Morgunblaðið - 11.09.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það hefur verið rigning og þoku-
slæðingur síðustu tvo til þrjá daga,
dimmt á köflum, en allt hefur þetta
bjargast,“ segir
Lilja Loftsdóttir,
fjalldrottning
Gnúpverja. Fjall-
menn ljúka smöl-
un í dag og reka
að Fossnesi. Síð-
asti áfanginn í
Skaftholtsréttir
er á föstudag og
hefjast rétt-
arstörf klukkan
11.
Fjallmenn Gnúpverja héldu af
stað á miðvikudaginn í síðustu viku
og hafa því nú þegar verið rúma
viku á ferðinni. Fyrstu dagana
smala þeir með fjallmönnum
Skeiða- og Flóamanna, í svokallaðri
Norðurleit og Sandleit. Þegar leiðir
skildi á þriðjudagsmorgun fékk
Lilja liðsauka til að smala Gnúp-
verjaafrétt.
Þrjátíu haust á fjalli
Lilja hefur farið á fjall frá 1982,
að undanskildum tveimur haustum,
og er því í sinni þrítugustu ferð.
Síðustu ellefu árin hefur hún stjórn-
að fjallmönnum Gnúpverja og ber
því titilinn fjalldrottning. Hún vill
ekki taka undir að hún stjórni með
harðri hendi. „Ég vona að ég sé
sanngjörn. Þetta er eins og hver
önnur vinna, einn verður að ráða,
en svo þarf samspil margra til að
allt gangi upp.“
Réttardagurinn er mikill hátíð-
isdagur í sveitinni. Í Skaftholts-
réttir kemur fjöldi fólks, ekki aðeins
til að draga þau tæplega fjögur þús-
und fjár sem koma af fjalli. „Þeir
sögðu það krakkarnir í unglinga-
vinnunni í sumar að réttardagurinn
væri jafnvel meira spennandi en jól-
in,“ segir Lilja.
Fleiri stórar réttir eru á Suður-
landi fyrir og um helgina, að því er
fram kemur í réttaskrá. Þannig er
réttað í Hrunarétt á morgun, kl. 10.
Á laugardag eru Tungnaréttir í
Biskupstungum og Reykjaréttir á
Skeiðum og hefjast þær klukkan 9.
Allt hefur bjargast
Fjalldrottning Gnúpverja segir að vel hafi smalast þrátt
fyrir rigningu og þoku Víða réttað á Suðurlandi
Morgunblaðið/Ómar
Fjársafn rekið inn Margt fólk mætir í réttir til að fylgjast með og taka þátt í
réttarstörfum. Réttað verður á fjórum stöðum á Suðurlandi um helgina.
Lilja
Loftsdóttir
Akrafell, gámaflutningaskip Sam-
skipa, sem strandaði undir Vattar-
nesskriðum milli Reyðarfjarðar og
Fáskúðsfjarðar aðfaranótt 6. sept-
ember síðastliðins, er enn í höfn á
Eskifirði. Dæling á sjó úr vélarrúmi
skipsins er enn ekki hafin, sam-
kvæmt upplýsingum Önnu Guðnýjar
Aradóttur, forstöðumanns markaðs-
og samskiptamála Samskipa.
„Ástæða þess að dæling á sjó úr
vélarrúminu er enn ekki hafin er sú,
að það er verið að vinna í því að þétta
skipið eftir lekann sem kom að því
við strandið,“ sagði Anna Guðný í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Anna Guðný segir að Samskip hafi
fengið til liðs við sig tæknimenn frá
útlöndum, sem séu að vinna að verk-
inu. „Þetta er víst frekar viðkvæmt
mál og ekki alveg einfalt að dæla
sjónum í burtu úr vélarrúminu. Þeg-
ar þéttingu er lokið þannig að sér-
fræðingarnir telja að fullnægjandi
sé, verður hafist handa við að dæla
sjónum úr vélarrúminu,“ sagði Anna
Guðný.
Hún segir að farmur þessa 500
gáma flutningaskips, Arnarfellsins,
sé enn um borð og ekki liggi fyrir
hvort og þá hversu mikið tjón hafi
orðið á farminum, sem sé marg-
víslegur. Ekki liggi heldur fyrir mat
á heildartjóni Samskipa af strand-
inu. „Við erum samt sem áður frekar
vongóð um að farmurinn sé
óskemmdur,“ sagði Anna Guðný.
agnes@mbl.is
Ljósmynd/Jens G. Helgason
Akrafell Akrafell á strandstað aðfaranótt laugardagsins 6. september.
Dæling úr vélarrúmi
Akrafells ekki hafin
Margbreytilegir og fallegir litir gleðja augað þegar haustið gengur í garð.
