Morgunblaðið - 25.06.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 25.06.2014, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Örtröð 6-12 ára stúlkur flykktust í Smáralind í gær í von um að verða valdar til að sitja fyrir á myndum í hárgreiðslubókina Frozen, sem Disney og Edda USA gefa út í Bandaríkjunum. Golli Ég hef sagt félögum mínum í Sjálfstæð- isflokknum það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að ég sé óþol- inmóður að eðlisfari. Þolinmæði fékk ég ekki í vöggugjöf og því á ég erfitt með að sætta mig við að mál gangi ekki hratt fyrir sig. Þetta á ekki síst við þegar kem- ur að því að hrinda í framkvæmd hugsjónum sem ég hef barist fyrir alla tíð. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fagnaði árs afmæli fyrir réttum mánuði. Á þessu eina ári hefur ýmislegt áunnist og þar skiptir miklu að andrúmsloftið í þjóðfélaginu er allt annað – óvild í garð einstakra atvinnugreina eða stétta hefur vikið fyrir skilningi á sameiginlegum hags- munum fyrirtækja og launafólks. Mesti árangurinn er í eilífðarglím- unni um jöfnuð í ríkisfjármálum. Bjarna Benediktssyni fjár- málaráðherra tókst að tryggja að fjárlög yfirstandandi árs voru af- greidd án halla og raunar eru vís- bendingar um að töluverður afgang- ur verði. Þá hafa fyrstu skref í lækkun skatta verið tekin. En óþolinmóður maður vill meira. Það á eftir að ráðast í uppskurðinn á ríkiskerfinu – slíkur uppskurður verður ekki gerður á síðasta ári kjör- tímabils heldur í upphafi. Í þessum efnum er því langlundargeð löstur en ekki kostur. Einföld stefnuyfirlýsing – verkefnalisti Eftir alþingiskosningarnar 27. apr- íl á liðnu ári var öllum ljóst að Fram- sóknarflokkurinn og Sjálfstæð- isflokkurinn myndu ganga til samstarfs í ríkisstjórn. Það var því ekki tilviljun að ég skrifaði grein hér í Morgunblaðið aðeins fjórum dögum eftir kosningar þar sem bent var á að ekki væri nauðsynlegt að hafa stjórn- arsáttmála flokkanna langan eða ítarlegan. Ég taldi rétt að sátt- málinn væri einföld stefnuyfirlýsing – verk- efnalisti yfir þau brýnu mál sem biðu nýrrar ríkisstjórnar á fyrstu mánuðunum. Í óþreyju minni setti ég saman drög að verkefnalist- anum. Ég gróf listann, sem var langt í frá tæm- andi, upp fyrir skömmu og gerði við hann nokkrar athugasemdir. Verkefni: Innleiddur skattaaf- sláttur vegna íbúalána frá og með 1. júlí 2013 og um leið verði heimilt að nýta mánaðarlegan séreign- arsparnað til að greiða niður höf- uðstól íbúðalána. Árangur: Hugmynd sjálfstæð- ismanna um skattaafslátt náði ekki fram að ganga en framsóknarmenn höfðu betur og samþykkt var nið- urfærsla (leiðrétting) höfuðstóls. Hins vegar var samþykkt að ein- staklingar geti nýtt séreignarsparn- aðinn líkt og Sjálfstæðisflokkurinn barðist fyrir. Verkefni: Gengið frá samningum við kröfuhafa föllnu bankanna. Hugs- anlegur hagnaður ríkisins af samn- ingunum nýttur annars vegar til að rétta enn frekar við fjárhagsstöðu heimilanna og hins vegar til að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Árangur: Samningar hafa ekki verið gerðir en Bjarni Benediktsson hefur af skynsemi komið í veg fyrir að ríkið blandist inn í samningana líkt og kröfuhafar hafa ítrekað reynt. Verkefni: Tímasett áætlun um af- nám gjaldeyrishafta í áföngum kynnt innan 60 daga. Árangur: Engin tímaáætlun liggur fyrir en ég hef sannfærst um að ekki verði hægt að afnema höftin með þeirri stjórnsýslu sem Seðlabankinn hefur stundað undanfarin ár. Ein for- senda afnáms gjaldeyrishafta, sem er eitt stærsta hagsmunamál lands- manna, er breytt stjórnkerfi pen- ingamála og ný yfirstjórn. Verkefni: Úttekt á stöðu ríkissjóðs af óháðum aðilum. Henni lokið eigi síðar en í september 2013 og nið- urstaða hennar kynnt almenningi. Árangur: Því miður var þessi út- tekt ekki gerð. Það hefði verið mik- ilvægt fyrir almenning að fá ná- kvæmar upplýsingar um stöðu ríkissjóðs, skuldir, skuldbindingar og eignir. Eftirlitið lifir góðu lífi Verkefni: Áætlun um uppskurð á eftirlitskerfi hins opinbera, það ein- faldað með endurskoðun regluverks og laga, kostnaður lækkaður. Árangur: Hagræðingarnefnd rík- isstjórnarinnar lagði fram tillögur um sparnað í ríkisrekstri og nokkra uppstokkun í eftirlitskerfinu, en þær hafa ekki náð fram að ganga nema að litlu leyti. Verkefni: Jafnræði í lífeyrismálum landsmanna tryggt á kjörtímabilinu. Lögð fram tímasett áætlun um leið- réttingu á kjörum aldraðra og