Morgunblaðið - 25.06.2014, Síða 17

Morgunblaðið - 25.06.2014, Síða 17
0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Verið velkomin í heimsókn! Opið virka daga kl.10-18 Texas Torino Lyon Sófar í öllum stærðum 30% 1 ÁRS AFMÆLI Á BÍLDSHÖFÐA 18 AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SÓFUM /SÓFASETTUM *Í VÖLDUM ÁKLÆÐUM Verð áður 333.900 kr. frá233.730kr. Fossvogssund fer fram á morgun, fimmtudaginn 26. júní, kl. 17:30. Þá gefst sjósynd- urum og öðrum kostur á að synda yfir voginn til Kópavogs og til baka með báta- fylgd. Leiðin yfir voginn er um 600 metrar og má reikna með að sjórinn verði um 13 gráður. Þeir sem synda aðra leiðina verða teknir upp í bát Kópavogsmegin og þeim skutlað til baka. Sundið er öllum opið og það kostar ekkert að taka þátt í því. Skráning fer fram í Nauthólsvík kl. 17 og svo hefst sundið kl. 17:30. Synt yfir Fossvoginn á fimmtudaginn Sjósund Fossvogs- sund er á morgun. Landsmót skáta 40+ verður haldið um næstu helgi á Úlfljótsvatni, dag- ana 27.-29. júní. Folf, golf, veiði og kaffihúsastemning er meðal dag- skráratriða. Þótt 40+ finnist í heiti mótsins eru áherslur í dagskránni fyrir aldurshópinn frá 22 ára og upp úr, segja aðstandendur móts- ins. Landsmótið er opið öllum eldri skátum, fjölskyldum þeirra og vel- unnurum. Landsmót af þessari gerð var fyrst haldið í fyrra. Markmið mótsins er að skapa vettvang fyrir eldri skáta til að koma saman og endurnýja vinskap- inn. Gömlu góðu skátafélögin og skátaklíkurnar eru hvött til að halda hópinn og fjölmenna á móts- stað. Morgunblaðið/Kristinn Skátar Eldri skátar hittast á Úlfljótsvatni um helgina á landsmóti 40 ára og eldri. Landsmót skáta 40+ á Úlfljótsvatni Stjórnsýsla og stjórnarhættir í smá- ríkjum nefnist opið málþing sem fer fram í dag í Háskóla Íslands. Rætt verður um smáríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, smáríki og Evr- ópusambandið og Ísland eftir hrun. Aðalfyrirlesari er Per Lægreid, prófessor við Háskólann í Bergen, en fyrirlestur hans nefnist: Umbæt- ur í stjórnsýslu: Noregur í evrópsku samhengi. Málþingið stendur frá kl. 13 til 16:30 og fer fram í stofu 132 í Öskju HÍ. Málþing um stjórn- sýslu í smáríkjum Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Við teljum gríðarlega mikil tæki- færi geta verið til staðar í lagningu sæstrengs. Það er alls ekki tíma- bært að fullyrða um arðsemi sæ- strengsins að svo stöddu. Stærsta spurningin núna er hvernig samning bresk stjórnvöld eru tilbúin að gera, og hversu mikið yrði afgangs sem skilaði sér til Íslands. Sem stendur bjóða Bretar mjög hátt verð fyrir raforku í slíkum samningum,“ segir Gústaf Adolf Skúlason fram- kvæmdastjóri Samorku, um gagn- rýni á sölu raforku frá landinu í gegnum sæstreng til Bretlands. Dr. Baldur Elíasson, fyrrver- andi yfirmaður orku- og umhverf- ismála hjá sænsk-svissneska orku- risanum ABB, sagði í Morgunblaðinu í fyrradag lagningu strengsins „glapræði“. Baldur nefndi að ef strengurinn yrði lagður þá yrði hann sá lengsti í heiminum og á miklu dýpi. Ef hann myndi bila, sem er óhjákvæmilegt, þá yrði viðgerðarkostnaðurinn hár. „Vissulega er bæði kostn- aðarsamt að leggja strenginn sem og að gera við hann. En íslenski rík- issjóðurinn myndi ekki leggja fram fjármagnið heldur félag sem rekur strenginn. Ef strengurinn liggur niðri þá er ekki seld mikil orka. En nú er ekki tímabært að fullyrða um arðsemina og hvað rynni hingað til okkar, ef til stórra viðgerða kæmi. Engir samningar liggja enn fyrir,“ segir Gústaf. Baldur talaði einnig um að Ís- land myndi varla eiga orku til að sjá íbúum fyrir raforku þegar horft er fram í tímann. Vatnsaflsvirkjanir reistar? Í þessu samhengi bendir Gústaf á að Ísland sé sveigjanlegur raf- orkugjafi í vatnsafli. „Tækifæri okk- ar liggja í sveigjanlegri raf- orkuafhendingu og hér er endurnýjanleg raforka. Við gætum þess vegna flutt raforkuna inn, t.d. á nóttunni þegar hún er á lægra verði og selt út á háu verði þegar eft- irspurnin er meiri. Þetta eru kostir vatnsaflsins,“ segir Gústaf. Hann bendir á að það eigi eftir að kanna hvaða áhrif þetta hefði á Ísland og hvort nýjar vatnsaflsvirkj- anir yrðu reistar til að anna eft- irspurn eftir raforku. Fagna allri umræðu „Við fögnum allri umræðu um verkefnið, það er áhugavert en mörgum spurningum er enn ósvarað um tæknilega útfærslu og áhættu,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, um gagnrýni Bald- urs á lagningu sæstrengsins. Hörður segir ummæli fyrrver- andi starfmanns ABB koma á óvart í ljósi þess að fyrirtækið hafi unnið að skýrslu um sæstrenginn. Í henni kemur fram að verkefnið er tækni- lega framkvæmanlegt. Ósamræmi sé á milli þess sem Baldur segi og þess sem er í skýrslunni. „Mikil þróun hefur verið í sæ- strengjum undanfarin ár. Bæði hafa verið lagðir sæstrengir sem fara á tvöfalt það dýpi sem við færum mögulega á ef til þess kæmi. Eins er búið að leggja strengi á landi sem fara tvöfalda þá vegalengd,“ segir Hörður. Hann ítrekar þó hversu tæknilega krefjandi verkefnið sé og því mikilvægt að gefa því góðan tíma líkt og raunin sé. Þá bendir Hörður á að ekki sé rétt að raforkuverð erlendis sé lágt líkt og Baldur segi. „Rarforkuverð í Bretlandi er mjög hátt. Þeir semja nú um raforkuverð frá nýju kjarn- orkuveri fyrir yfir 150 dollara á megawattstund.“ Eins segir Hörður þá fullyrð- ingu ekki rétta að við þurfum meiri orku til eigin nota. „Nú þegar eru um 80% af orku sem við framleiðum flutt út í formi áls, járnblendis og þess háttar vara. Öll frekari orku- vinnsla á Íslandi verður flutt út í formi málma eða eins og Norðmenn hafa gert, flutt orkuna út í formi sæ- strengja,“ segir Hörður. Ótal spurningum ósvarað um sæstreng Sæstrengur Starfsmenn sænsk-svissneska orkurisans ABB.  Ekki tímabært að fullyrða um arðsemi sæstrengsins Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.