Morgunblaðið - 11.09.2014, Page 25

Morgunblaðið - 11.09.2014, Page 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 ✝ Guðjón Jóns-son var fædd- ur á Seyðisfirði 19. september 1929. Guðjón lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 23. ágúst 2014 þar sem hann bjó síð- ustu árin. Hann var sonur hjónanna Jóns Vigfússonar, múr- arameistara og organista, og konu hans Sigurlínar Sigurð- ardóttur. Guðjón var yngstur í sex systkina hópi. Þau eru nú öll látin en þau hétu Val- gerður, Hrafnhildur Lilja, Lára, Hörður og Kristján. Guðjón ólst upp á Seyð- isfirði til um 20 ára aldurs. Guðjón kvæntist 1951 Þór- önnu Þórarinsdóttur. Þau slitu samvistum. Saman eignuðust þau Ragnheiði Láru 1952. Börn Ragnheiðar eru Þóranna sem er látin, Helgi Þór og Ax- el Ingi. Árið 1956 eignaðist Guðjón Valdemar Steinar með Áslaugu Valdemarsdóttur. Dóttir Valdemars er Védís Ás- laug. Þeirra börn eru Thelma Katr- ín og Víkingur Þór. Fyrir átti Grétar son, Kalman Thor, sem býr á Nýja-Sjálandi. Þau eru búsett í Austervall í Noregi. Jón Vigfús Guðjónsson, vél- stjóri, f. 20. ágúst 1969, kvæntur Evu Hrönn Perez. Sonur Jóns er Grétar Þór. Þau eru búsett í Hammerfest í Noregi. Guðjón vann hin ýmsu störf um ævina jafnt til sjós og lands en hans aðalævistarf var á jarðýtu og vinnuvélum sem hann stjórnaði af mikilli kunn- áttu í yfir 50 ár. Árið 1989 fluttu Guðjón og Elísabet til Reykjavíkur þar sem Guðjón tók við starfi húsvarðar hjá Tryggingu hf. þar sem hann lauk sinni starfsævi. Á Suður- eyri gegndi Guðjón ýmsum störfum, var m.a. slökkviliðs- stjóri í 18 ár, sá um hitaveitu bæjarins svo og aðveitu fyrir kalt vatn. Guðjón sá um jarð- ýtu Suðureyrarhrepps í ára- tugi. Hann var eftirsóttur í vegagerð og fór víða um Vest- firðina til vegagerðar. Guðjón var einnig flugvallarstjóri um árabil á flugvelli Suðureyrar sem hann tók drjúgan þátt í að byggja. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Árið 1957 flutti Guðjón til Suður- eyrar við Súg- andafjörð og bjó þar til 1989. Guð- jón kvæntist eft- irlifandi eiginkonu sinni, Elísabetu Þórðardóttur, 19. september 1958 og eignuðust þau fjögur börn. Áður átti Elísabet son- inn Grétar Þór er lést 1964. Eftirlifandi börn eru: Hólm- fríður Hjördís, matráðskona hjá Akureyrarbæ, f. 6.6. 1959, gift Magnúsi Inga Björgvins- syni. Þau eru búsett á Ak- ureyri, börn Hjördísar eru Guðjón Svanur, Magnús Einar, Arnar Ingi og Elísabet Ósk . Margrét Thelma Guðjóns- dóttir, bókhaldsfulltrúi hjá Tryggingamiðstöðinni hf., f. 26. maí 1961, gift Einari Þor- lákssyni. Börn Margrétar eru Arinbjörn, Jóhann og Lísa Lind. Margrét og Einar eru búsett í Reykjavík. Grétar Þór Guðjónsson, smiður, fæddur 11. ágúst 1965. Sambýliskona er Kristín Eik Gústafsdóttir. Þá er komið að leiðarlokum, elsku pabbi minn, þakka þér samfylgdina í 45 ár. Nú ert þú loksins laus við þínar þrautir og kominn á betri stað. Ég er nokkuð viss um að kátt sé í skýjahöllinni núna þegar þú ert kominn í hópinn fyrir handan. Margs er að minnast á langri leið og gott að eiga margar ljúf- ar minningar til að ylja sér við. Sem barn og unglingur sótti ég mikið í að vera með þér og margir eru dagarnir þar sem ég sat á geymakassanum í jarð- ýtunni og fylgdist með þér vinna daglangt. Það var oft talað um það á Suðureyri að ef eitthvað var verið að stússast við ýtuna þá