Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 6
FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Á aukaaðalfundi Landssambands ís- lenskra útvegsmanna og á stjórn- arfundi í Samtökum fiskvinnslu- stöðva á morgun verður fjallað um stofnun nýrra heildarsamtaka í sjáv- arútvegi með sameiningu LÍÚ og SF. Ekkert hefur verið ákveðið í þessum efnum, en á fundunum á morgun verður leitað heimilda til að vinna áfram að verkefninu og í fram- haldinu er fyrirhugað að setja upp sameiginlega vinnuhópa. Á aðal- fundum sambandanna í haust er stefnt að því að taka ákvörðun um það hvort af sameiningu verður. Ímyndin ofarlega á blaði Sameining hefur verið rædd í röð- um LÍÚ frá því í febrúar og var kynnt á stjórnarfundi SF í mars. Capacent hefur unnið með samtök- unum síðustu mánuði og hefur skoð- að kosti og galla sameiningar og stofnun nýrra heildarsamtaka. Sam- starf samtakanna er nú þegar tals- vert og hefur aukist eftir að þau fluttu á sömu hæð í Húsi atvinnulífs- ins fyrir tólf árum. Að mörgu er að hyggja við samein- ingu, en, hún er þó aðeins hluti af þeim verkefnum sem unnið er að. Samhliða hafa forystumenn rætt stefnumótun til framtíðar og hvernig nálgast megi alla virðiskeðjuna í sjávarútvegi. Tilgangurinn er að auka slagkraft greinarinnar og ann- ast hagsmunagæslu á breiðum vett- vangi þar sem nýting fjármagns og þekkingar yrði enn betri og mark- vissari en nú er. Jafnframt er unnið að stefnumótun í umhverfismálum, samfélagsábyrgð og menntamálum. Ímynd sjávarútvegsins er eðlilega ofarlega á blaði í þessari vinnu. „Það má segja að í þessu felist alls- herjar endurmat og uppstokkun. Við viljum breikka umræðuna, sem hef- ur verið of þröng og horfa á veiðar og vinnslu sem heildstæða atvinnu- grein,“ sagði framámaður í sjávar- útvegi í samtali við Morgunblaðið. Innan Samtaka atvinnulífsins hafa skoðanir löngum verið skiptar um Evrópumál og aðild að Evrópusam- bandinu. Hugmyndir um sameiningu innan fiskveiða og -vinnslu munu hins vegar ekkert hafa með Evrópu- mál að gera. Þvert á móti eru hug- myndir um að vinna náið með SA og jafnvel nær en áður. Samvinna í kynningarmálum Þó nú sé einvörðungu rætt um sameiningu LÍÚ og SF gætu ný samtök hugsanlega orðið enn stærri í framtíðinni og er mörgum spurn- ingum ósvarað í þeim efnum. Fyrir- tæki í veiðum og vinnslu reka mörg hver sjálfstæða sölustarfsemi, auk þess sem sterk fisksölufyrirtæki vinna að útflutningi. Á þeim vettvangi hefur verið tals- verð samvinna að kynningarmálum í samvinnu við Íslandsstofu. Nefna má sölu á saltfiski til landa við Miðjarð- arhaf, sem fór af stað fyrir tveimur árum, og sölu á ferskum þorski til Frakklands í fyrravetur. Því má velta því upp hvort þátttaka mark- aðsfyrirtækja muni í framtíðinni verða enn virkari í nýjum samtökum ef þau verða stofnuð. Um átta þúsund starfsmenn Fiskveiðar og -vinnsla skila nú um þriðjungi útflutningstekna Íslend- inga og innan vébanda fyrirtækja í þessum greinum starfa nú um átta þúsund manns. Ef öll fyrirtæki innan sjávarklasans; í fiskeldi, mjöli, lýsi, tækni, iðnaði o. fl. gerðust aðilar að nýjum samtökum gæti fjöldi starfs- manna fyrirtækja innan vébanda þeirra orðið um 28 þúsund í óráðinni framtíð. Aukinn slagkraftur með sameiningu  Stefnt að sameiningu Samtaka fiskvinnslustöðva og Landssambands íslenskra útvegsmanna í haust  Hagsmunagæsla á breiðum vettvangi og stefnumótun til framtíðar  Endurmat og uppstokkun Morgunblaðið/Eggert Glaðbeittar Fiskverkakonur hjá HB Granda á Akranesi, en fyrirtækið er eitt það stærsta í sjávarútveginum og stundar bæði veiðar og vinnslu. Sameining var rædd fyrir 15 árum » Bæði SF og LÍÚ eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins. » Félagsmenn SF koma úr öll- um greinum fiskvinnslu og eru fyrirtækin beinir aðilar að SA. » Aðild að LÍÚ gerist hins veg- ar í gegnum tólf félög útvegs- manna allt í kringum landið. » Mörg fyrirtæki í SF og LÍÚ eru innan hvorra tveggja sam- takanna. » Sameining var rædd 1998- 99 en ekkert varð af henni þá. » Talið er að meiri alvara sé að baki hugmyndinni nú en var 1998-99. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 SVIÐSLJÓS Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is Fulltrúar í þverpólitískri stjórnar- skrárnefnd sem skipuð var síðastlið- ið haust af forsætisráðherra eru bjartsýnir á að starf nefndarinnar eigi eftir að skila árangri og sammála um að góður andi sé innan hennar. Þrátt fyrir að um þverpólitískan vettvang sé að ræða sé áherslan á það sem hægt er að ná saman um, en ekki það sem skiptar skoðanir kunna að vera um. