Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 16
Morgunblaðið/Þórður
Veðrið hefur ekki leikið við höf-
uðborgarbúa síðustu daga. Lítið
hefur sést til sólar, en skýjaður
himinn og votviðri hafa verið ein-
kennandi fyrir seinni hluta júní-
mánaðar. Blaðamaður fór því á
stúfana og athugaði hvað fólk gerði
sér til dægradvalar á rigning-
ardögum.
Ferðamenn voru áberandi í bæn-
um en þeir voru misánægðir með
veðrið. Ekki sást til margra hjól-
reiðamanna í votviðrinu en þó létu
ekki allir veðrið stoppa sig. Sumir
stungu sér til sjósunds á meðan aðr-
ir dorguðu svo eitthvað sé nefnt.
Ljóst er að margir halda sig inni
þegar ekki viðrar vel. Viktoría
Halldórsdóttir, vaktstjóri í Laug-
arásbíói, segir að mun fleiri fari í
bíó þegar rignir. „Til þess að plana
hversu marga vantar á vakt skoð-
um við oft veðurspána. Ef það er
spáð veðurblíðu látum við starfs-
mennina mæta seinna um daginn,
enda meira að gera þá. Sem dæmi
þá erum við alltaf með opið á 17.
júní. Ef veðrið er gott er nær ekk-
ert að gera en ef rignir er nóg að
gera.“
„Rigning er besta
veðrið fyrir sjósund“
Ferðaminningar Áberandi var hversu margir ferðamenn voru í miðbænum,
en fáir Íslendingar voru á stjá. „Við komum til landsins í gær þannig að
þetta er fyrsti dagurinn okkar hérna, en við verðum fyrir vonbrigðum ef
veðrið skánar ekki. Planið okkar er nefnilega að fara hringinn í kringum
landið,“ segir austurríski ferðamaðurinn Elena, sem var ein af fjölmörgum
ferðamönnum að mynda Hallgrímskirkju.
Leikjanámskeið Þá voru krakkar á leikjanámskeiði að dorga við höfnina í
Reykjavík. „Mér finnst mjög gaman að veiða í þessu veðri,“ segir Erna, sem
er 8 ára, en hún heldur að það fiskist best í rigningunni.
Inniveður Enginn snæddi hádegismat úti við Austurvöll. „Á sumrin er oft brjálað að gera en slæmt veður fækkar
auðvitað viðskiptavinum,“ segir Júlía, vaktstjóri á Kaffi París, þar sem gjarnan er þétt setið úti á góðviðrisdögum.
Hjólreiðar Ekki sást til margra hjólreiðamanna í votviðrinu en Friðrik Ómar, starfsmaður hjá Reykjavík Bike
Tours, segir að það séu aðallega ferðamenn sem leigja hjól hjá þeim og að þeir hjóli frekar þegar veðrið er gott. Það
eiga ferðamennirnir sameiginlegt með Íslendingum.
Sjósund Sumir láta veðrið engin áhrif á sig hafa.
„Þetta er besta veðrið fyrir sjósund. Ég syndi sjó-
sund þrisvar til fjórum sinnum í viku og læt veðrið
ekki hafa áhrif á mig. Sjósund er afar gott fyrir lík-
amann,“ segir garpurinn Haraldur Gunnar Jónsson.
Forvitni Ferðamenn skoða sig um í Reykjavík. Afar vinsælt er hjá ferða-
mönnum að taka myndir af Hallgrímskirkju er hún gnæfir yfir Skólavörðu-
stíginn. Þykir það falleg sjón í öllu veðri.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014