var það oftar en ekki sem sást í tvo rassa uppúr vélahlífinni, annan stóran en hinn lítinn. En akkúrat við þessar aðstæður í æsku lögðust línurnar að mínu ævistarfi. Blíða þín var mikil og þol- inmæði við að kenna mér á vél- ar og viðgerðir þeirra. Alltaf varst þú boðinn og búinn til að hjálpa fólki og mikil var gest- risnin á heimili ykkar mömmu. Mér er efst í huga þakklæti á þessari stund, þakklæti fyrir að hafa einmitt átt þig sem föður. Að endingu læt ég fylgja æðruleysisbænina sem við báð- ir þekkjum svo vel og hefur hjálpað svo mörgu fólki eins og okkur feðgunum. „Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt – og vit til að greina þar á milli.“ Elsku pabbi Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Þinn elskandi sonur, Jón Vigfús Guðjónsson, Hammerfest, Noregi. Elsku pabbi minn er allt í einu farinn mér frá. Þrátt fyrir löng veikindi og rúmlegu þá kom kallið óvænt og hratt. Pabbi missti aldrei andlega heilsu, því var hægt að tala við hann um alla hluti allt til hinsta dags, hann hlustaði á alla fréttatíma jafnt í útvarpi sem sjónvarpi, fylgdist vel með öllu. Við pabbi vorum góðir vinir og vorum alltaf náin, ég á hon- um margt að þakka. Lífið var ekkert alltaf auðvelt hjá pabba mínum, það lofaði víst enginn að þannig yrði það, en hann tókst á við sín vandamál, verk- efni og sorgir í hljóði. Pabbi gat verið mikill sprel- likarl í leik, bæði við okkur systkinin er við vorum lítil og ekki síður við börnin mín sem elskuðu öll afa Guðjón og sakna mikið. Eftir að mamma og pabbi fluttu til Reykjavíkur 1989 og meðan hann hafði heilsu fórum við saman með börnin í marga bíltúrana og ferðalög, að ógleymdum ferðunum vestur á hverju sumri, þar sem mest spennandi voru nestistímarnir, þá voru dregin fram boxin, kalt saltkjöt, kótelettur og allslags góðgæti sem mamma hafði útbúið, heitt kaffi á brúsa og sest út í móa. Ég gæti haldið endalaust áfram að skrifa um pabba, læt þetta duga og geymi nú allar góðar minningar með sjálfri mér áfram minn veg í þessu lífi. Það er gott að finna það í hjarta mínu að ég kveð pabba sátt og þakklát fyrir að hafa verið dóttir hans og að hafa hugsað um hann eins vel og ég gat seinustu árin. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. … Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson) Með þessum sálmi kveðjum við þig, elsku pabbi minn. Þín dóttir Margrét Thelma, Arinbjörn Jóhann og Lísa Lind. Guðjón Jónsson, tengdafaðir minn kær, er látinn, tæplega 85 ára að aldri. Kynni okkar Guðjóns hófust fyrir 13 árum þegar ég hóf bú- skap með dóttur hans, Mar- gréti Thelmu, og ég fór að koma með í reglubundnar helg- arheimsóknir til þeirra hjóna, Guðjóns og Elísabetar. Guðjón kom fyrir sjónir sem sviphreinn og fríður maður og myndir frá yngri árum bera því glöggt vitni að Guðjón var glæsimenni á velli. Við kynni mín á Guðjóni kom fljótt í ljós að hann hafði skýra sýn á flest mál, hreinskiptinn og skoðanafastur og var stað- fastur sjálfstæðismaður. Guð- jón var góðum gáfum gæddur, nákvæmnismaður og vandvirk- ur og ef það hefði getað legið fyrir honum að ganga mennta- veginn, er ég viss um að allt nám hefði legið vel fyrir hon- um. Lífshlaup Guðjóns var ekki alltaf auðvelt og vinamargur var hann ekki enda sennilega nokkur einfari að eðlisfari. Hins vegar, þegar maður var búinn að kynnast honum var spjall við hann alltaf gefandi og þakka ég fyrir það að hafa haft tækifæri til þess að eiga skoð- anaskipti við Guðjón í mörgum heimsóknum á hans heimili, á Laugaveginum, Furugerði og loks á hjúkrunarheimilinu Skjóli þar sem hann eyddi síð- ustu tveimur æviárum sínum. Með söknuði kveð ég kæran tengdaföður en góð minning mun lifa í huga mínum. Einar Þorláksson Guðjón Jónsson ✝ Stefán BaldurGíslason fædd- ist í Reykjavík 16. júlí 1930. