Morgunblaðið - 28.08.2014, Side 82
82 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
✝ JóhannesHelgason
fæddist í Reykja-
vík 16. júní 1958.
Hann lést á
Landakotsspítala
17. ágúst 2014.
Foreldrar hans
eru Lára Krist-
insdóttir hjúkr-
unarritari, f. 4.3.
1938, og Helgi
Scheving Jóhann-
esson slökkviliðsmaður, f. 26.8.
1934. Systur Jóhannesar eru
Metta, f. 16.8. 1962, m. Jón
Árnason, f. 30.5. 1963, þau eiga
tvö börn, Andra Frey, f. 30.5.
1995, og Örnu Ýri, f. 30.5.
1995. Hildur Kristín, f. 23.8.
1967, m. Finnur Leifssson, f.
8.9. 1965, þau eiga tvo syni,
Kristófer Darra, f. 19.6. 1997,
og Daníel Orra, f. 28.9. 2001.
Jóhannes kvæntist 19. nóv-
ember 1983 Unni Einarsdóttur
sjúkraliða og blómaskreyti, f. í
Reykjavík 25. júní 1961. For-
eldrar hennar voru Sigurlaug
Kristinsdóttir húsmóðir, f. 5.9.
1930, d. 2.2. 2010, og Einar
Eggertsson skipstjórnarmaður,
f. 18.6. 1930, d. 28.1. 2014.
Synir þeirra eru: 1) Helgi,
flugmaður og badmintonþjálf-
ari, f. í Reykjavík 18.11. 1982, í
sambúð með Freyju Rut Emils-
dóttur kennara, f. á Sauð-
árkróki 29.12. 1981. Þau eiga
Flugmaður á F-27 1983-1984, á
Douglas DC-8 1985-1989, á Bo-
eing 737 1989-1992, á Boeing
757 1993-1995. Flugstjóri á
F-50 1995-1999, á Boeing 757/
767 frá 1999. Þjálfunar- og eft-
irlitsflugstjóri á F-50 1996-
1999 og á Boeing 757/767 frá
1999 þar til hann lét af störf-
um vegna veikinda haustið
2009. Hann stundaði badmin-
ton í Tennis- og badmin-
tonfélagi Reykjavíkur, TBR.
Byrjaði að æfa íþróttina með
badmintonklúbbi Icelandair og
spilaði með tveimur badmin-
tonhópum, Víkingasveitinni og
Trukkunum. Var mjög virkur í
félagsstörfum fyrir badmin-
tonhreyfinguna. Sat í stjórn
Badmintonsambands Íslands,
BSÍ, 1990-1994 og í stjórn TBR
frá 1996 og formaður frá
1999-2012. Hann var sæmdur
heiðursfélaganafnbót TBR
þegar hann lét af formennsku
og hafði áður verið sæmdur
gullmerki TBR, gullmerki
Íþróttabandalags Reykjavíkur,
ÍBR, og í desember sl. gull-
merki Íþrótta- og ólympíusam-
bands Íslands, ÍSÍ. Hann spil-
aði golf og stóð fyrir og
stofnaði golfklúbbinn GG gol-
fers með starfsfélögum hjá
Icelandair.
Útför hans fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 28.
ágúst 2014, kl. 13.
tvær dætur,
Emmu Katrínu, f.
13.3. 2008, og Júl-
íu Marín, f. 6.10.
2011. Fyrir átti
Helgi Laufeyju
Helgu, f. 3.6.
2001. 2) Atli,
íþróttafræðingur,
f. í Reykjavík
15.6. 1988, í sam-
búð með Halldóru
Elínu Jóhanns-
dóttur háskólanema, f. 24.9.
1985. Þau eiga eina dóttur,
Þóreyju, f. 9.5. 2014.
Jói, eins og hann var alltaf
kallaður, ólst upp í Fossvog-
inum og gekk í Breiðagerð-
isskóla, Réttarholtsskóla og
stúdent frá Menntaskólanum
við Sund 1978. Hann spilaði
handbolta með Fram í ung-
linga- og meistaraflokki. Jói
var mjög músíkalskur og spil-
aði á gítar, harmoniku, píanó
og hljómborð. Spilaði sem gít-
arleikari í hljómsveitunum
Piccaló, Frostrósum og Þey.
