Morgunblaðið - 28.08.2014, Page 96
Sköpunarverk I nefnist listaverk
eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur
sem Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri afhjúpaði í aðalsal Ráð-
húss Reykjavíkur á Menning-
arnótt sl. laugardag. Verkið er
4.20 x 3.70m, unnið með lopa á
striga árið 2013. Velgjörðarmaður
listakonunnar gaf Listasafni
Reykjavíkur verkið og var því val-
inn staður í Ráðhúsinu.
Við afhjúpunina þakkaði Kristín
borgarstjórn sérstaklega fyrir
framsýni og fyrir að vera til fyr-
irmyndar á alþjóðlegum vettvangi
með því að leyfa verki sem fjallar
um viðkvæmt tabú, þ.e. píkuna, að
hanga í húsakynnum sínum.
„Ég er stolt af að tilheyra sam-
félagi þar sem borgarstjórn þorir
að opna þannig á umræðu sem er
nauðsynleg í nútímasamfélagi, því
fátt hefur verið eins misnotað og
útjaskað gegnum tíðina og þetta
litla líffæri sem er kynfæri kvenna
og er því miður orðið algeng sam-
sömun kláms og ofbeldis. Svo ekki
sé minnst á þöggunina sem fylgir
þessum neikvæðu þáttum og
skömmina sem við eigum hins
vegar að snúa í viðurkenningu á
einu sterkasta afli sem býr í nátt-
úrunni og tengist því helgasta sem
lífið býr yfir. Kvensköp eru afl
móður náttúru, og um það snýst
verkið. Þetta afl er að þora að
segja satt, að fá að vera til en
einnig að standa vörð um varn-
arleysið sem fylgir því að vera
manneskja.“
Kristín þakkaði velgjörðarmanni
sínum fyrir að gefa Listasafni
Reykjavíkur verkið og þar með
gera það aðgengilegt almenningi.
Ekki síst væri jákvætt að verkinu
væri komið fyrir á stað ákvarð-
anatöku og valds. „Þetta ber vott
um einstakan höfðingsskap og ör-
læti og er afl sem hefur mótað
listasöguna gegnum tíðina, afl
góðra verka. Þegar ég sá verkið
komið upp hér í salnum og stóra
kortið af landinu til hliðar fannst
mér heildarmyndin fullkomin. Því
verkið fjallar einnig um hinn
hreina eld sem býr í landinu sjálfu
og í okkur öllum, eldgos fram-
kvæmdaorku og hreinnar hugs-
unar, afl til góðra verka,“ sagði
Kristín og tók fram að hún von-
aðist til að almenningur gæti leit-
að til verksins eftir gefandi orku.
Verk eftir Kristínu
Gunnlaugsdóttur af-
hjúpað í Ráðhúsinu
Sköpunarverk Kristín við verk sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur.
„Kvensköp eru afl“
Morgunblaðið/Kristinn
Samsýningin Eins og eins verður
opnuð í dag kl. 17 í Hverfisgall-
eríi, Hverfisgötu 4 í Reykjavík.
Á henni eru ný verk eftir
myndlistarmennina Bjarka
Bragason, Claudiu Haus-
feld og Hildigunni Birg-
isdóttir og eru þau
sprottin úr samræð-
um þeirra um skil-
greiningar á eig-
inleikum hluta og ólíkar
leiðir til að rannsaka stað,
eins og segir í tilkynningu.
„Upphafspunktur samtals
þeirra er hrúga af ryði sem hlað-
ist hefur upp í fjörunni á Eiðs-
granda í Reykjavík. Sorp sem hef-
ur velkst um í fjörunni áratugum
saman hefur blíðlega sogast inn í
steingerðar hrúgur og myndar
sérkennileg form sem liggja á
meðal steina í brimvarnargarð-
inum, fyrrum öskuhaugum borg-
arinnar. Þessar hrúgur og leiðir til
að skilgreina þær og flokka hafa
verið stoðkerfi samtalsins sem
tengir viðfangsefni listamannanna
og verk þeirra á sýningunni,“ seg-
ir m.a.
Listamennirnir þrír munu halda
áfram samtali sínu, taka þátt í
ráðstefnunni Art in Translation
sem haldin verður í Háskóla Ís-
lands 18. september. Á henni mun
þríeykið fjalla um verkefnið og
tengja það viðfangsefni ráðstefn-
unnar, The art of being inbet-
ween, eða Listin að vera mitt á
milli.
Upphafspunkturinn
hrúga af ryði
Eins og eins Kynningarmynd fyrir
sýningu Bjarka Bragasonar, Clau-
diu Hausfeld og Hildigunnar Birg-
isdóttur í Hverfisgalleríi.
Byltingarkenndar rannsóknir sýna að lífvirka efnið í brokkolí, sulforaphane, hindrar
hrörnun fruma og stuðlar að endurnýjun þeirra - bæði í heilanum og öllum líkamanum
Getur haft frábær áhrif á heilsu og útlit
• Hjálpar líkamanum að halda heilbrigði
Stuðlar bæði að fyrirbyggjandi heilsuvernd og uppbyggjandi áhrifum til bættrar heilsu
• Spornar gegn ótímabærri öldrun – á líkama og sál
Getur hægt á öldrunarferlinu og dregið úr sýnIlegum áhrifum öldrunar á útlitið
Einföld leið til að njóta þess áhrifaríkasta úr brokkolí
- sulforaphane ... náttúrulega yngri !
Verndaðu frumurnar þínar !
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily
Tvær á d
ag!
Sölustaðir:
Heilsuverslanir og apótek um land allt
Fjarðarkaup, Hagkaup og Melabúðin
brokkoli.is
Cognicore byggir á sulforaphane úr
lífrænt ræktuðum brokkolí-spírum að
viðbættu túrmeric og selenium
96 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Aukablað alla
þriðjudaga