Morgunblaðið - 25.06.2014, Side 27

Morgunblaðið - 25.06.2014, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 honum sem önnur móðir sem hann bæði elskaði og virti. Í ræðu sem hann hélt í tilefni af hundrað ára afmæli systur sinnar sagðist hann hafa átt í mesta basli með að velja sér eiginkonu því hann hefði borið allar konur saman við Ásu systur sína. Mamma dó fyrir þremur mánuðum á hundraðasta og þriðja æviári og Jónas tók dauða hennar afar nærri sér. Á þessum árum áttu ekki allir sveitakrakkar kost á að stunda nám og þótt Fremstafellssystk- inin væru öll námfús var hann sá eini sem lauk háskólanámi. Hann varð síðar einn fremsti og farsæl- asti fræðimaður þjóðarinnar og fyrsti forstöðumaður Árnastofn- unar á Íslandi. Ég deildi með frænda mínum brennandi áhuga á Íslendinga- sögunum og þegar ég tók mér fyrir hendur að semja brúðuleik- sýningu úr Egilssögu fór ég vita- skuld í smiðju til hans. Þá sagði hann mér merkilega sögu. Þegar hann var sex eða sjö ára, þá var vinnumaður í Fremstafelli sem var sögumaður af guðs náð. Jón- as lagði það á sig að vakna snemma á morgnana í hvaða veðri sem var til að fara með hon- um í fjárhúsin og fékk að launum ofurlítinn bút í hvert skipti af Eg- ilssögu. Þannig vaknaði áhugi hans á sögunum og það sem á eft- ir kom var kannski bara eðlilegt framhald. Jónas var skemmtilegur mað- ur og hægt að gleyma sér stund- unum saman í fjölskylduboðum á tali við hann. Hann ávarpaði mig alltaf sem elsku frænku og ég á eftir að sakna hans hlýja faðms. Við Ragnar sendum Sigríði og þeirra mörgu afkomendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hallveig Thorlacius. Að Jónasi móðurbróður mín- um gengnum er hið síðasta af gömlu Fremstafellssystkinum horfið af þessum heimi. Jónas var yngstur af þeim sem komust á legg: Fimm systur og tveir bræð- ur. Jónas var 13 árum yngri en móðir mín og 9 árum eldri en ég. Hann sagði sjálfur að hann væri nær því að vera bróðir minn en frændi, og víst er um það að við ólumst nánast upp saman. Eins lengi og ég man eftir fór mamma með okkur „heim“ á hverju vori. Jónas tengist því fyrstu bernsku- minningum mínum. Ég man hve ég dáðist að móð- urbræðrum, Jonna og Jónasi, og elti þá á röndum. Ég á þeim að þakka fyrstu kynni mín af Nób- elsskáldinu. Heimsljós var að koma út og bræður höfðu fundið persónum sögunnar hliðstæður í vinum og kunningjum. Sjálfir voru þeir Júst og Nasi, elsku vin- ir Ljósvíkingsins. Hús skáldsins var fyrsta bók Laxness sem ég las. Jónas hóf nám í 1. bekk MR 13 ára og fluttist þá til okkar í Aust- urbæjarskólann. Hann bjó hjá okkur þangað til hann fór til Kaupmannahafnar og að lokinni dvöl þar. Síðar strjáluðust fundir. Við stofnuðum eigin heimili hittumst helst í fjölskylduboðum og skipt- umst á jólakortum. Frændi var ótrúlega afkastamikill. Hann kenndi, vann við fornritaútgáfu, þýddi leikrit og önnur bók- menntaverk, vann á Handrita- stofnun og varð forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar. Hann heimti handrit af Dönum, skrifaði fræðirit og skáldsögur og flutti fyrirlestra um íslenskar fornbókmenntir. Oft var Sigríður með í för og studdi mann sinn dyggilega. Ekki settist Jónas í helgan stein er hann lét af störf- um en hélt áfram fræðistörfum og fornritaútgáfu og einbeitti sér að því að rekja fótspor norrænna manna vestur um haf. Fór marg- ar ferðir til Nýfundnalands í því skyni. Síðustu áratugi jukust sam- skipti okkar