Hann var góður söngmaður
og gat að auki sungið mjög
vel með rödd Andrésar andar.
Fór í flugnám og lærði hjá
flugskólanum Flugtaki árið
1978 og lauk atvinnuflug-
mannsprófi ásamt kennslu-
réttindum 1982. Starfaði allan
sinn atvinnuflugmannsferil
hjá Flugleiðum/Iclandair.
Eiginmaður minn, Jóhannes
eða Jói eins og hann kaus að láta
kalla sig, greindist með þennan
illvíga og ólæknandi sjúkdóm
Alzheimer haustið 2009. Áfallið
var ólýsanlegt bæði fyrir hann,
fjölskylduna, starfsfélaga og vini.
Úr því sem komið var, og lítið
hægt að gera til að stöðva fram-
gang sjúkdómsins, var æðruleysi
hans aðdáunarvert.
Hann átti góða að, syni,
tengdadætur, fjölskyldu sem
alltaf var reiðubúin til að vera til
taks og einstaka vini sem gerðu
allt sem í þeirra valdi stóð til
hann gæti verið sem lengst með
þeim í þeirra félagsskap. Það
voru Trukkarnir, félagsskapur
badmintonhóps sem spilar bad-
minton yfir vetratímann með
mikill keppnishörku, og golf á
sumrin og það átti sko vel við Jóa
en auðvitað var þetta líka
skemmtun. Ég og fjölskylda mín
viljum þakka þeim Víði Braga-
syni, Sigfúsi Ægir Árnasyni,
Hannesi Ríkarðssyni og Trukka-
hópnum öllum fyrir einstaka um-
hyggju og þennan ómetanlega
vinastuðning sem þeir héldu við
Jóa og okkur fjölskylduna. Jói
átti góðan flugmannavinahóp
sem studdi hann og aðstoðaði í
veikindum hans og einnig marga
góða starfsfélaga hjá Icelandair
sem ég og fjölskyldan viljum
þakka fyrir góðan og kærleiks-
ríkan stuðning.
Hann var í dagþjálfun í Hlíð-
arbæ og þar leið honum mjög vel
og var í umhverfi þar sem ekki
voru gerðar kröfur til skjólstæð-
inganna heldur allt á þeirra for-
sendum. Í Hlíðarbæ er starfsfólk
sem vinnur vinnu sína af slíkri al-
úð og nærgætni að aðdáunarvert
vert er. Starfsemi þessi er svo
nauðsynleg bæði fyrir skjólstæð-
inga og fjölskyldur. Stuðningur
og endalaus aðstoð við að leysa
ýmis mál sem skjólstæðingar og
fjölskyldur þeirra glíma við. Við
erum svo þakklát fyrir þennan
tíma sem Jói var í Hlíðarbæ.
Það eru grimm örlög að fá
sjúkdóm sem fjötra einstakling-
inn og fjölskylduna og framtíðin
verður alltaf erfiðari og sorg-
legri. Þessi sjúkdómur hefur í
raun haldið öllum í sorgarferli í
rúm fjögur ár. Núna hefur það
tekið á sig aðra mynd með frá-
falli Jóa. Þó svo að allir hafi vitað
hvert stefndi þá er sorgin alltaf
sársaukafull. Við munum læra að
lifa í þessum breyttu aðstæðum.
Þegar andlát ber að þá verður
svo margt táknrænt eins og
sunnudaginn sem Jói kvaddi.
Veðrið var svo fallegt og gott og
alveg tilvalið að fara út á flugvöll
og fara í flugtúr. Það var mikið
flogið þennan sunnudagsmorgun
og tekið af frá Reykjavíkurflug-
velli til norðurs og þegar stundin
kom þá flaug flugvél rétt við
Landakotsspítalann. Ég er viss
um að hann Jói minn hefur fund-
ið flugvél og einhvers staðar
flýgur hann um og fylgist með
okkur.
