Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014
Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is
1975-2014
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við
leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
STUTTAR FRÉTTIR
● Launavísitalan
hækkaði um 0,4%
í maí frá fyrri mán-
uði og var 480,4
stig, samanborið
við 478,4 stig í
apríl. Fram kemur á
vef Hagstofu Ís-
lands að síðustu
tólf mánuði hafi
launavísitalan
hækkað um 5,2%.
Þá hækkaði vísitala kaupmáttar launa
um 0,3 prósentustig frá fyrri mánuði
og stóð í lok mánaðarins í 117 stigum.
Undanfarna tólf mánuði hefur vísitala
kaupmáttar alls hækkað um 2,7%, að
því er fram kemur á vef Hagstofunnar.
Launavísitalan hækkaði
um 0,4% í maímánuði
Laun Launavísitala
hækkar.
● Stjórn sjávar-
útvegsfyrirtækisins
HB Granda hefur
ákveðið að ganga
til samninga við
tyrknesku skipa-
smíðastöðina Ce-
liktrans Deniz
Insaat Ltd. um
smíði á þrem ís-
fisktogurum. Í til-
kynningu segir að
heildarsamningsupphæðin muni liggja
nærri 6,8 milljörðum króna. Gangi
samningar eftir er áætlað að fyrri tvö
skipin muni verða afhent á árinu 2016
en það þriðja árið 2017.
Fyrir er tyrkneska skipasmíðastöðin
með tvö uppsjávarskip í smíðum fyrir
HB Granda, að því er segir í tilkynning-
unni.
Smíða ísfisktogara fyrir
sjö milljarða króna
HB Grandi Fjárfest
fyrir sjö milljarða.
núverandi eignir standi undir því
sem þegar er búið að lofa í formi líf-
eyris og hvort framtíðariðgjöld muni
standa undir framtíðarlífeyri.
„Einhvern tímann kemur að því að
það þurfi að greiða þetta,“ sagði
Björn. „Það er mikilvægt að gera
ráðstafanir ef mögulegt er.“ Lífeyr-
issjóðir með ábyrgð sveitarfélaga
veiti að hans sögn gott fordæmi en
þeir hafi hækkað iðgjöld og gert er
ráð fyrir að þeir verði komnir í jafn-
vægi innan nokkurra ára.
Ef litið er á áfallna trygginga-
fræðilega stöðu sjóða með ábyrgð
laungreiðenda árið 2013 sést að hall-
inn er 490 milljarðar og hlutfallið
-47%, samkvæmt gögnum FME. B-
deild Lífeyrissjóðs starfsmanna rík-
isins stendur þeirra verst; hallinn er
379 milljarðar eða -64%.
Tekur 15-20 ár
að klára sjóðinn
Unnur sagði að það myndi taka
sjóðinn 15-20 ár að brenna það fé
sem í honum er. „Það er ekki handan
við hornið,“ sagði hún. Björn benti á
að svo sjóðurinn tæmdist ekki þyrfti
að bæta árlega tíu milljörðum í hann
frá og með árinu í ár.
Unnur sagði að þetta væri spurn-
ing um fjárstýringu hjá ríkinu. Við
bankahrun hefðu myndast miklar
skuldir og ekki væri skynsamlegt að
taka erlend lán til að mæta þessum
skuldbindingum.
Fram kom í síðustu ársskýrslu
FME að sú þróun hefði orðið áber-
andi á liðnu ári, að með stofnun sam-
lagshlutafélaga eða fagfjárfesta-
sjóða utan um óskráðar eignir sem
fjármögnuðu sig með útgáfu skráðra
skuldabréfa væri óskráðum eignum
umbreytt í skráðar, svokölluð verð-
bréfun. Á töflu hér að ofan má sjá
töluverða aukningu á því á milli ár-
anna 2012 og 2013.
