Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 L 16 12 12 ★ ★ ★ ★ ★ „Besta íslenska kvikmynd sögunnar!” Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið ÍSL. TAL ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND MEÐ PAUL WALKER Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 10:10 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar TRANSFORMERS 4 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 8 - 10:10 BRICK MANSIONS Sýnd kl. 11:10 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 4:30 22 JUMP STREET Sýnd kl. 8 MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 10:20 VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5 14"Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!"-T.V., Biovefurinn.is "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Með nýja tjaldinu okkar hafa Ís- lendingar loksins eignast sinn eigin farandsirkus. Þarna er því lang- þráður draumur loksins orðinn að veruleika. Tjaldið okkar rúmar 400 áhorfendur og fullkomið hringsvið sem er níu metrar að þvermáli,“ segir Lee Nelson, sirkusstjóri Sirk- uss Íslands, um nýtt sirkustjald hópsins sem vígt verður formlega í dag með frumsýningu á fjölskyldu- sýningunni Heima er best. Að sögn Lee eiga kaup Sirkuss Íslands á sirkustjaldi sér nokkurn aðdraganda. „Þegar skandinavísku sirkushátíðinni Volcano í Vatns- mýrinni lauk sl. sumar varð okkur ljóst að við yrðum að eignast okkar eigið sirkustjald til þess að lyfta sirkusiðkun okkar og sýningar- haldi upp á hærra stig,“ segir Lee og rifjar upp að Sirkus Íslands hafi m.a. safnað fyrir tjaldinu á vef- svæðinu Karolina Fund við góðar viðtökur landsmanna. Auk Heima er best, sem er um hálf önnur klukkustund að lengd með hléi, mun Sirkus Íslands sýna S.I.R.K.U.S. sem sett er saman með yngri börnin í huga og tekur um 45 mínútur í flutningi. Lee minnir á að sirkusinn sé fyrir alla og bendir á að aðgangur sé ókeypis fyrir börn undir tveggja ára aldri á báðar ofangreindar sýningar. Þriðja sýn- ing sumarsins er Skinnsemi, en þar er um að ræða kabarettsýningu með sirkusívafi sem aðeins er ætluð fullorðnum. „Allar sýningarnar þrjár voru frumsýndar á Volcano í fyrra, en vegna takmarkaðs sýningarfjölda gátu aðeins samtals 1.200 áhorf- endur séð sýningarnar þrátt fyrir að uppselt væri á þær allar. Okkur langaði því til að gefa fleirum tæki- færi til að sjá sýningarnar,“ segir Lee og tekur fram að allar hafi sýn- ingarnar þróast milli ára og stækk- að, en hópurinn sem stendur að Sirkus Íslands æfir í um 25 klst. á viku hverri til að halda sér í formi og vinna að nýjum sýningum. Sirkus Íslands sýnir sýningarnar þrjár í tjaldi sínu á Klambratúni fram til 13. júlí, en þaðan liggur leiðin með tjaldið til Ísafjarðar, svo Akureyrar, Selfoss og Keflavíkur áður en hópurinn snýr aftur á Klambratún og sýnir 18. ágúst til 24. ágúst. Allar nánari upplýsingar um sýningarplan sumarsins eru á sirkusislands.is og midi.is. Aðspurður segir Lee að ætlunin sé að frumsýna splunkunýjar sýn- ingar á sumri hverju. Spurður hvort hægt sé að nýta tjaldið að vetrarlagi svarar Lee því játandi og bendir á að hjá Sirkus Íslands séu menn m.a. með hugmyndir um að setja upp jólasýningu í tjaldinu í desember. Tekur hann fram að tjaldið bjóði upp á ýmsa spennandi möguleika fyrir sýningar-, tón- leika- og skemmtanahald. Morgunblaðið/RAX Frumkvöðull Lee Nelson segir engar leiðbeiningar hafa fylgt tjaldinu um hvernig setja eigi það saman og því hafi menn þurft að læra af reynslunni. Draumur verður að veruleika  Sirkus Íslands vígir nýtt sirkustjald Teiknimyndin Að temjadrekann sinn, frá árinu2010, var vel heppnuð aðflestu leyti, hin besta skemmtun og hlaut fjórar stjörnur hjá ofanrituðum. Í henni sagði af víkingum sem bjuggu við mikla drekaplágu, drekar gerðu árásir á þorp þeirra og víkingarnir