Morgunblaðið - 28.08.2014, Qupperneq 76
76
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
HAUSTferðir 2014
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
A
ð sögn Steinunnar
Tryggvadóttur hjá Úrvali-
Útsýn hefur veðurfarið yf-
ir sumarið mikil áhrif á
sölu utanlandsferða á haustin.
„Eftir kalt og blautt sumar eins og
í ár þyrstir marga í sól og blíðu.
Förum við að sjá áhrifin strax um
mitt sumar ef veðrið er ekki gott.“
Segir Steinunn einnig að neyt-
endur hafi lært að ekki gengur að
bíða fram á síðustu stundu með að
festa sér laust pláss í áhugaverðri
haustferð. „Í fyrrasumar gerðist
það einnig að veðrið var ekki nógu
gott en margir vildu bíða og sjá til
hvort veðrið skánaði, eða hvort
ferðaskrifstofurnar kæmu með góð
tilboð með haustinu. Þeir sem svo
hringdu í lok ágúst eða í sept-
ember fengu þær vondu fréttir að
flestar ferðir væru þegar orðnar
uppbókaðar.“
Steinunn segir sóldýrkendur
einkum halda til Spánar yfir sum-
artímann og fram á haust, til staða
á borð við Alicante, Almeria,
Costa Brava og eyjuna Tenerife
en þangað er flogið vikulega allan
ársins hring. Úrval-Útsýn býður
einnig upp á sólstrandarferðir til
Marmaris á Tyrklandi.
Hver strönd með sín sérkenni
Hver áfangastaður hefur sín
sérkenni og áherslur. „Unga fólk-
inu líkar afar vel á Alicante en þar
er að finna allt sem ungir ferða-
langar þrá. Almeria mjög vinsæll
staður hjá fjölskyldufólki og ís-
lenskir ferðalangar hreinlega
elska Tenerife enda eyjan sér-
staklega falleg og veðurfarið
hvorki of heitt né of kalt. Er þar
einnig hár gæðastaðall á öllum
verðflokkum gistingar og mat-
urinn fjölbreyttur og góður,“ segir
Steinunn. „Ef fólk vill blanda sam-
an sól og stórborgarlífi er Costa
Brava góður áfangastaður, stein-
snar frá menningarborgini Barce-
lona.“
Ævintýraleg ferð til Taílands er
fyrirhuguð í nóvember og dvalið
bæði við strönd og í borg með ís-
lenskan fararstjóra. Steinunn seg-
ir framboðið þar óþrjótandi af
dekri, skoðunarferðum, versl-
unum, mörkuðum og veitinga-
húsum og Taílendingar þekktir
fyrir einstaka gestrisni. „Taíland
er stórt, fjölbreytt og framandi
land en samt orðið svo nálægt
okkur þar sem sífellt fleiri heim-
sækja landið til að njóta lysti-
semda þess,“ segir Steinunn en
gist er í Bangkok og strandbænum
Hua Hin.
Borgarferðir og skíðafjör
Úrval-Útsýn býður að vanda
upp á fjölbreyttar borgarferðir í
haust og vetur. Má þar nefna
Barcelona, Bratislava, Dublin og
Berlín að ógleymdum vinsælum
aðventuferðum til München og
Berlínar.
Skíðaferðirnar hefjast í kringum
jólin og segir Steinunn að ferða-
skrifstofan skipuleggi ferðir bæði
til Austurríkis og Steamboat
Springs í Colorado. Skíðaferðir til
Bandaríkjanna hafa komið inn af
miklum krafti á undanförnum ár-
um og segir Steinunn það koma til
vegna beins flugs Icelandair til
Denver.
„Kostnaðurinn við skíðaferð-
irnar er svipaður, hvort sem hald-
ið er til Mið-Evrópu eða vestur til
Colorado. Getum við þó boðið upp
á fleiri gistimöguleika í Steamboat
Springs sem hentað geta fjöl-
skyldum og vinahópum. Hægt er
að fá gistingu í íbúðum þar sem
margir geta verið saman en það
gerir hverja gistinótt hagkvæmari.
Þyrstir í sól
eftir kalt og
blautt sumar
Leiðinn liggur m.a. til Spánar,
Taílands og á skíði í Colorado eða sigl-
ingu á fimm stjörnu skemmtiferðaskipi
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
A
ð vanda bjóða Bændaferðir
upp á breitt úrval ferða-
laga í haust. Hefðbundnu
rútuferðirnar um Evrópu
eru á sínum stað, en líka leið-
angrar á framandi slóðir og eins
ferðir með nýstárlegum áherslum.
