Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 92
92 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
25ÁRA
1988-2013 Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst
ÞRÁÐLAUSIR
HÁTALARAR
- BLUETOOTH
NÝTT
X05 hátalararnir eru tilvaldir hvar sem er þar sem að þú vilt njóta tónlistar í
gegnum snjallsímann eða spjaldtölvuna. Þeir eru með rafhlöðu sem endist allt að 8 tíma. Þú
getur svarað símanum með honum líka. Þetta er sérlega vandaðir hátalarar sem er búnir til úr
burstuðu áli sem er fáanlegt í rauðum, svörtum og silfurlit. Þú ert 2-3 tíma að hlaða hann með
USB hleðslutæki.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Forðastu hvers kyns deilur í dag.
Farðu því ekki að snúa út úr einföldum
spurningum þótt þú sért illa upplögð/lagður.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þekkir nú þegar grunnþarfir þínar
til að líða vel og líta vel út. Horfðu djúpt inn í
hjarta annarra, þannig geturðu hjálpað þeim
sem þurfa.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ekki er allt sem sýnist, leiðin að
hamingjuríku lífi er oft þyrnum stráð. Sestu
niður og farðu í gegnum fjármálin svo þú
vitir upp á hár hvar þú stendur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Breytingar breytinganna vegna hafa
sjaldnast nokkuð upp á sig. Engin spenna er
í loftinu og því skaltu taka lífinu með ró.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hugsaðu upp rök fyrir því að þú eigir
að fá það sem þú vilt – í huganum. Mundu
að sumir draumar rætast fljótt, aðrir síðar.
Nú taka bjartari tímar við, nýttu þér það.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ýmsir erfiðleikar eru framundan ef þú
ekki tekst á við vandamálin hér og nú. Haltu
því bara þínu striki, því að öll él birtir upp
um síðir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Kona í fjölskyldunni leggur að þér að
grípa til óvenjulegrar heilsubótar. Allir í
kringum þig verða ánægðir ef þú gerir það
sem hún biður þig um.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef verkefni reynist manni of
auðvelt lærir maður ekki mikið af því. Myrk-
ar tilfinningar liðinna daga eru horfnar. Klár-
aðu sumarfríið hið fyrsta, þér veitir ekki af
því.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þegar yfirmaðurinn getur ekki
verið nákvæmur í skipunum er ekkert við því
að gera nema nota ímyndunaraflið. Ef þú ert
eitthvað miður þín skaltu muna að nýr dagur
rennur upp á morgun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Grasið er svo sem ekkert grænna
í garði grannans þótt við höldum að svo sé.
Þér finnst þú stundum vera útundan í fjöl-
skyldunni en það er hin mesta firra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Talaðu við einhvern í dag sem
getur hjálpað þér að tryggja öryggi þitt á
leigumarkaðnum. Sýndu samstarfsmönnum
skilning.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Skilaboðin eru til staðar, þú þarft
bara að lesa þau. Láttu það sem vind um
eyru þjóta þegar einhver hvíslar að þér
kjaftasögu um vini þína.
Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-ar um jarteikn í Leirinn og
ekki að ástæðulausu:
Urðu jarteikn um Jónsmessu og undur
og jörð skalf og rifnaði sundur
og álmur stóð ber,
að Odda gaus hver,
er gelti að Gaddstöðum hundur.
Ármann Þorgrímsson kvartar
undan magaverk:
Brakar í landsins burðargrind
bresti má heyra undir þind
alltaf verðum af ótta blind
ef að náttúran leysir vind.
Ármann Þorgrímsson veit sínu
viti og kann að gefa heilræði ef gos
verður.
Flaustur skulum forðast þá
fylgja reglum öllum.
Véfréttina virða á
og varast ráp á fjöllum.
Bárðarbunga verður Hafsteini
Reykjalín að yrkisefni:
Miklar eru furðufréttir
fjöldinn hlustar á
fer nú eins og fé á réttir
flykkist skjánum hjá.