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem stjórnarskrárnefndin boð- aði til í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í gær þar sem kynnt var fyrsta áfangaskýrsla nefndarinnar. Fleiri skýrslur eru væntanlegar en nefndinni er ætlað að vinna frum- varp að breytingum á núgildandi stjórnarskrá á kjörtímabilinu þar sem byggt verði á fyrri vinnu sem átt hefur sér stað í þeim efnum. Fjallað um fjóra málaflokka Fjórir málaflokkar hafa einkum verið til umfjöllunar í stjórnarskrár- nefndinni til þessa; möguleiki al- mennings á því að kalla eftir þjóð- aratkvæðagreiðslum, framsal á ríkisvaldi vegna alþjóðlegs sam- starfs, auðlindamál og umhverfis- vernd. Fram kom á fundinum að engar endanlegar ákvarðanir hefðu verið teknar af nefndinni en skýrslan inniheldur yfirlit yfir umræður til þessa um þessa fjóra málaflokka og þar á meðal innan nefndarinn- ar. Tilgangurinn með áfanga- skýrslunni er ekki síst að sögn Sigurðar Líndal, formanns stjórnarskrárnefndar- innar, að kalla eftir viðbrögðum frá al- menningi, en skýrsluna má nálgast á vefsíðunni Stjornarskra.is og þar má einnig koma á framfæri athugasemd- um. Stefnt er að því að frumvarp til breytinga á stjórnarskránni liggi fyrir á kjörtímabilinu en þau sjón- armið hafa einnig verið viðruð innan nefndarinnar að e.t.v. væri hægt að kjósa um breytta stjórnarskrá sam- hliða forsetakosningunum 2016. Góður andi í þver- pólitískri nefnd  Stjórnarskrárnefnd kynnti fyrstu áfangaskýrslu sína  Hvetur almenning til þess að gera athugasemdir Morgunblaðið/Eggert Stjórnarskrá Frá fundinum í gær. F.v. Valgerður Gunnarsdóttir, Birgir Ár- mannsson, Skúli Magnússon, Sigurður Líndal og Katrín Jakobsdóttir. Áætlað er að nýr Lagarfoss Eim- skips komi til Reykjavíkur 17. ágúst næstkomandi. Skipið var afhent fé- laginu í Kína í gær og tók skipstjóri þess, Guðmundur Haraldsson, við skipinu ásamt 11 manna íslenskri áhöfn. Skipið er skráð á Antigua og Barbuda. Eimskip gerði samning um smíði tveggja skipa hjá Rongcheng Shen- fei skipasmíðastöðinni í Kína í júní 2011 og var upphaflega gert ráð fyr- ir að skipin yrðu afhent á síðasta ári. Í ljósi þess að verkinu seinkaði var samið um tæplega 11 milljóna doll- ara afslátt frá upphaflegu samnings- verði skipanna eða sem nemur um 1250 milljónum króna. Var um rúm- lega 20% lækkun á samningsverði beggja skipanna að ræða að því er fram kom í tilkynningu í fyrrahaust. Viðræður eru í gangi um afhend- ingartíma seinna skipsins sem mun skýrast á þriðja ársfjórðungi. Ljóst er að afhendingin verður ekki fyrr en á næsta ári. Samsvarar leiðinni á milli póla Á leið sinni til Íslands mun Lag- arfoss hafa viðkomu í kínversku hafnarborginni Qingdao til að lesta gáma, m.a. fyrir viðskiptavini fé- lagsins í tilefni af nýjum fríverslunarsamningi Íslands og Kína, að því er segir í tilkynningu. Skipið flytur einnig 200 nýja frysti- gáma sem félagið festi kaup á í Kína. Jafnframt verða fluttir gámar til Rotterdam fyrir erlenda við- skiptavini. Skipið siglir um 11 þúsund sjómíl- ur á leið sinni til Rotterdam sem svipar til vegalengdarinnar á milli Norður- og Suðurpólsins. Áætlað er að Lagarfoss verði í Rotterdam 12. ágúst næstkomandi. Lagarfoss er 875 gámaeiningar að stærð, þar af með tengla fyrir 230 frystigáma. Burðargeta skipsins er um 12 þús- und tonn, það er 140,7 metrar á lengd, 23,2 metrar á breidd og ristir 8,7 metra. Tveir 45 tonna kranar eru á skipinu. aij@mbl.is Á heimleið Guðmundur Haraldsson skipstjóri og áhöfn hans á Lagarfossi. Nýr Lagarfoss í flota Eimskips Styrkt fyrir siglingar í ís » Nýr Lagarfoss er m.a. búinn öflugum skut- og bógskrúfum og er sérstaklega styrktur fyrir íssiglingar, með ísklassa 1A. » Lagarfoss mun leysa Sel- foss af, en það skip mun fara í önnur verkefni. » Lagarfoss er sjöunda skipið sem ber þetta nafn hjá félag- inu. » Fyrsti Lagarfossinn var þriðja skipið sem Eimskip eign- aðist og var það í eigu félags- ins frá 1917 til 1949. „Skipun stjórnarskrár- nefndar í kjölfar þjóð- aratkvæðagreiðslunnar er fáheyrð og ósvífin aðför að lýðræðinu í landinu. Með- ferð stjórnvalda og Alþingis á frumvarpinu í kjölfar þjóð- aratkvæðagreiðslunnar ber vott um klækj- astjórnmál og véla- brögð. Þau sem umgangast lýðræð- ið og þjóðarviljann með þessum hætti ættu að fást við önnur störf.“ Þetta segir Örn Bárður Jónsson sem sæti átti í stjórnlagaráði sem samdi frumvarp að nýrri stjórn- arskrá á síðasta kjörtímabili. Vísar hann til þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar um frumvarpið sem fram fór haustið 2012. Ósvífin aðför að lýðræðinu ÖRN BÁRÐUR JÓNSSON Örn Bárður Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.