Morgunblaðið - 11.09.2014, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 11.09.2014, Qupperneq 15
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson í Holuhrauni samtímis. Þannig fjölmælar kosta á bilinu 100-150 þúsund krónur fyrir utan virðisaukaskatt. Skipta þarf um súrefnisskynjarana í mælunum á tveggja ára fresti. brennisteinsdíoxíð (SO2) kostar um 40 þúsund krónur fyrir utan virð- isaukaskatt. Mælirinn endist í 24 mánuði. Hægt er að fá tæki sem mæla fjórar eða fleiri gastegundir manns Höskuldssonar, eldfjallafræð- ings. Hraunið var þá komið 16,2 km frá gígnum Suðra. Gufubólstrar stigu til himins þar sem hraunið rann í ána en þar varð ekki vart sprengivirkni. Ármann sagði í gærmorgun að þá gysi aðallega úr gígunum Suðra og Baugi en Norðri spúði bara gasi. Ekkert gaus í gær á syðri sprung- unni sem opnaðist á föstudagsmorg- un. Ármann sagði að hraunelfan væri að ná í þrengingarnar við Vaðöldu. Hann sagði að heilmikið gas væri á gosstöðvunum og yfir þeim lægi blá móða. Stíf sunnanátt var á gosstöðv- unum og lá gosmökkurinn því til norðurs. Þegar mekkinum sló niður varð brennisteinslyktin mjög sterk, að sögn Ármanns. Undir hádegi í gær höfðu mælst 80 jarðskjálftar frá miðnætti. Þeir stærstu urðu í norðurhluta Bárðar- bunguöskjunnar og voru þeir 5,5 og 4,9 að stærð, samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar. Órói virtist vera svipaður og undanfarna daga. GPS- mælingar höfðu sýnt óverulegar jarðskorpuhreyfingar. Það þótti benda til þess að kvikustreymi inn í ganginn hefði haldist svipað og það sem streymdi út um gígana í Holu- hrauni. framvinduna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS CASALL HAUSTLÍNAN ER KOMIN Í HÚS! MIKIÐ ÚRVAL AF DÖMU OG HERRA FATNAÐI Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Plankaparket í miklu úrvali Burstað, lakkað, olíuborið, hand- heflað, reykt, fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket? Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Hár styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældist á Reyðarfirði klukkan 14.00 í gær. Börnum og fólki sem var viðkvæmt fyrir var ráðlagt að halda sig innandyra og loka öllum gluggum. Þá átti að slökkva á loftræstingum þar sem það átti við. Þá var heil- brigðu fólki ráðlagt að reyna ekki á sig líkamlega utandyra. Hæstu toppar brennisteins- díoxíðsins í andrúmsloftinu fóru upp í tæplega 2.600 μg/m3 á Reyðarfirði í gær Eftir það fóru gildi lækkandi en óvissa var um framhaldið, samkvæmt frétt Al- mannavarna. Umhverfisstofnun og sótt- varnalæknir sendi nýlega frá sér tilkynningu vegna brenni- steinsdíoxíðs á Austurlandi. Bláa móðu hefur borið yfir Austurland frá gosstöðvunum í Holuhrauni og hafa há gildi brennisteinstvíildis mælst á vöktunarstöðvum fyrir austan suma daga síðan gosið hófst. Hægt er að fylgjast með loft- gæðum vegna brennisteins- mengunar í andrúmslofti í Mý- vatnssveit og í Reyðarfirði á vefsíðunni loftgæði.is. Lands- virkjun er með mælistöðvar sem mæla styrk brennisteins- vetnis (H2S) í Mývatnssveit og mælistöðvar Alcoa Fjarðaáls mæla styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2) í Reyðarfirði og á Egils- stöðum. gudni@mbl.is Fylgst með loftgæðum MENGUN Í ANDRÚMSLOFTI Eingasmælir sem mælir eina gastegund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.