Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 97
MENNING 97
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Eitthvað fyrir alla!
Heilsuborg er líkamsrækt þar sem boðið er upp á heildstæða þjónustu
í átt að betri heilsu og líðan.
Lausnina finnur þú í Heilsuborg
Hugarlausnir
Hentar fólki sem glímir við þunglyndi,
kvíða eða streitu.
• Námskeiðin hefjast mánudaginn
1. september
• Þjálfun samkvæmt forskrift hreyfiseðils
í 8 vikur
• 3x í viku:Mán., mið. og föstud.
kl. 13:00
• Fyrirlestrar og viðtal við sálfræðing
• Hópmeðferð í núvitund
Stoðkerfislausnir
Henta þeim sem erumeð einkenni frá
stoðkerfi, vilja læra á sjálfan sig og finna
sín mörk í hreyfingu.
• Hefst 1. og 2. september - 8 vikur
• 2x í viku: Þri. og fim. kl. 16:30
• 3x í viku: Mán.,mið. og fös. kl. 15:00
• Mat og ráðgjöf sjúkraþjálfara
Þjálfarar Anna Borg og
Arna Steinarsdóttir, sjúkraþjálfarar
Umsjón: Sigrún Ása Þórðardóttir, sál-
fræðingur
Elva Brá Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur og
Guðni Heiðar Valentínusson, heilsufræðin-
Orkulausnir
Henta þeim semglíma við orkuleysi,
þrekleysi, verki eða svefnvanda.
Hentar vel þeim sem vilja byggja upp
orku vegna vefjagigtar eða eftir veikindi.
• Hefst 2. september - 8 vikur
• Þri. og fim. kl. 10:00 og 15:00
• Framhaldsnámskeið sömu daga
kl. 14:00
• Einstaklingsviðtal
við hjúkrunarfræðing
Þjálfari: Linda Gunnarsdóttir, sjúkraþ-
jálfari
www.heilsuborg.is
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Opið hús!
laugardaginn
30. ágúst
milli kl. 12 og 14.
Kynningarfundur
um Heilsulausnir
kl. 14.
Myndlistarsýningin Earth Material
verður opnuð í sýningarsal Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna,
SÍM, Hafnarstræti 16, í dag kl. 17.
Á henni sýna verk sín listamenn frá
níu löndum sem dvalið hafa sl. mán-
uð í gestavinnustofum SÍM á Selja-
vegi og Korpúlfsstöðum. Þeir vinna
í ólíka miðla, allt frá málverki yfir í
dansgjörninga. Þrír gestalistamenn
SÍM, sem kalla sig Sonic Electric,
munu einnig flytja tilraunakennt
hljóðverk, „Vík í Mýrdal – an
ocean“, kl. 21 í kvöld í menningar-
húsinu Mengi, Óðinsgötu 2. Segir
m.a. um það verk að það bræði sam-
an torskiljanlega takta við tilrauna-
kenndan hávaða við lifandi hljóð-
spuna þar sem eldhúsraftæki komi
við sögu.
Forvitnilegt Gestalistamenn frá níu lönd-
um opna sýningu í sal SÍM í dag.
Sýning í SÍM og
tilraunakennt
hljóðverk í Mengi
Með ítölsku ívafi
er yfirskrift tón-
leika sem haldnir
verða kl. 20 í
kvöld í Fram-
haldsskóla Mos-
fellsbæjar og eru
liður í dagskrá
menningar-
hátíðar bæjarins,
Í túninu heima. Á
tónleikunum
verður flutt blönduð og skemmtileg
tónlist með ítölsku ívafi, að því er
segir í tilkynningu, og saman-
stendur efnisskráin af tónverkum
eftir eldri sem yngri tónskáld; allt
frá klassík og rómantík til dagsins í
dag. Fluttur verður nýr þriggja
laga söngflokkur á ítölsku eftir
flytjendur, Kristínu R. Sigurðar-
dóttur sópran og Julian Hewlett pí-
anóleikara, og verk eftir höfunda á
borð við Durante, Arditi, Tosti, Re-
spighi, Rossini, Puccini, Verdi, Sar-
tori og Julian Hewlett.