svöruðu fyrir sig og tókst að klófesta nokkra og nota til að þjálfa drekabana. Hiksti, sonur þorpshöfðingjans, var ekki á þeim buxunum að gerast drekabani og tókst að veiða sjald- gæfan dreka og temja hann. Hlaut sá nafnið Tannlaus. Í framhaldsmyndinni eru drek- arnir orðnir húsdýr í víkingaþorp- inu, Hiksti að nálgast tullorðinsaldur og orðinn feikilega fær dreka- flugmaður. Þeir Tannlaus eru mestu mátar og fljúga um loftin blá í leit að ævintýrum. Í einni slíkri ævin- týraferð hitta þeir fyrir ókunnuga drekaveiðimenn sem starfa fyrir ill- menni eitt allsvakalegt (sem er kostulega útlítandi, sjá mynd). Hiksti kemst að því að illmennið er að safna drekum í mikinn her og ætl- ar að gera árás á víkingaþorpið, veiða þar alla dreka og útrýma þorpsbúum. Hiksti kemst að því að illmennið er gamall óvinur föður hans og að þeir hafa lengi eldað grátt silfur. Öll von virðist úti í vík- ingaþorpinu en þá berst hjálp úr óvæntri átt frá löngu glötuðum drekatemjara sem býr í fjarska með fjölmennri drekafjölskyldu. Líkt og fyrri myndin er þessi listi- lega vel teiknuð og hugmyndaflugi teiknaranna virðast engin takmörk sett, svo skrautlegt er drekagall- eríið. Tveir ógnarstórir drekar koma við sögu (í stað eins í fyrstu mynd- inni), e.k. móðurdrekar sem aðrir drekar verða að hlýða og gætu þeir reynst fullhræðilegir fyrir yngstu bíógesti. Einhvers konar bræðingur af Godzilla og dreka þar á ferð með tilheyrandi óhljóðum og hamagangi. Það var lítið hlegið í bíósalnum sem þó var þéttsetinn fólki á besta aldri, þ.e. börnum, enda lítið um spaug í myndinni. Teiknimyndir fyr- ir börn mega vissulega vera á alvar- legum nótum en sagan þarf samt sem áður að vera bitastæð. Sú er ekki raunin í þessari framhalds- mynd, þráðurinn þynnri en í fyrri mynd, klisjan um soninn sem reynir að uppfylla væntingar strangs föður síns enn einu sinni á ferðinni og auð- vitað voðalega vondur vondi karl sem þarf að berjast við. En teikn- ararnir bæta fyrir rýra sögu með sinni fögru list, hrífandi persónu- sköpun og ægifögru landslagi. Þeir hífa myndina upp yfir meðallag, úr tveimur og hálfri stjörnu upp í þrjár. Að lokum ber að hrósa Jónsa okk- ar úr Sigur Rós fyrir hans framlag, lagið „Where No One Goes“ sem hann samdi fyrir myndina og fellur við hana eins og flís við rass sem og íslenskum leikurum sem talsetja myndina með ágætum. Vondur Illmennið í Að temja drekann sinn 2 lætur ekki litla víkingastelpu vaða yfir sig. Fleiri drekar, stærri skrímsli, þynnri þráður Smárabíó, Háskólabíó, Laugar- ásbíó og Sambíóin Álfabakka og Egilshöll Að temja drekann sinn 2 bbbnn Leikstjóri og handritshöfundur: Dean DeBlois. Leikarar í íslenskri talsetningu: Sturla Sighvatsson, Þórunn Lárusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Vigdís Pálsdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Davíð Guð- brandsson, Þór Tulinius, Urður Bergs- dóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Sig- urbjartur Atlason og Arnar Dan Kristjánsson. Bandaríkin, 2014. 102 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Listhópurinn Friends&Lovers opn- ar í dag kl. 18 sýninguna Mini- Anism í Kling & Bang galleríi að Hverfisgötu 42. Í hópnum eru myndlistar- og tónlistarmenn frá Hamborg í Þýskalandi og sýna þeir verkefni sem staðið hefur yfir frá árinu 2011. Hópurinn hefur sankað að sér listaverkum eftir vel þekkta og minna þekkta listamenn, m.a. á Íslandi. Sýningin stendur einungis í sólarhring, frá klukkan 18 í dag til kl. 18 á morgun og boð- ið er upp á lifandi tónlistarflutn- ing, listaverk frá öllum heims- hornum og ýmislegt fleira. Frekari upplýsingar má finna á this.is/ klingogbang. Ýmislegt Kynningarmynd fyrir sýningu Friends&Lovers í Kling & Bang. Sýning í sólarhring í Kling & Bang

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.