frændsystkina, hann fékk enn eitt embætti, gerðist málfarsráðunautur minn. Ég vann við þýðingar og stundum vantaði orð eða vafi lék á mál- notkun. Þá lá beint við að hringja í doktor í fræðunum. Ávallt reyndist hann hollráður. Fyrir alllöngu hafði ég þýtt bók, átti ólesna síðustu próförk og taldi létt verk. Próförkin kom, ég opn- aði umslagið og leist ekki á blik- una. Allt útkrotað, varla nokkur setning hafði hlotið náð fyrir aug- um yfirlesara. Sjálfstraust mitt hrundi eins og spilaborg. Aðeins eitt þrautaráð, leita til Jónasar. Rakti honum raunir mínar og var boðin velkomin á Oddagötuna. Þar tók Sigríður á móti mér með kaffi og svo hófst lesturinn. Frændi lét mig strika út hverja leiðréttinguna á fætur annarri. „Þetta hefði Jón Helgason ekki viljað sjá.“ Jónas Hallgrímsson segir. „Ég hljóp létt í spori til for- leggjara míns.“ Minn vísi frændi hafði lagt blessun sína yfir verk mitt og ég hafði fengið Jón Helgason og Jónas Hallgrímsson í lið með mér. Aldrei hef ég efast um hug- myndir frænda míns um búsetu norrænna manna í Vesturheimi og vona að fornleifafræðingar finni haldbærar sannanir fyrir kenningum hans. Ég kveð minn góða frænda með þakklæti fyrir langa sam- fylgd, viss um að hann hefur sofn- að glaður við lestur Laxdælu. Sigríði og fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Kristín R. Thorlacius. Þegar ég hugsa til Jónasar Kristjánssonar, frænda míns, kemur afi minn, Jónas frá Hriflu, upp í hugann. Kannski var Jónas sonurinn sem afi eignaðist aldrei, en hvað um það, hann lét sér ávallt mjög annt um þennan bróðurson sinn. Margt sameinaði þá. Þeir voru af traustum þing- eyskum bændastofni, fóstraðir í menningu sem á rætur í allri Ís- landssögunni. Báðir höfðu þeir ást á sögu og bókmenntum og vilja til ferðalaga um veröld víða. Íslendingasögurnar voru runnar Jónasi frænda í merg og bein, hann hafði numið þær af vörum afa síns áður en hann varð læs. Handritin, þjóðararfurinn, urðu starfsvettvangur Jónasar við Árnastofnun í Kaupmanna- höfn og Reykjavík. En hann fékkst einnig við kennslu, fyrst hjá föðurbróður sínum við Sam- vinnuskólann. Að frumkvæði afa þýddi hann bæði Rómaveldi og Grikkland hið forna eftir Will Durant, alls fjögur bindi, sem komu út á vegum Menningar- sjóðs á árunum 1963-79. Í loka- bindinu þakkar Jónas konu sinni, Sigríði Kristjánsdóttur, sem hafði stutt hann að kalla mætti við hvert fótmál. Enginn sem til þekkir efast um sannleiksgildi þeirra orða. Um þýðinguna sagði Sverrir Kristjánsson í ritdómi að málfærið væri „í senn tígulegt, látlaust og létt á fæti og mann grunaði aldrei að hér væri um þýðingu að ræða“. Á áttræðis- afmæli afa ákvað sýslunefnd Suð- ur-Þingeyinga að gefa út afmæl- isrit og bað Jónas Kristjánsson að annast útgáfu ritsins og semja æviágrip J.J., en Jónas ákvað að skrifa persónusögu hans. Eftir lát afa 1968 bjó Jónas til prent- unar bókina Samferðamenn. Minningaþætti eftir Jónas Jóns- son. Jónas sagði mér að hann hefði lokið við ókláraða grein eft- ir afa, því að hann hefði þekkt rit- hátt hans út í hörgul. Þegar ég handfjatla bókina sem kom út 1970 og les formálann átta ég mig á því að það er greinin um Krist- ján Jónsson, bróður afa og föður frænda. Hún mun vera „hinzta verk þess manns sem verið hefur afkastamesti rithöfundur Íslands frá upphafi bókaldar og allt til þessa dags“. Jónas nefndi það oft við mig að hann ætlaði að end- ursemja Íslandssögu afa, þá kennslubók sem hefur