Elsku Jói minn, það er svo erf-
itt að kveðja þig því að þá þarf ég
að sleppa takinu og við fjarlægj-
umst alltaf meira og meira. En
þar til við hittumst aftur þá ætla
ég að gera mitt besta í að halda
utan um fjölskylduna okkar og
við ætlum öll að passa hvert ann-
að.
En ár og eilífð skilja okkur að
og enginn getur komið í þinn stað
þó skal minning þín lifa
á meðan lifi ég
og ég þakka vil
þá dýru gjöf
að lífið leit til mín
og leiddi mig til þín.
(Friðrik Erlingsson.)
Sofðu rótt, Jói minn, ég elska
þig. Þín,
Unnur.
Það var heiðskírt og norðan 5
hnútar, fullkomið flugveður, þeg-
ar þú hófst þig á loft og flaugst af
stað á óþekktan ákvörðunarstað.
Þú opnaðir augun og kvaddir
okkur í hinsta sinn. Ég man það
eins og það hafi gerst í gær þeg-
ar mér var sagt að þú værir kom-
inn í veikindaleyfi, hjarta mitt
sökk og hugurinn þaut af stað.
Allt sem mig langaði svo að gera
með þér í framtíðinni var hrifsað
af mér. Minn helsti draumur dó
samstundis og sjúkdómsgrein-
ingin kom. Allir segja mér
hversu frábær vinnufélagi þú
hafir verið, hversu gott var að
vinna með þér. Mér finnst svo
sárt að hafa aldrei fengið tæki-
færi til að upplifa það sjálfur,
læra af þér og leyfa þér að kenna
mér. Mig langaði svo mikið að
fljúga með þér elsku pabbi minn.
Ég hefði flogið með þér á enda
veraldar, slíkt var traust mitt til
þín. Þú varst kletturinn á bak við
mig, þú greipst mig ef ég var að
detta og veittir mér skjól þegar á
þurfti að halda. Þetta er því mið-
ur draumur sem aldrei verður að
veruleika þar sem þessi sjúk-
dómur sem þú barðist við hefur
nú haft betur. Ég veit að nú flýg-
ur þú út um allt, spilar á gítarinn
og leikur þér í badminton og
golfi, allt það sem þú gast ekki
gert á meðan veikindin herjuðu á
þig. Eftir stend ég hér með
minningar sem aldrei munu
gleymast. Ég man þegar ég var
lítill strákur og við flugum TF-
FTG heim úr Múlakoti eftir frá-
bæra verslunarmannahelgi. Ég
hef varla verið meira en 11 ára,
þvílík upplifun að fá að fljúga
flugvél á þessum aldri. Ótal
stundir sem við horfðum á bad-
minton á vídeóspólum sem þú
hafðir útvegað á einhvern ólýs-
anlegan hátt og hvað ég þoldi það
ekki að vinna þig ekki í badmin-
ton þegar ég var 12 ára. Jólin
þegar ég fékk Nintendo-tölvuna í
jólagjöf og við eyddum öllum jól-
unum í að spila Super Mario og
það skipti ekki máli hversu oft ég
sagði þér að þú þyrftir ekki að
hreyfa hendurnar til að láta kall-
inn hoppa þá gerðirðu það samt.
Allir golfhringirnir sem við spil-
uðum saman og glöddumst hvor
með öðrum þegar vel gekk. Allir
sem þekkja þig vita að þú varst
hrekkjóttur og ég man hvað ég
gat hlegið að hrekkjunum þínum
og sama hvað ég reyndi að
hrekkja þig til baka þá var það
yfirleitt verst fyrir sjálfan mig
því ég fékk það alltaf margfalt í
bakið. Þetta er bara það helsta
því það er svo ótal margt sem við
gerðum saman en þó svo margt
sem við áttum eftir. Mér finnst
svo sárt elsku pabbi að þú sért
farinn. Mig langaði svo að stelp-
urnar mínar fengju að kynnast
þér eins og ég gerði en þessi
hryllilegi sjúkdómur tók þig frá
okkur á meðan þú varst í blóma
lífsins. Lífs sem þú hafðir skapað
þér og okkur þar sem allir höfðu
það gott. Það getur verið svo
ósanngjarnt þetta líf. Ég veit að
hvar sem þú ert þá muntu vaka
yfir okkur og passa okkur, fylgj-
ast með okkur og eflaust stund-
um hrista hausinn yfir því sem
við erum að gera. Ég óska þess
að þú getir flogið pabbi minn,
flogið hvert sem þig langar, sjón-
flug alla leið.