ör- yrkja. Árangur: Hugmyndir um að jafna rétt landsmanna í lífeyrismálum eiga langt í land. Einn hópur landsmanna býr við ríkistryggð lífeyrisréttindi á sama tíma og aðrir þurfa að sæta því að lífeyrir er skertur ef illa tekst til við ávöxtun og þurfa auk þess að greiða fyrir ríkisábyrgð hinna í formi hærri skatta. Tímasett áætlun um leiðréttingu á kjörum aldraðra og öryrkja liggur ekki fyrir, en á liðnu ári tók rík- isstjórnin ákvörðun um að afturkalla að hluta skerðingar Jóhönnu- stjórnarinnar. Nú er unnið að endur- skoðun laga um almannatryggingar og stefnt að því að leggja fram frum- varp á komandi vetri. Verkefni: Gripið til neyðarráðstaf- ana til að tryggja heilbrigðisþjónustu um land allt. Áætlunum um byggingu nýs Landspítala frestað ótímabundið. Heildarendurskoðun gerð á skipulagi heilbrigðiskerfisins í samráði við heil- brigðisstéttir og sveitarstjórnir. Á grundvelli endurskoðunar verður gerð sérstök fjárfestingaráætlun er nái til landsins alls. Árangur: Þrátt fyrir þröngan hag ríkissjóðs voru útgjöld til heilbrigð- ismála aukin töluvert á þessu ári. Heilbrigðisráðherra vinnur að end- urskipulagningu þar sem grunnurinn er uppbygging heilsugæslu. Áætlun um nýjar byggingar Landspítala er háð því að fjármögnun sé til staðar og þar kemur lánsfé ekki til greina sam- kvæmt yfirlýsingu ráðherra. Verkefni: Auðlegðarskatturinn af- numinn. Árangur: Yfirstandandi ár er síð- asta ár auðlegðarskattsins. Mislagðar hendur og óvissa Verkefni: Gerðir langtímanýting- arsamningar um fiskveiðiauðlindir og sátt mynduð um stjórnkerfi fiskveiða. Árangur: Enn er deilt og enn er óvissa um framtíðina sem er óþolandi fyrir útgerðarfyrirtæki. Ráðherra voru mjög mislagðar hendur sumarið 2013 við breytingar á lögum um veiði- gjöld og aftur á vorþingi 2014. Verkefni: Fjögurra ára áætlun um lækkun tekjuskatts fyrirtækja og einstaklinga lögð fram samhliða fjár- lagafrumvarpi 2014. Árangur: Engin slík áætlun hefur verið gerð. Verkefni: Tryggingagjald lækkað fyrir lok júní næstkomandi. Gjaldið ekki hærra en 5,34% í árslok 2014. Árangur: Á þessu ári lækkaði tryggingagjaldið um 0,1 prósentustig og verður 7,59%. Gjaldið lækkar um 0,1% prósentustig til viðbótar á árinu 2015 og 0,14 prósentustig á árinu 2016. Með þessum breytingum er allt að 4 milljörðum króna létt af íslensku atvinnulífi. Verkefni: Áætlun um sölu ríkis- eigna lögð fram með fjárlaga- frumvarpi 2014 og jafnframt gefin út yfirlýsing um að allar tekjur af sölu þeirra renni til að greiða skuldir rík- isins. Árangur: Engin áætlun hefur litið dagsins ljós og ekki liggur fyrir hvort unnið sé að henni. Verkefni: Fjármálaregla um út- gjöld ríkisins innleidd fyrir lok ársins þannig að útgjöldin verði ekki hærri en sem nemur ákveðnu hlutfalli af landsframleiðslu. Árangur: Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um op- inber fjármál. Verði frumvarpið að lögum komast á strangar fjármála- reglur um afkomu- og skuldaviðmið sem lögbinda að ríkissjóður verði að jafnaði rekinn með afgangi og að skuldir ríkisins fari ekki yfir 45% af landsframleiðslu hverju sinni. Það vantar hins vegar að setja þak á út- gjöld ríkisins. Verkefni: Stjórnkerfi peningamála breytt. Seðlabankinn og Fjármálaeft- irlitið sameinuð í eina nýja stofnun. Árangur: Enginn en verið er að endurskoða lög um Seðlabanka Ís- lands. Þá hefur staða seðla- bankastjóra verið auglýst. Verkefni: Aðildarviðræðum við Evrópusambandið hætt og þjóð- aratkvæðagreiðsla boðuð fyrir lok kjörtímabilsins. Árangur: Í stað þess að afgreiða málið strax í upphafi kjörtímabilsins lét utanríkisráðherra reka á reið- anum. Ríkisstjórnin lenti í miklum vandræðum og Sjálfstæðisflokkurinn hefur borið kostnaðinn. Enn er ESB- málið óafgreitt svo furðulegt sem það er. Líklega var ekki raunhæft að ætl- ast til að ríkisstjórn næði að hrinda í framkvæmd öllu því sem ég setti fram 1. maí á síðasta ári en þá var ekki enn búið að mynda stjórnina formlega. En það er eðli hins óþol- inmóða að láta raunsæi ekki þvælast fyrir sér þegar gerðar eru kröfur sem sumum finnast ósanngjarnar en byggjast þó ekki á öðru en sjálfstæð- isstefnunni. Eftir Óla Björn Kárason » Það er eðli hins óþol- inmóða að láta raunsæi ekki þvælast fyrir sér þegar gerðar eru kröfur sem sumum finnast ósanngjarnar. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Athugasemdir frá óþolinmóðum manni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.