Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í
slendingar eru, ef eitthvað er, duglegri að
ferðast á haustin en sumrin, að sögn Guð-
rúnar Sigurgeirsdóttur, framleiðslustjóra
hjá ferðaskrifstofunni Vita.
„Margir fylgja þeirri reglu að verja sumar-
fríinu á Íslandi þegar veður eiga að vera góð
en halda svo strax með haustinu til útlanda á
vit sólarstranda eða evrópskra stórborga. Hjá
Vita er aðeins vorið stærri sölutími en haust-
ið, því eftir jól og áramót bætast skíðaferð-
irnar við úrvalið.“
Segir Guðrún að dæmigert sé að kippur
komi í sólarlandaferðir strax í september, til
landa á borð við Krít, Spán og Tyrkland.
Ferðir með skemmtiferðaskipum eru líka vin-
sælar strax í haustbyrjun. „Í september erum
við með þrjár siglingar og eru allar upp-
seldar. Er ein ferðin frá Istanbúl og um
Svartahafið, önnur frá Feneyjum um Mið-
jarðarhaf og þriðja frá Tókýó niður til
Sjanghaí.“
Sumarið lengt í annan endann
Golfararnir halda líka af stað í september
og lengja þannig golftímabilið í annan end-
ann. „Þegar byrjað er að kólna, rigna og
hvessa á íslensku golfvöllunum er fátt betra
en að taka golfkylfurnar suður til Spánar og
taka þar nokkrar holur í veðurblíðunni.“
Það er í október og nóvember sem borgar-
ferðirnar koma inn af meiri krafti. Er fólk þá
að ferðast á eigin vegum, með vinahópum eða
vinnufélögum og stefnan sett á borgir á borð
við Róm, Dublin og Edinborg. „Vinsælast er
að taka þriggja og fjögurra nátta ferðir, ýmist
frá fimmtudegi til sunnudags eða föstudegi til
mánudags,“ upplýsir Guðrún.
Í borgarferðunum vill fólk gjarnan blanda
öllu saman: menningu, veitingastöðum, af-
þreyingu og innkaupum. „Dublin kemur mjög
sterkt inn, sérstaklega í fyrirtækjaferðunum,
enda ódýr borg heim að sækja miðað við
margar aðrar evrópskar borgir.“
Uppsöfnuð þörf
Ef sölutölurnar hjá Vita eru skoðaðar má
finna merki þess að efnahagur almennings
virðist fara batnandi. Segir Guðrún að frá
hruni hafi ferðum til útlanda fjölgað jafnt og
þétt og greinilegt að eftir nokkur ár sem
ferðatöskurnar fengu að safna ryki varð fljótt
til uppsöfnuð þörf á markaðnum. „Ég held að
enginn reikni með að ástandið verði aftur eins
og það var árið 2007, þegar krónan var geysi-
lega sterk, skuldastaða heimilanna góð og nóg
af ódýru lánsfé í boði. En ástandið er að nálg-
ast það sem kalla má eðlilegt.“
Ferðamynstrið hefur samt breyst að ýmsu
leyti og hefur t.d. ferðatíminn styst. „Hér áð-
ur fyrr var algengt að ferðir til sólarlanda
vörðu í þrjár vikur, en svo langar ferðir
þekkjast varla í dag og algengast að fólk vilji
ekki meira en 10-14 daga dvöl í sandi og sól.
Á móti kemur að í stað þess að fara í eina
stóra ferð á ári velja Íslendingar í vaxandi
mæli að fara fleiri og styttri ferðir. Gæti þá
t.d. verið ein æfinga- eða fótboltaferð með
táningnum á heimilinu að vori, svo stutt sólar-
strandarferð fyrir fjölskylduna þegar líður á
haustið og síðan helgarferð til skemmtilegrar
borgar þar sem börnin eru skilin eftir heima.“
Leiðin liggur ekki bara til Evrópu. Vita
stendur í nóvember fyrir ferð til Kúbu, í
fyrsta sinn eftir langt hlé. „Öll sæti í þá ferð
seldust upp á u.þ.b. tíu dögum og greinilegt
að margir hafa áhuga á að sækja Kúbverja
heim. Var því bætt við aukaferð í febrúar. Er
mjög hentugt að fljúga þangað með okkur þvi
flogið er beint á Havana. Ef farið er með
áætlunarflugi til Kúbu getur flugið orðið
nokkuð snúið enda ekki hægt að millilenda í
Bandaríkjunum.“
Sumarið á Ís-
landi en haustið
í útlöndum
Morgunblaðið/Golli
Skreppitúr „Vinsælast er að taka þriggja og fjögurra nátta ferðir, ýmist frá fimmtudegi til
sunnudags eða föstudegi til mánudags,“ segir Guðrún um borgarferðirnar á haustin.
Flykkjast til Spánar, Krítar og Tyrklands í
september og skella sér í borgarferðir í október
Þegar kreppan margumtalaða dundi á
spáðu því margir að ferðaskrifstofur
myndu fara halloka fyrir leitarvélunum á
netinu þar sem fólk getur sjálft pantað
sér flug og gistingu. Guðrún segir þetta
ekki hafa gerst, m.a. vegna þess að ferða-
skrifstofurnar geta í krafti samninga
sinna við flugfélög og hótelkeðjur oft náð
fram mun betri kjörum en almenningi
standa til boða í gegnum leitarvélarnar.
„Annar kostur þess að versla við ferða-
skrifstofu er að þannig fæst iðulega að-
gangur að mun þægilegra flugi á áfanga-
stað. Við stöndum fyrir leiguflugi beint á
borgir á borð við Róm, sem annars væri
mun tímafrekara og flóknara ferðalag.“
Síðast en ekki síst fylgir því ákveðið ör-
yggi og þægindi að láta fagmann skipu-
leggja ferðina, og jafnvel hafa aðgang að
íslenskum fararstjóra meðan á ferðinni
stendur. „Ef ferðast er með hópi fólks er
hægt að hafa ánægjulegan selskap í ferð-
inni og ákveðið öryggisnet ef eitthvað
skyldi koma upp á. Ef fólk er ekki mjög
sterkt í útlenskunni er líka ómetanlegt að
hafa leiðsögumann og aðra ferðalanga sér
til halds og trausts.“
Spara ekki endi-
lega með því að
gera hlutina sjálf
MEÐ GÓÐ SAMBÖND
HAUSTferðir 2014
Morgunblaðið/Ómar
Brosandi Litskrúðugir og fjörugir Kúbverjar.
Morgunblaðið/Þorkell
Sæla „Dublin kemur mjög sterkt inn, sérstaklega í fyrirtækjaferðunum, enda ódýr borg heim að sækja miðað við margar aðrar,“ segir Guðrún.