orðið lang- lífust kennslubóka hér á landi. Fyrir tveimur árum kom út síð- asta verk Jónasar, Söguþjóðin. Í formála segist hann hafa viljað „gera nýtt verk um íslenska forn- öld, í sama stíl og verk frænda míns, en hlutlausara og ætlað fullorðnum ekki síður en börnum. Ég hugsaði mér að taka til eft- irbreytni málfar hans og stíl, eins og ég hafði leitast við að gera í öll- um ritverkum mínum allt frá ungum aldri“. Jónas nefnir tvo merka rithöfunda sem notuðu fornsögur sem heimild með glæsilegum árangri, Sturlu Þórð- arson og Snorra Sturluson föður- bróður hans. Ég hafði á orði við Jónas að þeir afi væru eins konar spegilmynd Snorra og Sturlu. Hann sagðist vona að fleiri sæju það, og brosti sínu fallega og hlýja brosi. Þótt hann væri kom- inn undir nírætt hafði hann alla tíð einstaklega unglegt yfirbragð og síkvika hugsun. Við afkomendur Jónasar frá Hriflu vottum Sigríði og börnum þeirra Jónasar djúpa samúð. Gerður Steinþórsdóttir. Kaldakinn er ekki sérlega hlý- legt örnefni, en samt yljar það um hjartarætur þeim sem þar eiga uppruna sinn. Hver í annars hjarta hrærir er sagt að Sigurður á Fosshóli hafi sungið undir lagi Bellmans. Jón Jónsson í Fremstafelli gaf út ljóðabók sem bar hið fagra nafn „Hjartsláttur á þorra“. Nöfn bænda í sveitinni voru ekki tilþrifamikil fyrir og um miðja 20 öld. Þeir hétu Krist- ján eða Jón, nema einstaka Jónas til tilbreytingar. Í Fram-Kinn voru Kristján í Fellsseli, Kristján á Finnsstöðum (afi minn), Krist- ján á Halldórsstöðum og Kristján í Fremstafelli í einfaldri röð, flestir kallaðir Stjáni. Enn einn Kristjáninn var Jóhannesson, síðast bústjóri í Hriflu, faðir Sig- ríðar sem lifir mann sinn. Úr þessari sveit kom Jónas Jónsson frá Hriflu, síðar annar Jónas Jónsson frá Ystafelli, og Jónas Kristjánsson frá Fremstafelli, sem við kveðjum í dagi. Móðir hans var Rósa Guðlaugsdóttir, og út á hana kallaði Jónas mig alltaf frænda. Ég kann ekki að rekja þann skyldleika, og of seint að spyrja hann um það. En hitt veit ég að milli Finnsstaða, Fremsta- fells og Ystafells lágu gagnvegir. Skóginum í Kinnarfelli var skipt milli Ystafells og Fremstafells, en Finnsstaðir áttu Finnsstaða- dal. Svo allir höfðum vér okkur til ágætis nokkuð. Kynni mín við Jónas byrjuðu þegar ég hóf nám í íslensku og ég tók að venja komur mínar í Árna- stofnun, en með setu okkar beggja í Íslenskri málnefnd varð samstarfið nánara. Ég átti að heita formaður, en fyrir sátu á bekk Bjarni Vilhjálmsson, Þór- hallur Vilmundarson, Baldur Jónsson og Jónas. Jónas taldi til frændsemi við mig eins og áður sagði, en hann hafði líka að eigin sögn glímt við Aðalgeir föður- bróður minn þegar þeir gengu til prests á Ljósavatni, og þótt hvor- ugur væri hávaxinn hafði Aðal- geir víst betur í glímunni. Jónasi var afar hlýtt til Árna föður míns, og naut ég þess í öllum samskipt- um og Jónas sagði mér margar sögur af honum. Vinskapur var mikill með fjölskyldunum. Jón, bróðir Jónasar, giftist Gerði föð- ursystur minni og veit ég ekki betur en ég hafi verið skírður við það tækifæri heima á Finnsstöð- um, þann 17. júní 1947. Sameig- inleg kartöflurækt með Jonna og Gerði í suðurhala Kinnarfells er minnisstæð. Á gangi í Vesturbænum hin síðari ár minnti Jónas mig stöð- ugt á gamlar myndir úr Kinn af bónda að ganga við fé ellegar að kanna slægjur á útengi að leita að bletti sem kroppa mætti til að drýgja heyjaforðann til vetrarins. Að leiðarlokum þakka ég honum góða