Þinn sonur,
Helgi.
Elsku pabbi minn þá hefurðu
kvatt okkur eftir langa baráttu
við hræðilegan sjúkdóm. Ég er
enn að bíða eftir því að vakna
upp í rúminu mínu af þessari
martröð og heyra í þér frammi í
eldhúsi að hella upp á kaffi og
gera þig kláran í morgunflug.
Það veitti mér alltaf ákveðna ör-
yggistilfinningu að heyra um-
ganginn í þér á nóttunni, eins og
þú værir bara þarna til að passa
upp á mig. Ég man að þegar þú
komst heim frá Ameríku hafð-
irðu alltaf með einhverja gos-
drykki sem ekki fengust á Ís-
landi og við kölluðum það alltaf
pabbakók. Þú varst frábær flug-
maður og allir hjá Icelandair tala
svo vel um þig og hvað það var
gott að vinna með þér og það
gerir mig svo stoltan. Ég er al-
veg viss um að þú hefur verið
með mýkstu lendingarnar af öll-
um flugmönnum á landinu enda
vannstu nokkrar lendingar-
keppnir á þínum ferli.
Ég man líka hvað það var allt-
af gaman og gott að heyra þig
spila á hljóðfærin þín þótt það
væru nú oftast nær alltaf sömu
lögin sem þú spilaðir. Þú varst
svo flinkur á gítarinn og alltaf hló
ég jafnmikið þegar þú söngst
eins og Andrés Önd. Þegar ég lít
til baka er svo margt sem kemur
upp í hugann og margar góðar
minningar. Ég man eftir að hafa
spilað badminton við þig á gang-
inum í Ofanleitinu. Mamma var
nú ekki alltaf sátt við það enda
brutum við næstum alla vasa á
heimilinu sem þið fenguð í brúð-
argjöf. Ég man líka vel eftir öll-
um golfhringjunum, badminton-
tímunum, yatzi-spilunum og
ferðalögunum með fellihýsið á
sumrin. Þetta er tími sem ég
gleymi aldrei. Þú sagðir fyndn-
ustu brandarana og varst svo
góður sögumaður. Þú varst sá
eini sem gast sagt mér sömu sög-
una aftur og aftur en alltaf hló ég
jafnmikið, þú sagðir svo
skemmtilega frá. Efst í huga er
sagan af ykkur Hrólfi þegar þið
fóruð á gæsaveiðar á Kóngs-
bakka um árið og allar sögurnar
af Heiðarvatni. Ég er svo þakk-
látur fyrir allan þennan tíma og
ég er svo þakklátur fyrir lífið
sem þú gafst mér og alla hlutina
sem þú kenndir mér. Tíminn með
þér hefði bara átt að vera miklu
lengri en hann var, þú kveður
okkur allt of snemma pabbi minn
og lífið er sannarlega ekki sann-
gjarnt alltaf. Það var blessun að
þið mamma hittust svona ung og
gátuð átt langt og gott líf saman
þrátt fyrir allt. Þú gerðir margt
pabbi, flaugst um allan heim,
spilaðir á hljóðfæri, varst í
hljómsveitum, sinntir fé-
lagsstörfum, spilaðir golf og bad-
minton og þið mamma fögnuðuð
30 ára brúðkaupsafmæli.
Ég er búinn að vera reiður
lengi yfir að þú skyldir þurfa að
veikjast af sjúkdómi sem rændi
þig svona miklu. Nú ætla ég að
hætta að vera reiður því ég veit
að þú ert ekki veikur lengur og
þú getur hvílt þig í friði. Ég er
þakklátur fyrir manninn sem þú
hjálpaðir mér að verða. Ég mun
segja börnunum mínum sögur af
afa Jóhannesi og við munum
hlæja og minnast þess hversu
frábær maður þú varst.
