Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is 249 einstaklingar sem fóru inn á með- ferðarstofnunina Vog í fyrra voru á leið þangað í að minnsta kosti tí- unda skiptið sitt. Meðalaldur hóps- ins er 47,26 ár og eru 34 einstak- lingar í hópnum 60 ára eða eldri. Karlar voru í miklum meiri- hluta og voru þeir 183 talsins en kon- urnar 66. Grímur Atlason vakti athygli á úr- ræðaleysi fyrir þennan hóp áfengis- og vímuefnasjúklinga í grein sem hann birti á vef Herðubreiðar á sunnudag þegar hann lýsti sjúkdómi föður síns. Í greininni kallar Grímur eftir úrræðum og skorar á Dag B. Eggertsson borgarstjóra og borgar- stjórn alla að kynna sér harmleikina sem alkóhólismi getur valdið. Í greininni kemur Grímur að kostn- aði samfélagsins vegna sjúkdómsins. Honum reiknast til að kostnaður sam- félagsins vegna innlagninga föður síns á ýmsar stofnanir sé ekki undir 35 milljónum króna á örfáum miss- erum. Úrræði geta minnkað kostnað Að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis meðferðarstofnunarinnar á Vogi, er mikið gert fyrir þennan hóp en það skili ekki eins miklum árangri og það gæti gert sökum þess að í ferl- inu vanti millistig. „Fólk fær gríðarlega góða þjónustu frá heilbrigðiskerfinu og ágætis afeitrunarþjónustu en það vantar millistig fyrir þennan hóp. Það verður ekki til og mun aldrei verða nema að samvinna takist milli félagsþjónust- unnar og heilbrigðisþjónustunnar,“ segir Þórarinn. Hann segir stofnunina hafa komið með hugmyndir að breytingum en að hingað til hafi ekki fengist hljóm- grunnur fyrir þeim. „Þetta er spurning um það hvernig þú nálgast vandamálið. Ef það er nálgast einungis út frá því að það sé félagslegt vandamál þá er hægt að eyða miklum peningum í þetta án mikils árangurs. Svo er hægt að eyða ótrúlegum peningum í endurhæfingu á Vogi án þess að ná hámarksárangri. Það þarf að skoða heildarmyndina og búa til úrræði fyrir fólk þegar það er búið í afeitrun. Það þarf að koma til móts við þau og þau þurfa að fá úr- ræði við sitt hæfi,“ segir Þórarinn. Hann segir tillögur stofnunarinnar um að fá nýtt húsnæði svo að sjúk- lingarnir geti dvalið lengur hjá þeim ekki kosta mikið og að það muni borga sig strax fyrsta mánuðinn. „Flest fylki í Bandaríkjunum hafa gert hagkvæmnirannsóknir og hafa komist að því að fyrir hvern dollara sem eytt er í að afteitra og meðhöndla fólk sem er illa farið af áfengis- og vímuefnafíkn sparist peningar. Sumir segja það spara sjö dollara og aðrir segja fjóra, það er aðeins misjafnt eft- ir fylkjum,“ segir Þórarinn. Hann bætir við að þrátt fyrir að ýmislegt megi bæta varðandi úrræði fyrir sjúklinga á þessum aldri hafi heimsóknum einstaklinga þessa hóps á Vog fækkað á undanförnum árum. Mörg úrræði hjá borginni Frá Reykjavíkurborg fengust þær upplýsingar að mikið væri af fé- lagslegum úrræðum fyrir þennan hóp fólks. „Félagsleg þjónusta borgarinnar við utangarðsfólk er margvísleg. Heimilislaust fólk getur leitað í neyð- argistiskýli á vegum borgarinnar,“ segir Sigtryggur Jónsson, fram- kvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða. Hann segir að um tvö skýli sé að ræða, annað fyrir karla og hitt fyrir konur. „Gistiskýlið fyrir karla rúmar 20 menn og rekur Samhjálp skýlið sam- kvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Samhjálpar. Boðið er upp á mat- armikla súpu þegar þeir koma inn og svo upp á morgunhressingu daginn eftir,“ segir Sigtryggur. Hann segir Konukot vera rekið af Reykjavíkurdeild Rauða krossins samkvæmt samningi við Reykjavík- urborg. Þar komist átta konur fyrir hverja nótt og sé einnig boðið upp á kvöldmat og morgunhressingu. Fé- lagsráðgjafar frá þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða koma vikulega í bæði skýlin og veita ráðgjöf. Þá telur Sigtryggur upp fjöldann allan af félagslegum úrræðum borg- arinnar í viðbót og nefnir þar á meðal heimili fyrir karla og konur í vímu- efnavanda, dagsetur, borgarverði, smáhýsi, færanlega félagslega ráð- gjöf og heimili fyrir karla með geð- fötlun og vímuefnavanda. Morgunblaðið/Heiddi Alkóhól Þórarinn Tyrfingsson segir að líta þurfi á hlutina í víðara sam- hengi og samvinna verði að takast milli félags-og heilbrigðisþjónustunnar. Vantar milli- stig í ferlinu  Úrræðaleysi gagnvart áfengisvanda Þórarinn Tyrfingsson Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 Kíkið inná: heklanotadirbilar.is GÓÐIR, NÝLEGIR & TRAUSTIR GÆÐABÍLAR Á GÓÐU VERÐI Audi A1 Attraction1.4 TFSI Árgerð 2011, bensín Ekinn 41.500 km sjálfskiptur Ásett verð 3.290.000 VW Passat Comfortl.1.6TDI DSG. Árgerð 2012, dísil Ekinn 25.000 km, sjálfskiptur Fiat 500 Lounge Árgerð 2012, bensín Ekinn 11.000 km, beinskiptur Ásett verð: 4.490.000 Ásett verð: 2.390.000 Mitsubishi I-MiEV Rafmagnsbíll. Árgerð 2012 Ekinn 4.900 km, sjálfskiptur Ásett verð: 3.190.000 Komdu og skoðaðu úrvalið! VWGolf Highline 1.4TSIAT Árgerð 2011, bensín Ekinn 80.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 2.690.000 VWPassat Alltrack4Motion Árgerð 2011, dísil Ekinn 26.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 5.990.000 Kia Sportage III EX 4WD Árgerð 2013, dísil Ekinn 34.500 km, sjálfskiptur Ásett verð: 5.590.000 Mercedes-Benz B180 CDI. Árgerð 2012, dísil Ekinn 15.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 4.980.000 VW Jetta Highline 1.4 Árgerð 2012, bensín Ekinn 13.700 km, sjálfskiptur Ásett verð: 3.490.000 Toyota Land Cruiser 150 GX Árgerð 2012, dísil Ekinn 37.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 8.990.000 Kristján Þór Júlíusson, heilbrigð- isráðherra, segir of marga lenda milli skips og bryggju í kerfinu. Hann segir félagsþjónustu sveitarfélaga, almannaþjónustu og félagslega þætti af hálfu ríkisins og heilbrigðiskerfið þurfa að spila betur saman til að gæta þess að einstaklingar lendi ekki utangarðs. „Umræðan gefur okkur fullt tilefni til að félagslegi hlutinn og heil- brigðishlutinn hjá ríkinu ræði sam- an og í framhaldinu á sveit- arstjórnarstigi,“ segir Kristján Þór. Fullt tilefni til að skoða þetta HEILBRIGÐISRÁÐHERRA SEGIR OF MARGA VERA UTANGARÐS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.