Hugrún Hannesdóttir, sölustjóri
Bændaferða, segir m.a. mikinn
vöxt í sölu svokallaðra hreyfiferða,
þar sem æfingar og íþróttaiðkun af
ýmsu tagi er í fyrirrúmi. „Í ár er-
um við með mjög breitt úrval
göngu- og hjólaferða, og eins fjölda
sk. útivistarferða þar sem blandað
er saman hreyfingu og útiveru af
ýmsu tagi.“
Ómótstæðileg maraþon
Þeir sem hafa smitast af hlaupa-
bakteríunni ættu að veita því sér-
staka athygli að Bændaferðir
hrepptu nýlega umboðið fyrir
World Marathon Majors á Íslandi.
Með því fær ferðaskrifstofan
ákveðinn fjölda rásnúmera í sex
frægustu og eftirsóttustu maraþon-
um heims í Berlín, London, Bost-
on, New York, Chicago og Tókýó.
„Þar sem þessi maraþon eru svo
eftirsótt þarf að uppfylla ströng
skilyrði til að fá að selja þátt-
tökunúmer og eitt þeirra skilyrða
er að við verðum að selja a.m.k.
gistingu á viðkomandi áfangastað
með hlaupagjaldinu. Númerin sem
við fáum úthlutað hafa líka þann
kost að þau eru án tímatakmark-
ana, en alla jafna getur fólk t.d.
ekki vænst þess að komast í Bost-
on-maraþonið án þess að hafa fyrst
náð ákveðnum lágmarkstíma í
maraþonhlaupi annars staðar.“
Það veltur á áfangastaðnum
hvernig maraþonferðin er skipu-
lögð. Sum hlaupin eru ekki langt
frá Íslandi á meðan önnur eru nán-
ast hinum megin á jarðkringlunni
og kalla t.d. á að hlauparinn gefi
sér tíma til að jafna sig eftir langt
flugið. „Þegar ferðast er um lang-
an veg er líka ekki úr vegi að bæta
dögum fyrir framan eða aftan
sjálft hlaupið og skoða sig um í
landinu. Ef skotist er í maraþon á
austurströnd Bandarikjanna eða í
Evrópu er líka upplagt að taka frá
a.m.k. nokkra daga til að njóta
þess sem borgirnar hafa upp á að
bjóða.“
Skíðaganga á sænska vísu
Mjög spennandi viðbót við
hreyfiferðirnar er svo Vasa-
skíðagangan í Svíþjóð, Vasaloppet.
„Við erum fyrst íslenskra ferða-
skrifstofa til að geta boðið ferða-
pakka í þessa frægustu og lengstu
skíðagöngukeppni heims. Er tölu-
verður áhugi á keppninni og eink-
um fólk úr röðum maraþonhlaup-
ara og þríþrautarfólks sem langar
að spreyta sig,“ útskýrir Hugrún.
Hún bætir við að Vasaloppet sé
krefjandi keppni. „Skíðagangan
spannar 90 km og á leiðinni eru sjö
stöðvar sem fólk þarf að ná til í
tíma, ellegar dettur það úr
keppni.“
Ef þetta tal um skíðagöngur er
farið að koma lesendum í jólaskap
er rétt að minnast á aðventuferðir
Bændaferða. Frá fimmtudeginum
fyrir fyrsta sunnudag í aðventu
stendur ferðaskrifstofan fyrir helg-
ar- og vikuferðum til jólalegra
borga á borð við París, München og
Salzburg. „Í þessum ferðum gefst
tækifæri til að heimsækja einstaka
jóla- og aðventumarkaði og um leið
skoða þessar fallegu borgir með
sínum höllum, söfnum og kirkjum.
Þótt ferðast sé í dimmasta skamm-
deginu er þetta yndislegur tími til
að skoða þessar borgir, kaupa
kannski nokkrar jólagjafir og eiga
notalega frídaga. Veit ég að sumir
af viðskiptavinum okkar eru svo
hrifnir að þeir fara í aðventuferð til
Evrópu á hverju einasta ári.“
Úrval ferða fyrir þá sem vilja hreyfa sig
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Bændaferðir fengu nýlega umboð fyrir sölu ferðapakka á sex frægustu maraþonhlaup heims
Einnig mikill áhugi fyrir ferðum á Vasaloppet, skíðagöngukeppnina strembnu og vinsælu í Svíþjóð
Kapp „Þar sem þessi mara-
þon eru svo eftirsótt þarf að
uppfylla stöng skilyrði til að
fá að selja þátttökunúmer,“
segir Hugrún um ferðirnar.