Ég elska þig, pabbi minn, af
öllu mínu hjarta og sakna þín svo
sárt. Þinn
Atli.
Í dag kveðjum við elskulega
Jóa bróður minn. Hann er floginn
á vit æðri ævintýra. Lífið getur
verið ósanngjarnt og tilgangur
þess er stundum óljós. Með trega
í hjarta skrifa ég minningarorð
um góðan bróður. Við systkinin
vorum þrjú og áttum yndislega
bernsku í Fossvoginum. Lífið var
ólíkt því sem tíðkast hjá börnum í
dag. Við lékum okkur úti í Huldu-
landinu í alls kyns leikjum sæl og
glöð. Jói vissi snemma hvað hann
vildi leggja fyrir sig í lífinu. Að-
eins fjögurra ára tilkynnti hann
foreldrum okkar að hann ætlaði
að verða flugmaður. Einbeittur
vann hann að því og flaug sína
fyrstu flugferð á Fokkernum að-
eins 24 ára gamall, á afmælisdegi
móður okkar. Mikið vorum við
stolt. Daginn sem Jói okkar
kvaddi virtust allar vélar fljúga
yfir Landakot. Við fjölskyldan
ímynduðum okkur auðvitað að
þetta væri honum til heiðurs en
Jói var farsæll og virtur flug-
stjóri.
Á uppvaxtarárum sótti Jói
örfáa harmonikkutíma. Hann
hafði tónlistina í blóðinu og
nennti engan veginn að spila eft-
ir nótum. Á unglingsárum spilaði
hann á gítar og var í hljómsveit.
Mér fannst mjög töff að eiga
bróður sem var í hljómsveit. Jói
var einn af stofnendum hljóm-
sveitarinnar Þeys og spilaði með
þeim á fyrstu hljómplötu þeirra.
Flugið tók sinn tíma og Jói hætti
í hljómsveitinni. Hann hélt þó
áfram að þróa sig í tónlistinni og
spilaði á gítar og hljómborð. Eft-
ir Jóa liggur falleg frumsamin
tónlist sem aðeins hans nánustu
hafa fengið að njóta. Jói spilaði
handbolta með Fram í nokkur ár
og hélt alltaf tryggð við félagið.
Golfið heillaði hann líka og naut
hann sín í því með fjölskyldu og
vinum. Fyrir allmörgum árum
hóf Jói að stunda badminton hjá
TBR. Hann féll fyrir íþróttinni,
mætti vel á æfingar og náði góð-
um árangri á skömmum tíma.
Fljótlega var Jóa boðið í fé-
lagsskap Trukkanna sem hafa
spilað saman badminton í mörg
ár. Áhugi Jóa á badmintoninu
jókst jafnt og þétt. Hann var
kjörinn formaður TBR og sinnti
því starfi af alúð í 14 ár. Jói smit-
aði fjölskyldu sína af badminton-
bakteríunni og eiga drengirnir
þeirra hjóna glæstan badminton-
feril. Unnur eiginkona Jóa var
aldrei langt undan og er enn að
sýsla við mótsstjórn. Á þessum
vettvangi og í fluginu eignuðust
Jói og fjölskylda fjölda yndis-
legra vina sem hafa staðið þétt
við bak þeirra bæði í leik, starfi
og síðast en ekki síst í veikindum
hans. Vinahópurinn, sem kveður
vin sinn í dag, er stór enda var
Jói traustur og góður vinur og
með húmorinn í lagi. Aldrei
heyrði maður hann hreykja sér
af afrekum sínum enda var hann
lítillátur og vel gerður.
Unnur, eiginkona Jóa, kom
inn á heimili okkar aðeins fjórtán
ára gömul. Það var augljóst að
bróðir minn hafði dottið í lukku-
pottinn. Það sem þau tvö áttu
saman í lífinu var einstakt. Unn-
ur var haldreipið hans, klettur-
inn sem haggaðist ekki og fyrir
það erum við fjölskyldan þakklát.
Ég mun alltaf varðveita minning-
ar um góðan bróður og trúi því
að hann sé umvafinn englum,
frjáls og fljúgandi í æðri verk-
efnum. Megi góður Guð gefa
okkur öllum, sem elskuðum Jóa,
styrk og frið í hjarta. Guð geymi
þig elsku bróðir. Þín systir,
Metta.