Undir henni Bárðarbungu
berst um glóð á laun
reynir þar að reka’ upp tungu
og renna út sem hraun.
Nú er bara önnur öldin
ekkert gosið finnst.
Fæ mér samt einn konna’ á kvöldin
kjarkur mér þá vinnst.
Fréttamenn og fréttastofur
fæla mannskap burt.
Eru eins og voða vofur
væla um allt kjurt.
Hulda Jóhannesdóttir er gott
limruskáld og vafalaust rétt lýsing
á ástandi malarvega á Suðurlandi
eftir þetta mikla rigningarsumar:
Rútan á brettinu rokkaöi
rétt eins og klárhestur brokkaði
óslétta vegu
í ömurlegu
færi og farþega strokkaði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um hundinn á Gadd-
stöðum og ráp á fjöllum
Í klípu
„FJÁRANS! ÉG SEM VAR AÐ LOSNA
VIÐ ÞETTA LAG AF HEILANUM!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐ SEGIRÐU, BJÓ LÖGFRÆÐINGURINN
ÞINN UM ÚLNLIÐINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá heimsókn frá
uppáhalds
ömmubarninu.
BRÁÐAMÓTTAKA
VARLEGA,
MENN!
ÞETTA GÆTI
VERIÐ GILDRA!
SNÚÐU
ÞÉR.
ÉG GERI ÞETTA
EKKI AFTUR.
HVAÐ, VILTU
AÐ ÉG VERÐI
FLATUR ÖÐRUM
MEGIN?
Leikar eru að æsast í íslenskaboltanum og stefnir allt í að
leikur FH og Stjörnunnar í loka-
umferðinni muni ráða úrslitum um
það hvort liðið verður Íslandsmeist-
ari. Bæði þessi lið eru vel komin að
þeim árangri sem þau hafa náð í
sumar, enda taplaus hér innanlands
í deildinni, og í tilfelli Stjörnunnar
þurfti raunar ítalska stórliðið Inter
Mílanó til þess að stöðva sig-
urgöngu liðsins í Evrópukeppninni.
Stjörnupiltar geta því vel við unað,
en síðari leikur liðanna fer fram í
kvöld á hinum heimsþekkta San
Siro-leikvangi.
x x x
Það hlýtur að vera draumur sér-hvers knattspyrnumanns að ná
árangri, og væntanlega munu ein-
hverjir af leikmönnum Stjörnunnar
fá fiðring við að ganga inn á þennan
heimsfræga völl. Vonandi verða þeir
sér til sóma en sagan bendir því
miður til þess að kvöldið gæti orðið
ansi langt fyrir Stjörnumenn, þar
sem ítölsku liðin hafa venjulega far-
ið hamförum gegn þeim íslensku á
heimavöllum sínum. Það hlýtur þó
að vera svekkjandi fyrir Stjörnu-
menn hversu litlu munaði að úrslitin
í fyrri leiknum yrðu önnur.
x x x
Víkverji varð óvænt að „föður“ ísumarfríinu sínu, þar sem hann
varð nokkuð skyndilega eigandi
stökkmúsar. Víkverji hefur sinnt
föðurhlutverkinu af nokkurri alvöru
og gætt þess að ávallt sé hreint vatn
í drykkjarflösku krílisins og að
krógann vanhagi ekki um mat. Þá
sinnir hinn nýbakaði faðir ýmsum
skyldum þegar kemur að þrifum
búrsins, þar sem hinn nýi íbúi á
heima.
x x x
Víkverji hefur ekki áður átt gælu-dýr og satt að segja hefur það
komið honum á óvart hvað það hef-
ur reynst vera skemmtilegt að
sinna músinni, sem hefur fengið
nafnið Óskar, í höfuðið á uppáhalds-
knattspyrnumanni Víkverja um
þessar mundir. Þeir eiga það nefni-
lega sameiginlegt að vera
öskufljótir og sækja báðir mikið í
hornin. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: En hann frelsar hinn
bágstadda með bágindum hans og
opnar eyru þeirra með þrengingunni.
(Jb. 36, 15.)