Sönghópurinn Boudoir og Ian
Wilkinson básúnuleikari verða sér-
stakir gestir á tónleikunum og er
aðgangur ókeypis.
Með ítölsku ívafi
í Mosfellsbæ
Kristín R.
Sigurðardóttir
Erlendur Sveins-
son, forstöðu-
maður Kvik-
myndasafns
Íslands, leiðir í
kvöld kl. 20
göngu þar sem
skoðuð verður
merkileg saga
kvikmyndahúsa
og kvikmynda-
sýninga í Hafn-
arfirði en hún nær aftur til upp-
hafsára kvikmyndasýninga á
Íslandi. Gangan hefst við Hafnar-
borg og er sú síðasta í Hafnarfirði í
sumar. Göngurnar hafa notið mik-
illa vinsælda og þátttaka farið fram
úr björtustu vonum, yfir 1200 tekið
þátt í þeim, skv. tilkynningu. Göng-
urnar eru samstarfsverkefni Hafn-
arborgar, menningar- og lista-
miðstöðvar Hafnarfjarðar, Byggða-
safns Hafnarfjarðar og skrifstofu
menningarmála í Hafnarfirði og
hafa notið stuðnings frá Hafn-
arfjarðarhöfn.
Síðasta menning-
argangan í kvöld
Erlendur
Sveinsson
Verkið Wilhelm Scream verður sýnt í
Kassanum í Þjóðleikhúsinu laug-
ardaginn 30. ágúst kl. 17, en sýningin
er hluti af Reykjavík Dance Festival.
Verkið er samið og dansað af Rósu
Ómarsdóttur og Ingu Huld Hákon-
ardóttur, en þær útskrifuðust báðar
sl. vor úr P.A.R.T.S. í Brussel sem
þykir einn helsti samtímadansskóli í
Evrópu, en yfir þúsund manns sækja
um skólagöngu annað hvert ár þegar
opnað er fyrir umsóknir.
Verkið fjallar um samband hljóðs
og hreyfingar. „Verkið byggist á svo-
kölluðu „Foley“ líkt og notað er í
kvikmyndum til þess að skapa hljóð
við senur. Foley-listamaðurinn stend-
ur kannski inni í sínu hljóðupptöku-
herbergi og slær umvöfðu selleríi í
borðbrún og það framkallar hljóð
sem er notað við ofbeldisfulla bar-
dagasenu,“ segir m.a. í tilkynningu.
Í sýningunni er notast við alls kyns
hluti til að framkalla hljóð og setja
saman við hreyfingar, en meðal þess
sem er notað eru keðja, snuð, gulræt-
ur, sítróna og umferðarkeila. „Við
veltum fyrir okkur eiginleikum
hljóðs. Virka þau hræðileg eða falleg
eða felst í þeim einhvers konar frá-
sögn? Við veltum því sama fyrir okk-
ur þegar kemur að hreyfingum. Og
hvernig þetta tvennt svo passar sam-
an. Hljóð og hreyfing.“
Samkvæmt upplýsingum frá lista-
konunum tveimur vísar titill verksins
í samnefnda hljóðupptöku af manni
að öskra á frekar kómískan hátt. „Sú
upptaka hefur verið notuð í ótal kvik-
myndum, m.a. notar Quentin Tarant-
ino þetta hljóð í öllum sínum kvik-
myndum, það kemur líka fram í t.d.
Star Wars-myndunum og Indiana
Jones-myndunum.“ Sýningin Wil-
helm Scream var frumsýnd í Musée
de la Danse í Frakklandi sl. haust og í
framhaldinu sýnd víðsvegar um Evr-
ópu, m.a. á samtímalistasafninu Boz-
ar í Brussel, í leikhúsinu Concertge-
bow í Belgíu sem og á listahátíðum í
Póllandi, Tyrklandi og Belgíu.
Passa hljóð og hreyfing?
Wilhelm Scream Rósa Ómarsdóttir
og Inga Huld Hákonardóttir.