Hærri eftirlaunaaldur
dragi úr halla lífeyriskerfis
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, segir að um sé að ræða pólitíska ákvörðun
15-20 ár Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, sagði að það myndi taka B-
deild Lífeyrissjóðs starfsmanna 15-20 ár að brenna það fé sem í honum er.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fimm stærstu lífeyrissjóður landsins
Eignir lífeyrissjóða námu 2.800 við árslok 2013
Eignir eftirlitsskyldra aðila
Við árslok 2013 í milljörðum króna
Eignir lífeyrissjóða
í samlagsfélögum og fagfjárfestasjóðum
Heimild: FME Heimild: FMEHeimild: FME
Hlutfall af eignum lífeyrissjóða
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins 17%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 16%
Gildi lífeyrissjóður 12%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 5%
Stapi lífeyrissjóður 5%
Samtals 55%
Bankar
Lífeyrissjóðir
Íbúða-
lánasjóður
Fjárfest- og
verðbréfasj.
Vátrygginga-
félög
0 500 1.50
0
2.5
00
1.00
0
2.0
00
3.0
00
3.5
00
3.200
2.800
860
350
160 Óskráð
hlutabréf í slhf.
Skuldabr. útgefin af
slhf. eða fagfjárfestasj.
Milljarðar króna: 2012 2013
70
60
50
40
30
20
10
0
Lánshæfisfyr-
irtækið Stand-
ard & Poor’s
hefur staðfest
mat sitt á fjár-
hagslegum
styrkleika
Trygginga-
miðstöðv-
arinnar. Fjár-
hagsleg
styrkleika-
einkunn félagsins er BBB- en það
er sama einkunn og S&P hefur veitt
langtímaskuldbindingum íslenska
ríkisins. Matið byggist meðal ann-
ars á sterku eiginfjárhlutfalli og
góðri afkomu á síðustu árum.
Í tilkynningu segir að matið veiti
TM tækifæri til að sækja vátrygg-
ingaviðskipti á erlenda markaði.
Staðfestir
einkunn
TM
TM Með lánshæfis-
einkunnina BBB-.
! !
"!
#$%%
$#
#
#!
"
%%%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!%!
#
%
#!!
$"
"
#
!
%%
%%
!$
!"
"$
#
$"
" "
#!"
%"
%%#
#" "
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Björn Z. Ásgrímsson sagði að
FME liti það jákvæðum augum
að lífeyrissjóðum hefði fækkað
með sameiningum. Aukin
stærðarhagkvæmni væri sjóðs-
félögum til hagsbóta. Sjóðunum
hefði fækkað um fimm í fyrra og
væru nú 27. Tæplega tíu sjóðir
væru með minna en 50 millj-
arða í eignir. Smærri sjóðum
þætti upplýsingagjöf vegna eft-
irlits of umfangsmikil, líkt og
vinna við áhættutýringu, og það
knýði þá til sameiningar.
Færri sjóðir
ÁVINNINGUR AF STÆRÐBAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri
FME, benti á tvær leiðir til að draga
úr halla í lífeyriskerfinu á blaða-
mannafundi um stöðu lífeyrissjóða í
gær. Annars vegar hækka iðgjöld og
hins vegar hækka eftirlaunaaldur.
Sú leið hafi verið farin víða. „Þetta
eru stórar pólitískar ákvarðanir,“
sagði hún.
Björn Z. Ásgrímsson, sérfræðing-
ur á greiningasviði Fjármálaeftir-
litsins, sagði að heildartrygginga-
fræðileg staða lífeyrissjóða sem
störfuðu án ábyrgðar hins opinbera
hefði í árslok 2013 verið að meðaltali
góð. Hallinn hefði að vegnu meðaltali
verið 2% eða 68 milljarðar og batnað
verulega frá bankahruni.
Mikill halli á lífeyrissjóðum
með ábyrgð frá hinu opinbera
Heildartryggingafræðileg staða
lífeyrissjóða sem eru með ábyrgð
ríkis og sveitarfélaga er hins vegar
neikvæð um 38% og nemur hallinn
596 milljörðum króna. „Þetta eru há-
ar fjárhæðir, en rétt er að nefna að
þetta er ekki skuld sem komin er á
gjalddaga, heldur mun það eiga sér
stað á næstu árum og áratugum,“
sagði Björn á blaðamannafundi hjá
FME.
Heildartryggingafræðileg staða
lífeyrissjóða segir til um það hvort