Elsku hjartans Jói bróðir er
dáinn. Hvílík forréttindi sem það
voru fyrir mig að vera litla systir
þín. Það lék allt í höndum þér,
hvort sem það voru flugvélar eða
hljóðfæri. Þú varst flinkur í öllu
því sem þú tókst þér fyrir hend-
ur. Ég á margar góðar minning-
ar sem munu ylja mér um ókom-
inn tíma. Ég er alls ekki tilbúin
að kveðja þig en nú ertu frjáls og
laus við þennan grimma sjúkdóm
sem tók þig frá mér. Ég sakna
þín meira en orð fá lýst en ég veit
að núna líður þér vel og þú ert á
góðum stað. Guð geymi þig,
elsku bróðir.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo, vinur kæri, vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(Höf. ók.)
Hildur Kristín, litla systir.
Elsku afi Jóhannes. Á hverju
kvöldi kveikjum við á kerti og
skiptumst á að segja sögur af
þér. Hver einasta saga endar
með hlátrasköllum því þannig afi
varst þú. Þú varst alltaf að
hrekkja og stríða, grínast og
gantast. Við munum svo vel
hvernig allir matmálstímar byrj-
uðu á trommusólói, sem endaði
svo með lokaslætti á höfðinu á
þér og við sprungum úr hlátri.
Við munum hvernig þér tókst
alltaf að fá alla til að skella upp
úr með kvakinu, þú varst alveg
eins og Andrés önd, og þegar þú
spilaðir á gítarinn og söngst eins
og Andrés, þá hlógum við sko!
Okkur fannst alltaf fyndið þegar
þú stríddir ömmu Unni, t.d. þeg-
ar þú hraust svo hátt að undir
tók í fjöllunum en þvertókst fyrir
það og kenndir ömmu um. Þú
varst líka alltaf til í að reyna að
klæða barbídúkkurnar en með
misgóðum árangri. Elsku afi, við
vitum að við getum ennþá talað
við þig því það er hægt að tala
við engla þótt við heyrum ekki
alltaf svörin og við höldum áfram
að segja þér frá. Við höldum líka
áfram að hlæja að góðum minn-
ingum og við þessar eldri mun-
um segja þessum yngri allar
hrekkjalómasögurnar af afa Jó-
hannesi.
Kveðjustund
Nú komið er að kveðjustund,
elsku afi minn.
Nú gengur þú um Drottins dyr,
með gítarinn þinn.
Þú þurftir að fara
snemma frá mér
en ég mun aldrei gleyma
tímanum með þér.
Nú flýgur þú Guðs vél
og fylgist okkur með.
Þú verður alltaf í hjarta mér,
hvert sem ég fer.
(Laufey Helga)
Þínar afastelpur,
Laufey Helga, Emma Katr-
ín, Júlía Marín og Þórey.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(HJH)
Jói mágur minn var einstak-
lega ljúfur, lífsglaður og glettinn
maður. Vinur vina sinna og mik-
ill fjölskyldumaður. Skarð hefur
verið höggvið í fjölskylduna og
vinahópinn sem erfitt er að
sætta sig við. Lífið heldur áfram
þótt tómlegt sé án hans.
Þú getur grátið yfir því að
hann er farinn eða þú getur
glaðst yfir því að hann lifði.
Þú getur lokað augunum og
óskað þess að hann komi aftur
eða þú getur horft á það sem
hann hefur áorkað.
Hjarta þitt getur verið tómt
vegna þess að þú sérð hann ekki
eða hjarta þitt getur verið fullt
af ást yfir öllu sem þið hafið
deilt.
Þú getur snúið baki við morg-
undeginum og lifað gærdaginn
eða þú getur glaðst yfir morg-
undeginum vegna gærdagsins.
Þú getur einungis munað að
hann sé farinn eða þú getur
varðveitt minningu hans og haft
í heiðri.
Þú getur grátið og snúið baki
við veruleikanum eða þú getur
Jóhannes Helgason