samfylgd, vinsemd og ætt- rækni og margan skemmtilegan fundinn og spjallið. Síðast þegar hann sagði frá því, sitjandi á bekk á Ægisíðunni, að Ingjaldur faðir Hauks í Garðshorni hefði haft fyrir reglu að tyggja hvern bita af nesti sínu í smalamennsku tólf sinnum, enda kjarngott harð- meti, slátur og harðfiskur. Við Arna sendum Sigríði og fjölskyldunni einlægar samúðar- kveðjur. Kristján Árnason frá Finnsstöðum. Heimkoma íslensku handrit- anna frá Danmörku markaði tímamót í sögu hins unga lýðveld- is. Eftir stranga baráttu fyrir af- hendingu þeirra reyndi nú á Ís- lendinga sjálfa að hugsa um þau, rannsaka og miðla. Það kom í hlut Jónasar Kristjánssonar að leiða það verkefni og til þess var hann búinn miklum kostum. Hann var afburðafræðimaður og mikill verkmaður, ósérhlífinn og fylginn sér, en jafnframt fé- lagslyndur og örlátur, sjarmer- andi sögumaður sem hreif fólk með sér. Jónas varð forstöðumaður Árnastofnunar árið 1971, sama ár og fyrstu handritin, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók, komu heim síðasta vetrardag. Til eru margar óborganlegar myndir frá komu handritanna þar sem rekja má ferðalag bókanna frá því að þær eru bornar á land og inn í lögreglubílinn, þar til Jónas kemur þeim fyrir í galtómri handritageymslunni í Árnagarði. Næstu árin birtust reglulega myndir af honum að sýna erlend- um tignarmönnum handritin í litlu sýningarherbergi í Árna- garði og þannig varð hann andlit handritanna hér heima. Jónas var með djúpar rætur í íslenskri menningu til sveita og var heimanfylgjan úr Kinninni sterk. Sagnaarfurinn var í hans huga ekki aðeins viðfangsefni fræðimanna heldur lifandi arfur og snar þáttur í lífi þjóðarinnar um aldir. Hann vildi miðla hand- ritunum, sögum og kvæðum, til íslensks almennings og umheims- ins alls og lagði þar sjálfur drjúga hönd á plóg með því að skrifa að- gengilegar bækur um handritin og íslenskar miðaldabókmenntir sem þýddar voru á erlend tungu- mál og fóru víða. Sögurnar höfðu djúp áhrif á hann sjálfan og urðu til tvær skáldsögur sem spruttu af sagnaauði miðaldanna. Jónas var hugsjónamaður. Hann beið ekki eftir að verkin kæmu til hans heldur tók til sinna ráða. Hann var alinn upp í anda aldamótakynslóðarinnar á síð- ustu öld, innblásinn af anda Jón- asar frá Hriflu, föðurbróður síns, sem hann dáði mjög. Bókin Sögu- þjóðin sem kom út fyrir tveimur árum, þar sem Jónas segir sögu þjóðveldisins með því að rekja ís- lensku fornsögurnar, er rituð í anda Íslandssögu frænda hans. Þar birtist rík þrá Jónasar að segja sögurnar eins og hann hafði heyrt þær sem ungur strákur. Hugur hans hvarflaði líka heim á æskuslóðirnar þegar minnst var 1000 ára afmælis kristnitöku á Ís- landi. Þá lyfti hann upp merki sveitunga síns Þorgeirs Ljós- vetningagoða og vann að bygg- ingu kirkju á Ljósavatni. Þar er altarismyndin náttúran sjálf, gluggi sem opnar faðminn á móti sveitinni. Þó Jónas hætti formlegum störfum við Árnastofnun fyrir tveimur áratugum, var hann sí- starfandi til síðasta dags. Vinnu- gleði hans var smitandi, hugurinn síleitandi að krefjandi rannsókn- arefnum og áhuginn á nýjum kynslóðum fræðimanna jafn mik- ill og áður. Viðfangsefnin á seinni árum voru stór í sniðum, rétt eins og hann væri ungur maður í upp- hafi starfsferils. Einbeittur leit- aði hann að lausn Vínlandsgát- unnar. Hann fór í níu ferðir til Ameríku og taldi sig hafa fundið staðinn þar sem Þorfinnur karls- efni reisti sér