Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 Hvern ætlar þú að gleðja í dag Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Reyndu að bíta á jaxlinn og ljúka verkefnum sem þér eru falin. Ef þú finnur handfangið opnast dyr og hleypa þér inn í leynigöng sem liggja þangað sem þú vilt. 20. apríl - 20. maí  Naut Fylgdu því sem þú skynjar sem mikil- vægt. Sjálfur þarft þú að leita kjarnans í sjálf- um þér. Farðu varlega og reyndu að gera ekki illt verra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Uppreisnargirni þín er dregin fram í dagsljósið. Einhleypir hitta ákjósanlega maka á meðan þeir skara fram úr sjálfum sér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver löngu liðinn atburður setur svip sinn á nútíma þinn. Einstein sagði að snilld sín fælist í ímyndunaraflinu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er óþarfi að vera að kikna undir vandasömum ákvörðunum, þegar vinir eru á næsta leiti tilbúnir til þess að aðstoða. Byrj- aðu strax. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ættir að finna þér tíma til þess að sinna sjálfum þér betur. Spurðu þig þrisvar hvort þú þurfir á viðkomandi hlut að halda áður en þú opnar budduna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Enn á ný kanntu að komast í uppnám yfir breyttum reglum varðandi sameiginlegt eign- arhald. Tölvuvandræði og aðrar óvæntar uppákomur munu líklega reyna á þolinmæði þína. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er eins og þú eigir eitthvað erfitt með að koma skoðunum þínum á fram- færi við aðra. Aðrir sjá að þú veist um hvað þú ert að tala og leggja því við hlustir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekkert koma þér úr jafn- vægi því flestir hlutir eru ekki þess virði. Gömul vandamál leysast fyrir tilstilli nýrra bandalaga. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að fá málin á hreint gagn- vart félaga eða nánum vini. Haltu áfram að hugsa um það sem kemur á morgun. Frelsi þitt og sjálfstæði til eigin verka er í húfi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gefðu þér allan þann tíma sem til þarf í að útfæra hugmynd þína og þá fyrst geturðu sett kraft í að framkvæma hana. Enginn sagði að samstarf væri auðvelt, en þú kaust þetta af vissri ástæðu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ígrundaðu á hvern hátt þú getur bætt samskipti þín við ættingja og fjölskyldu. Reyndu að skapa sjálfum þér olnbogarými svo þú haldir áttum. Hjálmar Jónsson sendi úr iPadlimru um ástandið á Ríkis- útvarpinu. Útvarpið ermar upp brettir og ábyrgð af herðum sér léttir. Um hádegisbil hljómar þar spil: Síðasta lag fyrir auglýsingar. Skemmtileg orðaskipti á Leirn- um byrjuðu með þessari limru Pét- urs Stefánssonar á laugardaginn: Kona í kjöltu mér sat, kolsvört og ættuð frá Chad. Ég elskaði hana af eldgömlum vana alveg hreint eins og ég gat. Það atvik varð úti við sjóinn að Ársæll fékk sandkorn í skóinn. Svo gekk hann á stein, og gaf frá sér vein er geitungur stakk hann í þjóinn. Og síðan hélt hann áfram: Hún er falleg, hún Friðgerður Mjöll, fönguleg dama og snjöll. Hún drekkur úr krús sitt dýrindis bús og dýrkar að fara á böll. Þá taldi Sigrún Haraldsdóttir tíma til kominn að blanda sér í mál- ið: Fräulein Gommu frá Grindli gast vel að Bernarði rindli, sjálf var hún