Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 38

Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Starfsstyrkjum Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, til ritstarfa var úthlutað í gær. Auglýst var eftir umsóknum um starfsstyrki Hagþenkis í apríl og barst 71 umsókn til félagsins. Til ráðstöfunar voru 13 milljónir. Í úthlutunarráði Hagþenkis 2014 sátu Guðný Hallgrímsdóttir sagn- fræðingur, Þorgerður H. Þorvalds- dóttir kynjafræðingur og Kolbrún S. Hjaltadóttir, kennari og formað- ur nefndarinnar. Niðurstaða úthlut- unarráðs var að 31 verkefni hlýtur starfsstyrk. Tíu verkefni fengu hæsta styrk sem er 600 þúsund krónur, en höf- undar þeirra eru Arndís S. Árna- dóttir, Arnþrúður Ingólfsdóttir, Björg Sveinbjörnsdóttir, Sigurlaug Hreinsdóttir og Þóra Björg Sigurð- ardóttir, Árni Heimir Ingólfsson, Birgir Hermannsson, Guðrún Sveinbjarnardóttir, Harpa Björns- dóttir, Jakob Þór Kristjánsson, Jón Yngvi Jóhannsson, Unnur Guðrún Óttarsdóttir og Vigfús Geirdal. Eitt verkefni hlaut 500 þúsund króna styrk og eru höfundar þess Guðrún Ingólfsdóttir og Þórunn Sigurð- ardóttir. Sex verkefni hlutu 400 þúsund króna styrk og eru höfundar þeirra Auður Ingvarsdóttir, Árni Daníel Júlíusson og Axel Kristinsson, Halldóra Arnardóttir, Hjörleifur Stefánsson, Sigrún Pálsdóttir og Trausti Ólafsson. Þrettán verkefni fengu 300 þús- und króna styrk, en höfundar þeirra eru Anna Dóra Antonsdótt- ir, Ágúst H. Bjarnason, Bjarki Bjarnason, Eiríkur K. Björnsson, Hrafnkell Lárusson, Margrét El- ísabet Ólafsdóttir, Marta Guðrún Jóhannesdóttir, Sigrún Helgadóttir, Sólfríður Guðmundsdóttir, Sólveig Einarsdóttir og Elínborg Ragn- arsdóttir, Sóley Dröfn Davíðsdóttir, Svanhildur Kr. Sverrisdóttir og Vil- mundur Hansen. Eitt verkefni hlaut 200 þúsund krónur og er höfundur þess Salvör Gissurardóttir. Þá hlaut Anna María Björns- dóttir handritsstyrk að upphæð 200 þúsund krónur, en alls bárust sex umsóknir um handritsstyrk. Starfsstyrkir Hagþenkis 2014 Morgunblaðið/Styrmir Kári Styrkþegar Allir voru að vonum glaðir að taka við styrkjum en alls var úthlutað 31 starfsstyrk að þessu sinni.  Alls barst 71 umsókn  13 milljónir til ráðstöfunar  31 verkefni styrkt Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við spilum norrænan djass, enda erum við all- ir Norðurlandabúar, en erum þó undir smá áhrifum frá amerískri þjóðlagatónlist. Við leggjum mikla áherslu á laglínuna, þ.e. að lögin séu falleg og áheyrileg,“ segir gítarleikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson um tónlistina á ný- útkominni plötu sinni sem nefnist Nordic quar- tet. Á plötunni er að finna níu frumsamin lög Andrésar Þórs í útsetningum kvartetts hans sem tekin voru upp í Ósló sumarið 2013. Platan er gefin út af útgáfufyrirtækinu Dimmu hér á Íslandi en kemur á sama tíma út í Þýskalandi, Austurríki og Sviss á vegum þýsku útgáfunnar Nordic Notes Með Andrési Þór leika á plötunni þeir And- ers Lønne Grønseth á tenórsaxófón og bassa- klarinett, Andreas Dreier á kontrabassa og Er- ik Nylander á trommur. Að sögn Andrésar Þórs kynntust þeir Dreier á námsárum sínum í Hollandi. „Ég kynnt- ist Anders í gegnum samstarf mitt við Andreas, en við spil- uðum á fyrstu plötu Andreasar, Stew, sem gef- in var út 2009. Við spiluðum svolítið saman í framhaldi af útgáfu þeirrar plötu og mig lang- aði til að spila meira með þeim. Ég fékk þá því til Íslands árið 2012 þar sem við lékum frum- samið efni eftir mig á Jazzhátíð í Reykjavík, en síðar sama ár og vorið 2013 héldum við nokkra tónleika í Noregi með sömu efnisskrá,“ segir Andrés Þór og rifjar upp að sig hafi langað til að búa til norrænt band, en Grønseth er Norð- maður og Dreier er Dani. „Báðir búa þeir og starfa í Noregi eins og Svíinn Nylander,“ segir Andrés Þór og tekur fram að kvartettinn hafi strax smollið vel saman. „Hópurinn nær að framkalla einmitt þann hljóm sem ég var að leita að, þ.e. þennan nor- ræna hljóm þar sem mikil áhersla er á hið lag- ræna.