Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía G Walthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta“ Við vorum í söluhugleiðingum og var okkur bent á að fá RE/MAX, Alpha, til að sjá um söluna. Við sjáum ekki eftir því! Þau sáu um allan pakkann fyrir okkur. Íbúðin var seld á þremur dögum og sáu þau um allt sem snýr að sölunni. Einnig aðstoðu þau okkur við kaup á nýju fasteigninni. Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta, allt sem var sagt stóðst og er því auðvelt að mæla með RE/MAX, Alpha. Kv. Áslaug og Benni 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Brussel | Hin nýja staða sem upp er komin í samskiptum Rússlands og ríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) vegna Úkraínudeilunnar kann að hafa áhrif á þá stefnumörkun í þjóðaröryggismálum sem nú er unn- ið að á vegum ríkisstjórnarinnar. Ljóst er að miklir óvissutímar eru runnir upp í öryggismálum Evrópu vegna óbilgirni Rússa í garð Úkra- ínumanna. Þetta sagði Gunnar Bragi Sveins- son utanríkisráðherra í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í Brussel í gærkvöldi. Hann var þá á leið til fundar við aðra utanrík- isráðherra NATO-ríkjanna. Fund- inum verður framhaldið í dag og lýkur í kvöld. Það er til marks um hve Úkraínumálið skipar mik- ilvægan sess í umræðum ráð- herranna að Pavel Klimken, utan- ríkisráðherra Úkraínu, mun funda sérstaklega með þeim í dag og gera grein fyrir ástandinu í heimalandi sínu. Rætt um að stofna styrktarsjóð Meðal þess sem rætt hefur verið í aðdraganda utanríkisráðherrafund- arins er hvort NATO eigi að styrkja veikburða varnir Úkraínu með sér- stökum sjóði sem meðal annars mætti nota til að kaupa hergögn til varnar landinu. „Ég á ekki von á því að neitt verði ákveðið í þessu efni á fundinum, enda mjög skiptar skoðanir um málið,“ sagði Gunnar Bragi. Það væri stór ákvörð- un að veita ríki utan NATO hernaðaraðstoð með slíkum hætti. Það gæti orðið til að magna enn spennuna í sam- skiptunum við Rússa. „Það er ólíklegt að við Ís- lendingar yrðum þátttakendur í slíkum sjóði. En við styðjum ein- dregið rétt Úkraínu til áframhald- andi tengsla við evrópska markaði. Þetta er eitt mikilvægasta landbún- aðarland álfunnar. Við viljum leggja okkar af mörkum til efna- hagsviðreisnar í landinu og höfum verið í viðræðum um að miðla þeim þekkingu okkar á sviði jarðhitamála og sjávarútvegsmála,“ sagði hann. Gunnar Bragi sagði að sú spenna sem nú væri í samskiptum vestrænna ríkja við Rússa kallaði að óbreyttu á endurmat á öryggismálastefnu og framtíðarsýn NATO. Óvíst væri á þessu stigi hvert þetta leiddi. Málin gætu með ýmsum hætti haft áhrif hér á landi, til dæmis ef Rússar hæfu á ný eftirlitsflug herþotna í grennd við Ís- land. Hann kvaðst verða var við auk- inn áhuga á loftrýmisgæslunni hér og Bandaríkjamenn væru einnig að veita Íslandi aukna athygli. Af fundinum í Brussel heldur Gunnar Bragi til Kína ásamt ís- lenskri viðskiptasendinefnd í tilefni af því að 1. júlí næstkomandi tekur fríverslunarsamningur landanna formlega gildi. »9 Gæti teygt anga sína til Íslands  Gunnar Bragi Sveinsson segir að Úkraínumálið gæti haft áhrif á stefnumörkun um þjóðaröryggi Íslands  Endurmat á öryggismálastefnu og framtíðarsýn Atlantshafsbandalagsins framundan Gunnar Bragi Sveinsson Sérstakur gjaldmiðill tónlistarhátíð- arinnar Secret Solstice er útrunninn og ónýtur eftir að hátíðinni lauk og verður hvorki skipt í íslenskar krónur né endurnýttur á næsta ári. Einhverj- um fjölda hátíðargesta brá í brún þeg- ar hann sat uppi með verðlausa plast- peninga eftir