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Grund 4. september 2014. Foreldrar hans voru Gísli Guð- mundur Guð- mundsson, f. 2.10. 1883, d. 2.8. 1949 og kona hans, Jón- ína Sólveig Jónsdóttir, f. 15.5. 1887, d. 21.5. 1959. Systkini Stefáns eru: Jóna, f. 8.6. 1912, d. 15.6. 1962, Sveinn ugadóttir, f. 7.10. 1901, d. 26.1. 1991. Börn Stefáns og Guð- nýjar eru: 1) Helga Björk Birg- isdóttir, f. 12.9. 1960, maki Guðmundur Guðbrandsson, f. 21.3. 1960 og eru börn þeirra Daldís Ýr, f. 17.8. 1979 og Arn- þór Daði, f. 13.12. 1993. 2) Ósk- ar Ingi Stefánsson, f. 11.1. 1967. 3) Kjartan Guðfinnur Stefánsson, f. 9.6. 1969 og eru börn hans María Katrín, f. 7.7. 1994 og Hekla Rán, f. 26.1. 2000. Barnsmóðir er Auður Ingunnardóttir, f. 21.5. 1967. Stefán fæddist á Framnesvegi 33 í Reykjavík og bjó þar alla tíð. Hann var vörubílstjóri hjá Þrótti og var virkur meðlimur Slysavarnafélags Íslands á yngri árum. Útför Stefáns fer fram frá Neskirkju í dag, 11. september 2014, og hefst athöfnin kl. 15. Aðalsteinn, f. 11.9. 1914, d. 19.5. 1982, Guðbjörg, f. 12.5. 1918, d. 18.2. 1996, Guðrún, f. 24.1. 1927, d. 11.7. 1977 og Guðmundur Hafsteinn, tvíbura- bróðir, f. 16.7. 1930. Eftirlifandi eiginkona Stefáns er Guðný Halldóra Jónsdóttir, f. 22.1. 1935. Þau gengu í hjónaband 24.1. 1964. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, f. 9.11. 1896, d. 21.3. 1966 og Helga Ill- Afi Stebbi vildi gjarnan halda í hefðir og gera hlutina eftir röð og reglu. Fyrstu minningar mín- ar eru frá jólunum á Framnes- veginum, en afi sá alltaf um að skreyta jólatréð á Þorláks- messukvöld með sömu fallegu seríunni. Það er gott að hafa fasta punkta í tilverunni en um síðustu jól fylgdist ég með þeim gamla hengja skrautið á tréð og það hvarflaði að mér að ekkert varir að eilífu. Afi veiktist alvar- lega fyrir fjórum árum en þá var hann í sólinni á Spáni, ný- orðinn áttræður. Hann náði sér furðu vel á strik þrátt fyrir að aldurinn og lífsreynslan hafi sagt meira og meira til sín síð- ustu misseri. Afi var vörubíl- stjóri og hafði ótal sögur að segja af hinum ýmsu leiðöngrum og ævintýrum. Hann vann lengi á Vellinum og var nokkuð lunk- inn í ensku. Það kom sér vel því þau amma hafa ferðast mikið til útlanda, oftast með Guggu syst- ur ömmu og Didda. Þau fóru saman í sólarferðir á sumrin og til Glasgow á haustin til að njóta jólaljósanna og kaupa gjafir. Það var líka fastur liður í mörg ár hjá afa og ömmu að fara austur í Þykkvabæ í sumarbú- staðinn til Guggu og Didda um helgar. Þau komu gjarnan við á Selfossi til að kippa mér með, en ég hef alla tíð litið á Guggu og Didda sem aukasett af ömmu og afa. Afa þótti gaman að fá að taka þátt í því að byggja bústað- inn og dytta að með Didda og hafa þessi vinahjón átt margar góðar stundir við Árbakkann. Ég naut góðs af því að vera eina barnabarn afa og ömmu fram yfir fermingu, eða þar til Arn- þór