Hlýindi hafa verið á landinu og mældust mest 19,9 stig á Seyðisfirði í gær. Í
dag er spáð dálítilli rigningu vestanlands og sjö til 17 stiga hita á landinu.
Haustið og veturinn framundan
Morgunblaðið/Ómar
Útivist í mildu haustveðri
Samtök launafólks eru ósammála
um forgangsröðun á því hvort mik-
ilvægara sé að lengja fæðingarorlof
eða hækka hámarksgreiðslur úr
Fæðingarorlofs-
sjóði.
Þetta kemur
fram í minn-
isblaði velferð-
arráðuneytisins
sem lagt var fyrir
ríkisstjórnarfund
í gær. Í minn-
isblaðinu segir að
í umræðu um
málaflokkinn hafi
meðal annars
komið fram það sjónarmið að
greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði
þurfi að endurspegla laun foreldra
betur og að æskilegt væri að röskun
á tekjum væri eingöngu um 20%
eins og markmiðið hafi verið í upp-
hafi. Hinsvegar geti lenging fæðing-
arorlofs brúað bilið milli orlofsins og
leikskóla.
Á ríkisstjórnarfundinum tilkynnti
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, að hún hygðist
skipa starfshóp um mótun tillögu að
framtíðarstefnu í fæðingarorlofs-
málum hér á landi þar sem huga ætti
að því hvernig unnt væri að tryggja
að markmiðum laganna um fæð-
ingar- og foreldraorlof væri náð.
Starfshópnum um málefnið mun
gert að leita leiða til að stuðla að því
að röskun á tekjuinnkomu heim-
ilanna verði sem minnst við fæðing-
arorlof enda sé það megintilgangur
fæðingarorlofskerfisins.
Eins er þó tekið fram mikilvægi
þess að tryggja betri samfellu milli
fæðingarorlofs og þeirra dagvist-
unarúrræða sem eru fyrir hendi
þegar fæðingarorlofi lýkur.
Ósætti um
forgangs-
röðun
Huga að framtíð
fæðingarorlofsmála
Eygló
Harðardóttir
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ríkisstjórnin hefur birt skrá yfir
þau þingmál sem ráðherrar ætla að
leggja fyrir Alþingi í vetur. Í þing-
málaskrá utanríkisráðherra er til-
laga til þingsályktunar um að draga
til baka umsóknina um aðild að Evr-
ópusambandinu en þar segir jafn-
framt: „Tímasetning framlagningar,
ef til kemur, liggur ekki fyrir.“
Stjórnarfrumvörp í haust um
stjórnkerfi fiskveiða
Sjávarútvegsráðherra ætlar að
leggja fram tvö lagafrumvörp um
sjávarútvegsmál á haustþinginu.
Annars vegar er lagafrumvarp í
þingmálaskrá ráðherrans um breyt-
ingu á lögum um stjórn fiskveiða og
lögum um veiðigjöld.
„Fiskveiðistjórnunarkerfið verður
yfirfarið, en grundvöllur fiskveiði-
stjórnunar verður áfram aflamarks-
kerfi. Miðað er við að efla sátt um
framtíðarskipulag greinarinnar.
Áfram verður unnið með tillögu
sáttanefndar sem starfaði á liðnu
kjörtímabili. Stuðst verður áfram
við þau félagslegu, byggðalegu og
atvinnulegu úrræði sem gildandi
fiskveiðistjórnarlöggjöf kveður á
um.
Veiðigjöld verða hluti þessa frum-
varps,“ segir í skýringum um frum-
varpið.
Þá ætlar sjávarútvegsráðherra að
leggja fram frumvarp um breytingu
á fiskveiðistjórnunarlögunum varð-
andi hlutdeildarsamsetningu mak-
ríls. „Með frumvarpinu verður lagt
til að makrílstofninn verði hlutdeild-
arsettur með sérstökum lögum,“
segir í skýringum um þetta.
Útfærsla á gjaldtöku
Í þingmálaskrá iðnaðar- og við-
skiptaráðherra kemur fram að ráð-
herrann ætlar að leggja fram á
haustþingi frumvarp til laga um
gjaldtöku í ferðaþjónustu. „Út-
færsla á gjaldtöku í ferðaþjónustu
til að standa straum af kostnaði við
nauðsynlega uppbyggingu á ferða-
mannastöðum,“ segir í málaskrá
ráðherrans um væntanlegt frum-
varp.
Boðar tillögu
um afturköllun
ESB-umsóknar
„Tímasetning framlagningar, ef til
kemur, liggur ekki fyrir,“ segir í málaskrá
Morgunblaðið/Kristinn
Á þingi Gunnar Bragi Sveinsson ut-
anríkisráðherra og Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson forsætisráðherra.