bæ. Sögur hans af þeim ferðum voru eins safaríkar og frásögur af ferðum hetjanna í Íslendingasögunum. Rétt fyrir andlátið var hann með í smíðum grein um Vínland sem birtast mun í greinasafni hans um forn- sögurnar. Hann var hin síðari ár vakinn og sofinn yfir öflugu út- gáfustarfi Fornritafélagsins og sló aldrei slöku við, og eftir nokkrar vikur kemur út útgáfa hans á eddukvæðunum. Jónas Kristjánsson átti ham- ingjuríka, gjöfula og bjarta ævi. Hann naut Sigríðar konu sinnar í öllu sem hann tók sér fyrir hend- ur. Þau voru sem einn maður. Samstarfsmenn, stúdentar jafnt sem fullþroska fræðimenn, hér heima og erlendis, þakka gest- risni þeirra og rausn að leiðarlok- um. Öllum var tekið sem jafningj- um. Síðasta sögustundin á níræð- isafmæli hans í apríl í kaffistof- unni í Árnagarði verður lengi í minnum höfð. Eins og jafnan áð- ur var Jónas miðpunktur veisl- unnar, umvafinn vinum og sam- starfsmönnum. Hann var sögumaður af guðs náð, brosið fyllti andlitið og augun tindruðu. Við skynjuðum íslenska frásagn- arlist fornsagnanna með því einu að hlusta á hann segja frá. Mynd- irnar frá þessu fallega síðdegi fanga töfrastund. Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar. Sjötíu og fimm ár eru liðin, síð- an kynni okkar Jónasar Krist- jánssonar hófust, en þá tók hann gagnfræðapróf utan skóla og settist í þriðja bekk Menntaskól- ans í Reykjavík. Framan af fór lítið fyrir þessum hægláta þing- eyska sveitapilti, þótt skarpleiki hans og námsgáfur leyndu sér ekki. Það sem í honum bjó varð svo öllum ljóst, þegar hann þýddi leikritið sem flutt var á herranótt síðasta vetur okkar í skóla af mik- illi snilld. Leiðir skildi með okkur um skeið á háskólaárunum, en eftir að við vorum báðir aftur bú- settir í Reykjavík tókum við upp þráðinn að nýju í samstilltum hóp bekkjarsystkinanna úr skólanum gamla. Jónas varð einn af félög- unum í lestrarklúbbnum Skalla- grími, þar sem við hittust viku- lega í nærri hálfa öld og lásum saman góðar bókmenntir, gamlar og nýjar. Aldrei hafa þó samskipti okkar verið nánari en síðustu tuttugu árin, eftir að við höfðum velt af okkur reiðingi krefjandi embætt- isstarfa. Við höfðum þá báðir ver- ið í stjórn Fornritafélagsins um hríð og beittum nú kröftum okkar að því að efla útgáfustarfsemi fé- lagsins. Var þáttur Jónasar í því ómetanlegur, en hann lagði mikla vinnu í ritstjórn margra binda sem komu út á þessum árum, bæði Biskupa sagna og Konunga sagna. Mest um vert er þó að hann hóf fyrir allmörgum árum undirbúning að útgáfu Eddu- kvæða á vegum félagsins. Var hann fyrir nokkru búinn að ganga endanlega frá texta kvæð- anna ásamt rækilegum skýring- um, en Vésteinn Ólason ritar for- mála að útgáfunni. Því miður entist Jónasi ekki aldur til að sjá þetta mikla verk komið á prent, en væntanlega mun það birtast snemma á haustmánuðum. Mörgum gæti fundist störf Jónasar fyrir Fornritafélagið ær- in verkefni fyrir mann sem á að vera sestur í helgan stein eftir annasama starfsævi, en því fer fjarri að hann hafi látið þar við sitja. Á þessum árum sinnti hann mörgum öðrum fræði- og rit- störfum sem of langt yrði upp að telja, en þó má til dæmis nefna að fyrir aðeins tveimur árum gaf hann út bókina Söguþjóðina, ágætis yfirlitsrit um forna menn- ingu Íslendinga, einkum ætlað yngri kynslóðinni. Öll verk Jón- asar báru vitni brennandi áhuga hans á fræðigrein sinni. Hann var að eðlisfari glaðlyndur og óáreit- inn, en fylgdi fast