Morgunblaðið - 28.08.2014, Qupperneq 98
98 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011 DUKA.IS
Flora, ný lína frá
DUKA, skreytt
draumkenndum
vatnslitamyndum
eftir sænsku
listakonuna
Malin Björklund
Ískugga ógnvænna kviku-hreyfinga undir Bárð-arbungu – og gífurlegrar að-sóknar að tónleikum Justins
Timberlakes sama kvöld er olli
nærri umferðaröngþveiti í Kópa-
vogi – sótti þriðja erlenda sinfóníu-
hljómsveitin Eldborgarsal Hörpu
heim á sunnudaginn var, eftir fyrst
Gautaborgarsveit Dudamels og síð-
an komu Berlínarfílharmóníu
Rattles 20. nóvember 2012. Sér-
kennileg tilviljun eftir á að hyggja,
þó hvorki skyldi kannski kenna
hinum rámu regindjúpum hálend-
isins né ofurvinsældum poppstjörn-
unnar um að hafa dregið úr að-
streymi að höfuðvéum klassískrar
tónlistar á Íslandi. Því þó að sæta-
nýting Eldborgar virtist ekki nema
um 80% á móti ríflega tólffaldri(!)
miðasölu á Timberlake sama kvöld,
þá telst það samt gott á nútíma-
vísu, þar sem einstaklingsímynd al-
þjóðlegs fjöldaeftirlætis vegur oft-
ast þyngra en jafnvel færustu
hóptúlkendur gömlu meistaranna.
Hvort kynningarbumbur hafi
verið nógsamlega barðar fyrir
hönd kanadísku sveitarinnar skal
ósagt látið, enda tekur vísast lengri
tíma að byggja upp forvitni um sin-
fóníuhljómsveitir en um hitt, þar eð
þær eru háðari langvinnri afspurn
(þorir maður að nefna það?) reynd-
ari og kröfuharðari hlustenda en
dugir í dægurgeiranum. Klausa á
við „Sinfóníuhljómsveit Toronto-
borgar er án efa ein fremsta sin-
fóníuhljómsveit heims“ segir varla
óinnvígðum mikið fyrsta kastið án
frekari viðmiðunar. En hvað sem
því líður þá sýnist mér að kvöldi
loknu óhætt að fullyrða, og ekki í
fyrsta skipti, að hér misstu óþarf-
lega margir af miklu.
95 manna hljómsveitin var
fimmtungi stærri en SÍ. Þó ekki
strengjadeildin sem var nánast
jafnstór og mátti merkilegt heita,
ekki sízt í lokaverkinu þar sem
strengir héldu feikigóðu jafnvægi
gagnvart aflmiklum lúðrablæstri.
Engu líkara en að þeir tækju meira
á en hér tíðkast. Eftir sem áður var
greinilega valinn maður í hverju
rúmi, og verður því miður að játa
að jafnsamtaka hópleikur á enn eft-
ir að verða regla fremur en und-
antekning hjá hérlendum kollegum
þeirra í SÍ. Samstilling Kan-
adamanna var nefnilega í einu orði
sagt frábær, og kastaði tólfum í
Sinfónískum dönsum Rakhman-
inoffs þar sem eldfrussandi snerpa
og seiðandi fágun vógu þvílíkt hríf-
andi salt að maður iðaði allur í
sæti.
Beinn túlkunarsamanburður á
SÍ og TSO fékkst í fyrsta verki
dagskrár, Orion eftir kanadíska
tónskáldið Claude Vivier (1948-83)
er SÍ flutti hér undir stjórn Peters
Oundjians 9. febrúar 2012 og sagði
mér þá „ekki mikið“. Ólíkt nú, þeg-
ar ótal viðbótarfletir komu fram og
hófu verkið í hæðir sem úrvals-
dæmi um bragðmikið nútímaverk
með víðri tilhöfðun, þökk sé litríkri
fjölbreytni og sjaldheyrðum and-
stæðum í áferð.
Fiðlukonsert Tsjækofskíjs, einn
hinna fimm frægustu frá 19. öld,
var í framúrskarandi höndum kan-
adíska einleikarans James Ehnes,
er fór jafnt með fingurbrjótafjöld-
ann sem syngjandi innileik verks-
ins eins og að drekka vatn. Réð
hvarvetna örugg gegnmúsíkölsk
túlkun í bókstaflega fullkomnu
samvægi við hljómsveitina, að
ógleymdum dáleiðandi mjúkum
Largo-þætti úr 3. einleikssónötu
Bachs sem aukalag við „hyllingu á
fæti“.
Aðra slíka hlutu TSO og stjórn-
andi hennar síðan frá blístrandi
þakklátum áheyrendum að loknu
verki Rakhmaninoffs eftir hlé, og
ekki að sökum að spyrja. „Uppi-
stönd“ hafa að vísu stundum orðið
af takmörkuðu tilefni. En núna
voru þau fyllilega verðskulduð.
Kanadamenn í toppformi
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikar bbbbb
Tsjækofskíj: Fiðlukonsert í D Op. 35.
Vivier: Orion (1979). Rakhmaninoff:
Sinfónískir dansar Op. 45. James Ehnes
fiðla; Sinfóníuhljómsveit Torontoborgar.
Stjórnandi: Peter Oundjian. Sunnudag-
inn 24. ágúst kl. 19.30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Frábær „Samstilling Kanadamanna var nefnilega í einu orði sagt frábær, og kastaði tólfum í Sinfónískum dönsum Rakhmaninoffs þar sem eldfrussandi
snerpa og seiðandi fágun vógu þvílíkt hrífandi salt að maður iðaði allur í sæti,“ segir m.a. í gagnrýni um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Toronto í Eldborg.
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Enn lengist listinn yfir
nöfn hljómsveita og tón-
listarmanna sem leika á
tónlistarhátíðinni Ice-
land Airwaves sem hald-
in verður í sextánda sinn
5.-9. nóvember nk. Til
viðbótar við þá flytj-
endur sem þegar hafa
verið kynntir til leiks
bætast nú, í erlendu
deildinni: Anna Calvi,
Ibibo Sound Machine og
Gengahr frá Bretlandi,
How To Dress Well,
Eskmo, La Luz, Horse
Thief og Vox Mod frá
Bandaríkjunum, Yumi
Zouma frá Nýja-
Sjálandi, Greys frá Kan-
ada, Byrta frá Fær-
eyjum og BNNT og
Stara Rzeka frá Pól-
landi.
Í íslensku deildinni
eru það svo Sin Fang,
Mugison, Pétur Ben,
Ylja, Kiasmos, dj. flug-
vél og geimskip, Low
Roar, Mr. Silla, Amaba-
dama, Lára Rúnars, Kira Kira, Kría Brekkan, Hafdís Huld, Boogie
Trouble, M-Band, Auxpan, Yamaho, Thor, Exos, Yagya, Octal, Ruxpin,
Amaury, Sometime, Momentum, Lord Pusswhip, Óbó, Rúnar Þórisson,
Alvia Islandia og Geislar.
Eins og greint hefur verið frá munu Flaming Lips, The Knife, The War
on Drugs og Caribou koma fram á hátíðinni í ár. Þeir sem vilja kynna sér
alla þá sem kynntir hafa verið til leiks geta gert það á icelandairwaves.is.
Anna Calvi heldur tón-
leika á Iceland Airwaves
Á Airwaves Enska tónlistarkonan Anna Calvi
hefur hlotið mikið lof tónlistargagnrýnenda í
heimalandi sínu og verið tilnefnd til verðlauna.