feit, sælleg og heit og státaði af stuttrófudindli. Páll Imsland tók undir og hélt áfram upphafi Sigrúnar: Hennar mágkona, Magga frá Vindli – margoft staðin að allskonar svindli – var gift eins og gengur og gat því ei lengur sofið hjá Brynjólfi bryndli. Hafsteinn Reykjalín orti og ekki að ástæðulausu: Rigningin ráðskast með alla, hún rennur um götur og palla. Staðan í gær, staðfest ófær, en steindrepur okkur þó valla. Hér er svo gömul vísa: Augun gráu erta mig, augun bláu töfra mig, augun svörtu æra mig, augun brúnu drepa mig. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af konu frá Chad, Möggu frá Vindli og stuttrófudindli Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG KANN VEL VIÐ FÓLK SEM VEIT HVAÐ ÞAÐ VILL.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá eiginhandar- áritun hjá uppáhalds- poppstjörnunni hennar. STÖÐUR LAUSAR ENGAR HRÓLFUR! HÆTTU ÞESSU BRÖLTI AÐEINS OG KOMDU HINGAÐ NIÐUR! SÉRÐU EKKI AÐ ÉG ER UPPTEKINN, HELGA? HVAÐ ER AÐ? ÞÚ GLEYMDIR INNKAUPALISTANUM SEM ÉG VAR BÚIN AÐ SKRIFA HANDA ÞÉR! HVERNIG LÍST ÞÉR Á ÞESSAR VÍGTENNUR, HA? GÆTU VERIÐ HVÍTARI. AÐ GELTA MEÐ LOKAÐAN MUNNINN ER BARA AÐ UMLA. MMMM! HÓMÓPATÍSK SJÚKRASTOFNUN LEGUSÁR OG LYFLEYSUR Þegar Víkverji stundaði skemmt-analífið af einhverju kappi kom það stundum fyrir að hann fékk stimp- il á höndina, svona til þess að sýna að Víkverji hefði nú greitt aðgangseyrinn sem þurfti til þess að komast á ballið. Hvort sem það var stimplinum að þakka eða ekki, þá voru þessar stimpl- uðu skemmtanir oft eftirminnilegri heldur en óstimplaðar. x x x Víkverji hafði annars ekki hugsaðtil þessa tíma um langa hríð, þeg- ar einn af vinnufélögum hans mætti með einn myndarlegan stimpil á bak- höndinni sinni á mánudagsmorgni. „Nú, var verið að lyfta sér upp um helgina?“ spurði Víkverji, en fékk þau svör að viðkomandi hefði nú einfald- lega farið með stelpuna sína í bolta- land IKEA, og þær mæðgur þar báð- ar fengið sinn stimpilinn hvor. Þótti Víkverja það vera nokkurt þroska- og/eða ellimerki, þegar stimpluð bak- hönd táknar ferð í húsgagnaverslun en ekki á skrall. Víkverji gat þó hugg- að sig við það, að fyrir barnið hefur stimpillinn á höndina líklegast verið ávísun á heilmikla skemmtun í bolta- landinu. x x x Annað svipað þroska- og/eða elli-merki sem vinnufélagar Víkverja hafa orðið varir við er hinn endalausi flaumur mynda á facebook þar sem fólk deilir sónarmyndum af tilvonandi fjölskyldumeðlimum, og setur þær jafnvel bara sem svokallaða „prófíl- mynd“. Ekki líður á löngu þangað til viðfangsefni sónarmyndanna koma í heiminn hvert af öðru, og fyllist þá fésbókin af myndum af þeim, vinnu- félögum Víkverja til mikillar ánægju, eða þannig. x x x Víkverja finnst þó merkilegt að þeirsem helst taka eftir þessum myndum eru þeir sem sjálfir eru barnlausir. Hinum finnst það líklega ekkert eftirtektarvert þó að verið sé að deila slíkum myndum með alþjóð. Annars getur Víkverji lítið sagt, hann og kona hans hafa gert lítið annað síð- ustu vikurnar en að dæla inn mynd- um af nýja gæludýrinu sínu, og fá þær myndir eflaust svipuð viðbrögð. víkverji@mbl.is Víkverji Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Því óttumst vér eigi þótt jörðin haggist og fjöllin steypist í djúp hafsins. (Sálmarnir 46:2-3) mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.