytt, þegar illa árar.
Biðjum hvert öðru fyrir og
látum ekki ræna okkur bæn-
inni
Biðjum því hvert fyrir öðru.
Höldum vöku okkar og biðjum
fyrir sjálfum okkur, þeim sem
okkur eru kærir en einnig og ekki
síður þeim sem ofsækja okkur,
vilja okkur illt eða við förum í
taugarnar á. Guð gefi að þeir fái
séð til sólar þrátt fyrir okkar
veru.
Bænin er eftir allt saman ein-
faldlega það besta sem í brjóstinu
bærist. Hún er mun háleitari en
sú hugsun sem annars í höfði
mínu hrærist.
Látum engan og ekkert verða
til að ræna okkur bæninni og þeim
ólýsanlega friði sem hún gefur.
Friði sem er æðri okkar mannlega
skilningi.
Kærleiks- og friðarkveðja með
blessunaróskum.
Bænin mýkir
hjartað
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Bænin er kvíðastill-
andi og streitulos-
andi. Hún skerpir ein-
beitingu, veitir hugarró
og gefur frið í hjarta.
Frið sem er æðri öllum
skilningi.
Höfundur er rithöfundur og áhuga-
maður um lífið.
Vigfús samur við sig
Á sínum yngri árum þótti Vigfús
Pálsson liðtækur í bridsheiminum.
Hann hvarf svo af sviði um hríð en
kom til leiks á ný og nú að mestu sem
keppnisstjóri. Nú er Vigfús byrjaður
að spila og hefir nú á skömmum tíma
unnið mót í sumarbrids í Reykjavík
með sínum hvorum spilaranum.
Mánudaginn 25. ágúst mættu 23
pör í sumarbrids og hér er lokastað-
an (prósentskor):
Ólafur Steinason - Vigfús Pálsson 60,69
Leifur Aðalsteinss. - Eðvarð Hallgrss. 58,6
Haraldur Ingason - Garðar Hilmarss. 58,2
Bergsteinn Einarss. - Gústaf Steingrss. 56,6
Guðný Guðjónsd. - Þorgerður Jónsd. 54,1
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Fimmtudaginn 21. ágúst var spil-
aður tvímenningur hjá bridsdeild
Félags eldri borgara, Stangarhyl 4,
Reykjavík.
Spilað var á 13 borðum . Efstu pör
í N/S
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 411
Kristín Óskarsd.- Gróa Þorgeirsd. 387
Ægir Ferdinandss. - Helgi Hallgrss. 344
Björn Árnason - Auðunn Guðmss. 339
A/V
Óli Gíslason – Hrólfur Guðmundss. 366
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 360
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 356
Ormarr Snæbjs. - Sturla Snæbjörnss. 338
Fimmtíu manns í Gullsmára
Spilað var á 12 borðum í Gull-
smára mánudaginn 25. ágúst.
Úrslit í N/S:
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 205
Birgir Ísleifss. - Jóhann Ólafsson 195
Vigdís Sigurjónsd.-Þorleifur Þórarinss. 184
Kristín Óskarsd. - Gróa Þorgeirsdóttir 178
A/V
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 223
Ragnar Ásmunds. - Friðrik Hermannss. 187
Ágúst Vilhelmss. - Kári Jónsson 186
Rut Árnadóttir - Ása Jónsd. 180
Spilað er alla mánudaga og
fimmtudaga og hefst spilamennska
kl. 13.
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Föstudaginn 22. ágúst var spilað-
ur tvímenningur með þátttöku 22
para. Efstu pör í N/S (prósentskor):
Auðunn Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 57,2
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
brids@mbl.is