Daði bróðir minn fæddist. Eftir að við fluttum á Selfoss fór ég oft með rútu til Reykjavíkur og var heilu helgarnar í góðu yf- irlæti hjá afa og ömmu. Oftast var ég að skottast í kringum ömmu eða atast í stóru frænd- um mínum, þeim Óskari og Kjartani, á meðan afi var að brasa úti í skúr. Ég vissi eig- inlega aldrei hvað hann var að gera í öllu draslinu þar en það eru ótrúlega sterkar minningar sem koma upp í kollinn af afa í vinnugallanum í skúrnum. Lykt- in þar var líka sérstök og mér fannst ævintýri líkast þegar ég fékk að kíkja þar inn. Afi bauð okkur stundum á ísrúnt og þá var við hæfi að koma við í Skammadal í kartöflugarðinum eða borða kjúkling á KFC. Ég man líka eftir því að afi gaukaði einstaka sinnum að mér 500 króna seðli og fórum við svo saman í leikfangaverslunina Liv- erpool á Laugaveginum til að kaupa Playmo fyrir peninginn. Á ellefu ára afmælinu fékk ég sirkusmiða frá afa og fórum við tvö saman í sirkus. Ég er hand- viss um að afi skemmti sér jafn vel og ég á sýningunni, jafnvel betur. Eftir háskólanám bauðst mér að flytja í risið til afa og ömmu á Framnesveginum og var þar í tæp fjögur ár að safna fyrir út- borgun í fyrstu íbúð. Það var góður tími og á kvöldin var notalegt að vita af ömmu niðri með prjónana og afa horfa á bíó- myndir hinumegin við vegginn, alltaf með eina appelsínu og eitt epli yfir sjónvarpinu á kvöldin. Ég á eftir að sakna þess að koma við á Framnesveginum og sjá ekki afa á sínum stað í stof- unni, en ég mun alltaf líta í hornið hans og minnast hans með hlýju og þakklæti fyrir all- ar góðu samverustundirnar. Daldís Ýr Guðmundsdóttir. Hann Stefán Gíslason eða Stebbi, eins og ég kallaði hann alltaf, hefur kvatt þetta líf. Ég er alveg viss um að hann fór sáttur við guð og menn. Þegar við heimsóttum hann í sumar á Vífilsstöðum, sagðist hann hafa átt gott líf, og hann lokaði bara oft augunum og sæi ótal myndir frá liðnum tíma og ornaði sér við það. Það var gott að heimsækja hann, hann fagnaði manni inni- lega og kvaddi með bros á vör. Það eru sennilega um rúm 50 ár síðan ég fyrst hitti Stebba, þá var ég stelpuhnokki, en hann ungur maður, sem kom á heimili mitt í Langagerðinu og var þá farinn að gera hosur sínar grænar fyrir henni Guðnýju móðursystur minni, sem bjó hjá foreldrum mínum ásamt ungri dóttur sinni, henni Helgu Björk. Mér fannst hann svo flottur í teinóttum jakkafötum, og frakka, reykti vindil og ilmaði af Kölnarvatni. Mér fannst hann eins og kvikmyndastjarna, bar með sér eitthvað mér áður framandi og óþekkt. Ekki man ég betur en hann hafi komið á vörubílnum sínum, R 140. Stöku sinnum laumaði hann að mér útlendu Hershey’s súkkulaði og öðru góðgæti sem ekki var daglegt brauð á venju- legu heimili á sjöunda áratugn- um. Seinna átti ég eftir að fá að fara með honum inn á svæði Varnaliðsins á Keflavíkurflug- velli. Þangað fór hann að mig minnir nær vikulega með flutn- ing á vegum Íslenskra aðalverk- taka, en hann var vörubílstjóri á Þrótti allan þann tíma sem ég man eftir honum, þar til hann hætti að vinna fyrir aldurs sak- ir. Þessar ferðir til Keflavíkur voru ævintýri í mínum huga, eins og að fara til útlanda. Stebbi og Guðný hafa verið samofin minni fjölskyldu alla tíð, og ég man eftir þeim uppábún- um fara með foreldrum mínum á Þróttarárshátíðir eða Hita- veituböll. Seinna ferðuðust þau saman