helgina en að sögn aðstandenda tónlistarhátíðarinnar var sú staðreynd að gjaldmiðillinn fengist ekki endurgreiddur auglýst bæði þar sem hann var seldur og í há- tíðarskránni. Breski tónleikahaldarinn Jack Robinson segir „token“-kerfið notað víða erlendis en því er meðal annars ætlað að draga úr þjófnaði. Plastpen- ingana var hægt að kaupa fyrir krón- ur eða með korti á ákveðnum stöðum en sölubásarnir tóku eingöngu við greiðslu í formi hátíðarmyntarinnar. „Það gerir þetta miklu öruggara því þá þarf fólk ekki að bera á sér háar fjárhæðir né þurfa barirnir að vera með mikla peninga,“ segir Robinson. Hann bendir á að ef hægt væri að skipta myntinni út fyrir peninga væri hún jafngild þeim og jafn-eftirsókn- arverð fyrir óprúttna aðila. Plastmyntin var 250, 500, 1.000 og 2.000 króna virði en sölubásarnir fengu einungis 250 króna myntina til að gefa til baka. Robinson segir kerfið auðvelda tónleikahöldurum að halda utan um alla sölu, þar sem þeir geta fylgst með því hversu mikið af mynt er selt gestum og hversu mikilli skiptimynt er deilt út á hvern sölubás. Hann segir að á stórum tónlist- arhátíðum erlendis, t.d. Coachella í Bandaríkjunum, greiði gestir fyrir vörur og þjónustu með armbandi sem jafnframt er aðgöngumiðinn inn á há- tíðina. Þeir geti fyllt á það eftir þörf- um en ef armbandinu er stolið er hægt að gera það óvirkt. Robinson segir þetta öruggustu lausnina sem hann hafi kynnst og hún hafi verið skoðuð fyrir Secret Solstice en reynst of kostnaðarsöm. holmfridur@mbl.is Hátíðarmynt Secret Sol- stice fæst ekki endurgreidd  Kemur í veg fyrir þjófnað og auðveldar yfirsýn Morgunblaðið/Eggert Stuð Hátíðargestir skemmtu sér vel. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær þá Lýð Guðmunds- son og Sigurð Valtýsson af öll- um kröfum ákæruvaldsins í svokölluðu VÍS- máli. Þeir voru báðir sakaðir um brot á lögum um hlutafélög og Lýður var ákærður fyrir umboðssvik. Sérstakur sak- sóknari ákærði þá Lýð og Sigurð þann 11. október 2013. Lýður var ákærður fyrir brot á lögum um hlutafélög með því að hafa á árinu 2009, sem stjórnar- formaður og prókúruhafi hlutafé- lagsins Vátryggingafélags Íslands, látið félagið veita Sigurði, sem þá var stjórnarmaður VÍS, óheimilt lán að fjárhæð 58,6 milljónir króna. Sigurður var ákærður fyrir brot á lögum um hlutafélög með því að hafa sem stjórnarformaður og pró- kúruhafi VÍS ítrekað látið félagið veita einkahlutafélaginu Korki óheimil lán. Korkur var beint og síðar óbeint í helmingseigu Lýðs. Ákæruvaldið hafði ekki ákveðið í gær hvort dóminum yrði áfrýjað. Héraðsdómur sýkn- aði bæði Lýð og Sigurð í VÍS-málinu Héraðsdómur Sýknað í VÍS-máli. Frá því að NATO var stofnað árið 1949 hefur aðildarríkjum fjölg- að úr 12 í 28. Fjögur ríki til við- bótar sýna áhuga á inngöngu: Bosnía-Hersegóvína, Georgía, Makedónía og Svartfjallaland. Öll eiga þau eftir að uppfylla ýmis skilyrði til að hægt sé að fallast á aðild þeirra. Íslend- ingar hafa stutt fjölgun, en ýmis önnur ríki NATO eru efins. Fjögur ríki vilja inn RÆÐA FJÖLGUN Í NATO Hjólreiðakeppni WOW Air, WOW Cyclothon 2014, hófst í gær þegar keppendur voru ræstir út við Hörpu. Keppendur í einstaklingsflokki lögðu af stað kl. 10 og hafa 84 klukkustundir til að hjóla hringinn kringum landið en keppendur í flokki 4-6 manna liða og flokki 10 manna liða renndu sér frá Hörpu kl. 19 og 20 og hafa 72 klukkustundir til að ljúka hringferðinni. Áheit á keppendur námu rúmum 6,3 milljónum í gærkvöldi. Morgunblaðið/Golli Hjólreiðakappar leggja hringveginn undir sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.