Morgunblaðið - 28.08.2014, Síða 95
MENNING 95
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Tónlistarmaðurinn Prince mun
senda frá sér tvær breiðskífur 30.
september nk. og verða þær gefnar
út af Warner Bros, fyrirtækinu sem
hann sagði skilið við fyrir 20 árum í
kjölfar illdeilna. Prince samdi aftur
við Warner í apríl sl. og hefur fyr-
irtækið nú skilað honum
frumupptökum af nokkrum platna
hans, m.a. Purple Rain. Í tilkynn-
ingu frá Warner segir að sólóplatan
væntanlega, Art Official Age, sé
nútímabræðingur af sálartónlist,
R&B og fönki. Prince hefur þegar
flutt lög af væntanlegri plötu sinni
og hljómsveitarinnar 3rdEyeGirl,
Plectrumelectrum, á tónleikaferð
sinni Hit & Run fyrr á þessu ári.
Warner gefur út tvær plötur með Prince
Prinsinn Umslag Art Official Age.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í
Reykjavík, RIFF, hefst 25. sept-
ember nk. og stendur til 5. október
og fara sýningar fram í Háskólabíói,
Tjarnarbíói, Bíó Paradís og í Nor-
ræna húsinu auk þess sem viðburðir
af ýmsu tagi verða haldnir í Kópa-
vogi og Reykjavík.
RIFF hefur nú kynnt fyrstu tólf
myndirnar sem sýndar verða á há-
tíðinni en alls verða yfir 80 kvik- og
heimildarmyndir sýndar í ár.
Í flokki heimildarmynda verður
sýnd The War You Don’t See eftir
John Pilger. Í henni er varpað fram
spurningum um hlutverk fjölmiðla í
stríði. Pilger er margverðlaunaður
blaðamaður og veltir því m.a. fyrir
sér hvort fréttaveitur séu orðnar
órjúfanlegur hluti stríðreksturs.
„Útkoman er merkileg afhjúpun á
umbreytingu sannleikans á bak við
tjöldin,“ segir m.a. um myndina í til-
kynningu.
Í flokknum Fyrir opnu hafi verður
sýnd kvikmyndin Difret eftir eþíóp-
íska leikstjórann Zersenay Mehari.
Myndin er sannsöguleg og fjallar
um 14 ára stúlku sem er á leið heim
úr skólanum þegar menn á hestum
ræna henni. Hún nær riffli, reynir að
flýja og skýtur tilvonandi eiginmann
sinn. Lögfræðingur sem sérhæfir
sig í málefnum kvenna er fenginn til
að verja hana og ber stúlkan við
sjálfsvörn.
Fjölbreyttar vitranir
Í flokknum Vitranir verður sýnd
palestínsk-ísraelsk mynd, Villa Tou-
mat eftir Suha Araf og fjallar hún
um þrjár einhleypar kristnar systur
úr hefðarstétt Ramallah sem reyna
að finna frænku sinni kristinn eig-
inmann úr sömu stétt. Í sama flokki
verður sýnd Before I Disappear eft-
ir bandaríska leikstjórann Shawn
Christensen sem segir af Richie
nokkrum sem er við það að svipta
sig lífi þegar systir hans hringir í
hann og biður hann að gæta dóttur
sinnar í nokkrar klukkustundir. Í
kjölfarið lendir Richie í miklum
vandræðum. Einnig verður sýnd í
Vitrunum Two Step eftir Banda-
ríkjamanninn Alex R. Johnson og
segir í henni af manni að nafni
James sem kemst að því að einhver
óprúttinn náungi hefur, í hans nafni,
svikið fjármuni út úr nýlátinni
ömmu hans. Bonobo, eftir Matthew
Hammet Knott, fjallar um Judith,
háttvísa konu á miðjum aldri sem
bregst ókvæða við þegar dóttir
hennar hættir laganámi og flytur í
kommúnu utangátta hippa sem lifa
eftir sömu meginreglum og bónobó-
apar. Í sáttaleit ákveður Judith að
eyða degi í kommúnunni og fylgja
sömu reglum og hipparnir.
Borin út úr glæsiíbúð
Í flokki heimildarmynda verður
sýnd sænska myndin Penthouse
North eftir Johönnu St. Michaels og
fjallar hún um Agnetu Eckemyr sem
hefur tilheyrt þotuliðinu í New York
frá sjöunda áratugnum, flutti inn í
glæsilega þakíbúð með útsýni yfir
Central Park árið 1969. „Þegar til-
veru hennar er ógnað með útburð-
artilkynningu frá leigusalanum, sem
vill losna við hana, vill Agneta ekki
þurfa að sleppa takinu af fortíðinni
og lykilhluta eigin sjálfs,“ segir um
myndina í tilkynningu.
Aðrar myndir sem sýndar verða
eru hin færeyska Eina eftir Andrias
Høgenni, kýpverska heimildar-
myndin Kismet; The Stone River
eftir Ítalann Giovanni Donfrancesco
og í flokknum Önnur framtíð Mys-
tery of the Arctic Cairn – New Land
eftir Kyle O’ Donoghue sem er suð-
urafrísk/norsk framleiðsla. Í sama
flokki verður sýnd Walking Under
Water eftir Elizu Kubarska,
neðansjávar-heimildamynd fram-
leidd af Pólverjum og Þjóðverjum.
Frekari upplýsingar um myndir
RIFF verður að finna á vef hátíð-
arinnar, riff.is, er nær dregur.
Af sérviðburðum RIFF í ár má
svo nefna bíósýningu í sundlaug,
kvikmyndasýningar við lifandi und-
irleik, bílabíó og málþing um stríð og
frið. Og er þá fátt eitt nefnt.
Bónobó-kommúna
og fjölmiðlar í stríði
12 myndir sem sýndar verða á RIFF 2014 kynntar
Stríð Stilla úr The War You Don’t See, heimildamynd Johns Pilgers.
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
30% brotaþola segja aldrei frá
því að þeir hafi orðið fyrir
kynferðislegu ofbeldi.
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Róðarí (Aðalsalur)
Þri 16/9 kl. 20:00 Sun 28/9 kl. 20:00
Mið 24/9 kl. 20:00 Lau 4/10 kl. 20:00
LÓKAL (Aðalsalur)
Fim 28/8 kl. 19:30 Fös 29/8 kl. 19:00 Lau 30/8 kl. 19:00
Fim 28/8 kl. 21:00 Fös 29/8 kl. 21:00 Lau 30/8 kl. 21:00
Trúðleikur (Aðalsalur)
Sun 7/9 kl. 14:00 Sun 21/9 kl. 14:00
Sun 14/9 kl. 14:00 Sun 28/9 kl. 14:00
Kameljón (Aðalsalur)
Lau 6/9 kl. 20:00 Sun 21/9 kl. 20:00 Sun 5/10 kl. 20:00
Fös 12/9 kl. 20:00 Lau 27/9 kl. 20:00
Petra (Aðalsalur)
Fös 29/8 kl. 19:00 Fös 5/9 kl. 20:00
Lau 30/8 kl. 19:00 Fim 11/9 kl. 20:00
Full búð af nýjum vörum
Kringlunni 4c Sími 568 4900