Morgunblaðið - 25.06.2014, Side 34

Morgunblaðið - 25.06.2014, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Benedikt Sigurðsson vinnur í Bílanausti í sumar og er í iðn-aðarverkfræði við Háskóla Íslands. „Ég verð í Bláa Lóninu fram yfir miðnætti á tónleikum, þannig að afmælisdagurinn byrjar í raun í þar. Fjöldi tónlistar- manna mun koma fram, t.a.m. Dj Margeir. Annars verður þetta bara venjulegur vinnudagur og síðan ætla ég út að borða með fjöl- skyldunni, sem er mjög huggulegt,“ segir Benedikt, sem er 21 árs í dag, um afmælisdaginn. Benedikt er mikill tískuspekúlant og veit hvað hann syngur í þeim málum. Hann telur sumarskyrtuna vera ómissandi. „Ég fékk í af- mælisgjöf frá fjölskyldunni dökkbláan, tvíhnepptan rykfrakka frá Jör. Síðan keypti ég bleika Oxford sumarskyrtu frá Ralph Lauren um daginn, sem er mjög flott,“ en Benedikt heldur mikið upp á bandaríska tískurisann Ralph Lauren. „Kakíbuxur eru ekki dottnar úr tísku í sumar, þó þær leiki minna hlutverk en fyrri ár, en áhersl- an hefur frekar færst yfir á litríkar chinobuxur, svo sem dökkbláar og rauðar.“ Þá hefur Benedikt nýlega byrjað í Crossfit. „Eftir að hafa verið í maraþoni þá er ég með vissa gerð af þoli. Núna vil ég komast í fjöl- hæfara form og bæta á mig vöðvum þannig að ég er byrjaður í Crossfit.“ isb@mbl.is Benedikt Sigurðsson er 21 árs í dag Tískuspekúlant „Kakíbuxur eru ekki dottnar úr tísku í sumar, þó þær leiki minna hlutverk en fyrri ár,“ segir Benedikt. Keypti bleika Ox- ford sumarskyrtu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Konráð fæddist 12. sept- ember kl. 19.30. Hann vó 3.718 g og var 53,5 cm langur. Foreldrar hans eru Lilja Konráðsdóttir og Jón Ericsson. Nýr borgarari Kristjana S. Leifsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík, fyrr- verandi húsmóðir og bóndi á Brúarreykjum, er níræð í dag. Eiginmaður hennar, sem nú er látinn, var Þorsteinn Sigurðs- son. Afkomendur þeirra eru þrjár dætur, níu barnabörn og sjö barna- barnabörn. Árnað heilla 90 ára H araldur fæddist í Reykjavík 25.6. 1954 og ólst þar upp á Mel- unum. Hann var í Melaskóla og Haga- skóla, lauk stúdentsprófum frá MR, stundaði nám í lögfræði við HÍ og lauk þaðan embættisprófi í lögfræði og stundaði framhaldsnám í afbrota- fræði við Florida State University. Á æskuárunum var Haraldur í tón- listarnámi, lærði á blásturshljóðfæri og lék með Lúðrasveit drengja undir stjórn Páls Pampichler Pálssonar. Á háskólaárunum var Haraldur m.a. í sumarstarfi hjá lögreglunni í Reykjavík. Hann var aðstoðarmaður forstjóra Íslenska álfélagsins hf. 1984-86, lögmaður við embætti Rík- islögmanns 1986-88, forstjóri Fang- elsismálastofnunar ríkisins 1988-97, varalögreglustjóri við embætti Lög- reglustjórans í Reykjavík 1997-98 og er ríkislögreglustjóri frá 1998. Haraldur var fulltrúi Vöku í Stúd- Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri – 60 ára Börnin þeirra Haraldar og Brynhildar. Talið frá vinstri: Matthías, Anna, Svava og Kristján. Valdsmannslegur og greindur - en hnyttinn Á slóðum útilegumanna Haraldur og Brynhildur í Ódáðahrauni. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón                                                         ! "#  $    %        & !            ! '#  ()** !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.