“ Spurður hvort til standi að bæta í hóp- inn fulltrúum fleiri Norðurlanda svarar Andrés Þór kíminn: „Hver veit. Kannski væri næsta skref að bæta finnskum trompettleikara og færeyskum píanóleikara við hópinn og gera þetta að sextett.“ Getur skoppað í allar áttir Spurður um lagasmíðar sínar segist Andrés Þór hafa samið slatta af lögum plötunnar með meðleikara sína í huga. „Ég mæti með útskrif- aðar nótur sem við vinnum síðan út frá. Í djass- músík eru oft ákveðnir hlutir sem eru nið- urnjörvaðir á sama tíma og opið er fyrir spuna þar sem allir hljóðfæraleikararnir þurfa að hlusta hver á annan innan fyrirfram ákveðins ramma. Samstarfsmenn mínir hafa því mikið að segja um lokaútkomu laganna,“ segir Andrés Þór og tekur fram að meira fari fyrir spunanum á tónleikum, því dagsformið, tónleikarýmið og stemningin meðal áhorfenda hafi allt mikil áhrif á lokaútgáfuna. „Það má segja að við göngum alltaf út frá sama stökkpallinum, en síðan getur þetta skoppað í hvaða átt sem er. Það er það sem gerir þetta svo skemmtilegt.“ Nordic quartet er fjórða plata Andrésar Þórs og því liggur beint við að spyrja hvort hún sé beint framhald af fyrri verkum hans eða hvort það kveði við nýjan tón. „Ég held að nýja platan kallist á við síðustu plötu mína, Mónókróm. Þar var ég að byrja að nota önnur hljóðfæri en bara gítarinn, t.d. pedal steel gítar, dóbró og lap steel sem og wurlitzer, celeste, harmóníum, og mellotron, til að framkalla hljóðheim sem er ekki dæmigerður fyrir djassband. Ég er í sömu hugleiðingum á nýju plötunni.“ Gjafmildur bæjarlistamaður Að sögn Andrésar Þórs hyggst hann fylgja plötunni eftir með útgáfutónleikum og tónleika- ferðalagi um landið, en Dreier og Grønseth eru væntanlegir til landsins í dag. Þar sem Nyland- er átti ekki heimangengt sest Einar Scheving við trommurnar. Fyrstu tónleikarnir verða á Græna hattinum á Akureyri í kvöld kl. 21. Síð- an leikur kvartettinn á Bryggjunni kaffihúsi í Grindavík annað kvöld kl. 21, í Stykkishólms- kirkju föstudaginn 27. júní kl. 21 og í Sláturhús- inu á Egilsstöðum laugardaginn 28. júní kl. 20, en tónleikarnir eru hluti af Jazzhátíð Egils- staða á Austurlandi (JEA). „Tónleikaferðinni lýkur með stórum útgáfu- tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði sunnudag- inn 29. júní kl. 21. Ég ætla að hafa frítt inn á þá tónleika í tilefni þess að ég var útnefndur bæj- arlistamaður Hafnarfjarðar í apríl sl.,“ segir Andrés Þór og tekur fram að það hafi komið sér ánægjulega á óvart þegar honum var tilkynnt um útnefninguna. „Þetta er góð viðurkenning á því sem maður hefur verið að fást við síðustu ár. Þetta er eins og stórt klapp á bakið, sem efl- ir mann enn frekar í því að leggja sitt af mörk- um til að efla menninguna í bænum.“ Þess má geta að tónleikarnir í Bæjarbíói eru jafnframt opnunartónleikar Jazzklúbbs Hafnarfjarðar sem Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar stendur fyrir. Morgunblaðið/RAX Viðurkenning „Þetta er eins og stórt klapp á bakið,“ segir Andrés Þór Gunnlaugsson um útnefningu sína sem bæjarlistamaður Hafnarfjarðar. Áherslan er á hið lagræna  Andrés Þór fagnar fjórðu plötu sinni með útgáfutónleikum í Bæjarbíói og tónleikaferð um landið  Djassplatan Nordic quartet kemur samtímis út á Íslandi, í Þýskalandi, Austurríki og Sviss

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.