fram skoðunum sínum, þegar honum þótti nokk- uð við liggja. Jónas var gæfumaður í einka- lífi sínu og þau hjónin, hann og Sigríður, höfðu búið sér yndislegt heimili þar sem vinum þeirra var tekið með opnum örmum. Þar átti hann líka það athvarf og stuðning sem gerði honum kleift að vinna að hugðarefnum sínum fram á sína síðustu daga þrátt fyrir þverrandi líkamlegt þrek og ýmsar skráveifur ellinnar. Hann gat áreiðanlega með sanni sagt, eins og Björn Halldórsson frá Sauðlauksdal, að „síst þeim lífið leiðist sem lýist þar til út af deyr.“ Jóhannes Nordal. Í örfáum orðum langar mig að kveðja öðlinginn Jónas Krist- jánsson. Honum kynntist ég þeg- ar Aðalbjörg dóttir hans varð mágkona mín, kona Helga bróð- ur. Ég fann mig strax velkomna á heimili þeirra Sigríðar, fyrst á Sunnubrautinni og síðar á Odda- götu 6 og móttökurnar alltaf á einn veg, innilegar. Nokkrum sinnum var ég hjá þeim á gaml- árskvöld og það voru skemmtileg kvöld. Þar ríkti gleði og maturinn gerður af meistarans höndum, þ.e. Sigríðar. Undir miðnætti var farið út og áramóta- og ættjarð- arlög sungin hárri raustu meðan flugeldar lýstu upp loftið, þessu hafði ég ekki vanist og þótti mér þetta alveg frábært. Það var í senn gott og fræð- andi að vera í návist Jónasar þar sem hann gaf sér alltaf góðan tíma til að spjalla og fræða en var einnig áhugasamur um mína hagi. Þegar ég stofnaði fjölskyldu fann ég svo vel að við áttum öll vináttu hans og velvilja. Hann fylgdist vel með okkur og sýndi einlægan áhuga á því sem við höfðum fyrir stafni og börnunum okkar var hann hlýr og áhuga- samur um þeirra hagi hverju sinni. Jónsi vann nokkrum sinn- um hjá þeim Sigríði á Oddagöt- unni og hann minnist þeirra stunda með mikilli gleði. Honum fannst gott að vinna fyrir þau þar sem þau voru afar þakklát og létu ánægju sína með verk hans óspart í ljós. Það var líka dekrað við hann í mat og ekki skemmdi fyrir að Jónas gaf sér góðan tíma til að ræða málin og fræða. Það er öllum kunnugt að Jónas var mikill fræðimaður og óþrjót- andi viskubrunnur en í mínum huga var hann fyrst og fremst mikill fjölskyldumaður. Hann var kærleiksríkur fjölskyldufaðir og bar mikla umhyggju fyrir fólkinu sínu og var stoltur af því enda rík ástæða til. Sigríði og allri fjöl- skyldunni vottum við samúð okk- ar og minningin um góðan vin mun varðveitast í hjörtum okkar. Anna Árnadóttir og fjölskylda. „Enn er saga Íslands skráð, enn er takmarkinu náð, Jónas er sagnasjóður. Enn er hugur ern sem fyrr enn fær ritsnilld fagran byr, Jónas er fornmálsfróður.“ (Hj.Þ) Þessi orð voru mælt til hans þegar vinahópurinn hittist á heimili þeirra hjóna í tilefni 90 ára afmælis Jónasar í vor. Vina- hópurinn hefur komið saman um 60 ára skeið, í fyrstu sem hann- yrðahópur en síðari ár til að njóta enn betur samverunnar. Minnis- stæðar eru ferðir okkar norður á Melrakkasléttu, vestur til Breiðafjarðar, um Borgarfjörð og síðast en ekki síst í sumarbú- staðinn þeirra á Þingvöllum. Á heimili Sigríðar og Jónasar var alltaf gott að koma, þar voru bókmenntir og listir í hávegum hafðar. Þau áttu miklu barnaláni að fagna, uppeldi og menntun hafði forgang á myndarlegu heimili þeirra hjóna. Þar ríkti mikil rausn og einstök gestrisni. Jónas var mikið prúðmenni og hæverskur, væntumþykja hans var einlæg og brosið hlýtt. Ljúf- lyndi fræðimannsins og næmleiki hans var alveg einstakt til að SJÁ SÍÐU 28

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.