bæði innanlands og utan. Þau nutu félagsskaparins, þeir svilarnir pabbi og Stebbi, voru ekki aldeilis alltaf sammála en alltaf vinir og skáluðu gjarnan í „karlakóki“ að kvöldi dags í þessum ferðum sínum. Og ekki má gleyma sumarbústaðarferð- unum í Þykkvabæinn, þar áttu Guðný og Stebbi sitt herbergi í sumarbústað foreldra minna. Ég á margar góðar minning- ar frá þessum árum og ekki síð- ur frá heimsóknum þeirra til okkar Gunnars, til Kaupmanna- hafnar. Allsstaðar þar sem við höfum búið, komu þau í heim- sókn með foreldrum mínum. Þau hjálpuðu til við að pakka búslóðinni saman til flutnings heim til Íslands, og þegar við fluttum á Kirkjubæjarklaustur, voru þau aftur mætt til að bera okkur inn. Stebbi gaf mörg góð ráð, eftir sumum var farið en öðrum ekki eins og gengur. Þótt hann gæti verið fastur fyrir var alltaf stutt í húmorinn og glettnislega bros- ið. Nú hefur hann fengið hvíldina og er kominn þangað sem alltaf er sól og snjólausir vegir, að því er manni er sagt. Með þessum fátæklegu minn- ingarbrotum vil ég kveðja Stebba „ská“ frænda og þakka honum allar liðnar stundir í gegnum árin. Gunnar minnst Stebba sem góðs vinar sem um- bar honum, með góðlátlegu glotti, strákapörin í gegnum tíð- ina. Elsku Guðný, Björk, Brósi og Kjartan, innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar og fjölskyld- unnar allrar frá okkur Gunnari. Jóna S. Sigurbjartsdóttir. Stefán Baldur Gíslason HINSTA KVEÐJA Nú kveð ég þig að sinni, þakka farinn veg. Ég geymi mér í minni það allt sem liðið er. Guðný Jónsdóttir. Látinn er góður félagi minn í Góð- templarareglunni. Við Kristján Jóns- son störfuðum sam- an á ýmsum stigum Reglunnar um áratuga skeið. Ég minnist þess best er við sátum saman í framkvæmdanefnd Um- dæmisstúku Suðurlands á þeim tímum þegar Bindindismótin í Galtalæk gengu sem best. Vilji Kristjáns til verka var mikill og var þá ekki spurt um eðli verk- efna. Hann var ráðagóður á fund- um og hamhleypa til hvers kyns smíða á húsum og snyrtingum í Galtalæk. Kristján var jákvæður maður sem gaman var að starfa með. Hann naut dvalar í Galtalækjar- skógi og var oft langdvölum í Sig- þórsskála sem stúkan hans átti, en hann var frumkvöðull að byggingu þess húss. Það var oft mikið að gera á fjölmennum Bindindismótum en alltaf var Kristján Jónsson ✝ Kristján Jóns-son fæddist 10. ágúst 1928. Hann lést 23. júlí 2014. Útför Kristjáns fór fram 6. ágúst 2014. Kristján til staðar og leysti vel þau verk sem hann tók að sér. Með þessum örfáu orðum vil ég fyrir hönd Bindindis- samtakanna IOGT á Íslandi þakka öll störf Kristjáns, ekki síst starfið í Galta- lækjarskógi og einn- ig ómetanleg störf í stúkustarfinu. Hann fór með okkur félögum í samtökunum „Komið og dansið“ á dansmót á Ærø í Danmörku ár- ið 1996 og er skemmtilegt að minnast þeirrar samveru enda Kristján góður ferðafélagi og kátur í góðra manna hópi. Seinni árin kynntist ég Kristjáni enn betur í Reglu Musterisriddara, en þar sem annars staðar lagði hann hönd á plóg svo um munaði. Það var gæfa að kynnast manni eins og Kristjáni, glaðvær- um og jákvæðum félaga sem ávallt lagði gott til mála og var reiðubúinn að leggja lið þeim verkum sem vinna þurfti. Ég votta sambýliskonu hans og fjöl- skyldu samúð. Minningin um góðan mann lifir. Gunnar Þorláksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.