Morgunblaðið - 11.09.2014, Side 39

Morgunblaðið - 11.09.2014, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þessar myndir málaði ég í París á árunum 1993 til 1997,“ segir Hall- grímur Helgason, myndlistarmaður og rithöfundur, þar sem við stöndum í Tveimur hröfnum - listhúsi að Baldursgötu 12, þar sem á morgun klukkan 17 verður opnuð sýningin „Parísar-pakkinn“ með þessum verkum hans. Þrjú eru stór, frásagn- arleg og kaldhæðin, úr seríu sem nefnist „I’m Home!“, en síðan gefur að líta röð minni portretta af ólán- legu fólki sem eins og flýtur í óskil- greindu hvítu rými. Í texta sem Hall- grímur hefur skrifað um verkin segir hann þetta vera „kaldhæðnis- legar myndir af heitustu hugðar- efnum mannsins, eins og ástinni, hamingjunni, heimilinu og sjálfs- mynd hvers og eins, hinni brosandi passamynd. Málverkin gera stólpa- grín að þessu öllu saman, með skvettu af biturleika …“ „Á þessum tíma var ég nýfráskil- inn, eitt svöðusár, og einn í stórborg- inni,“ segir hann þegar spurt er um baksviðið. „Hins vegar hafði ég gott næði til að þróa mína list. Það hafði nánast enginn áhuga á því sem ég var að gera.“ Hann glottir. „Mér tókst að halda tvær sýningar í París á þessum tíma og var kominn á gott ról með þessum verkum þegar ég ákvað að flytja heim, árið 1996.“ Hallgrímur fékkst einnig við skriftir þá, skrifaði skáldsöguna 101 Reykjavík árið 1995. „Þetta var síðasta stóra myndlist- artímabilið mitt þar sem ég var ein- göngu að mála mikinn hluta ársins. Það gerðist ekki aftur fyrr en í fyrra,“ segir hann. Hallgrímur segir að í stóru verk- unum sé hann að segja „dýpri hluti með teiknimyndastíl“. Þetta sé ýkt mynd af hversdagslífi. Við undirbún- ing verkanna skissaði hann hratt – „í beinni útsendingu úr undirmeðvit- undinni“ – en stækkaði síðan nokkr- ar teikninganna upp á hægan og vandvirknislegan hátt. Hann segir teikningarnar vera eins og handrit en málverkin eins og bíómyndir. „Þetta er „comedie humaine“, eins og Balzac kallaði það – karlinn að koma heim og vonar að kerlingin sé dauð,“ segir hann og hlær. Þessar þrjár stóru myndir voru á sínum tíma sýndar í París og týndust ásamt fleiri verkum Hallgríms þegar gall- eristinn lét sig hverfa. Þær fundust löngu síðar í Parísar-pakkanum sem titill sýningarinnar vísar í. En hvað segir Hallgrímur um hin portrettin? Hálfmorknar ásjónur sem samt búa yfir aulalegri gleði? „Þetta eru paródíur af dæmigerð- um augnablikum sem eru fest á mynd. Við eigum öll svona upp- stilltar myndir af okkur. Ætli ég hafi ekki verið að gera grín að þessari hamingjuímynd, í nýfráskildum bit- urleika.“ Hallgrímur horfir á verkin og bætir svo við að í þeim sé blanda af kaldhæðni og leit að einlægni. „Þessi málverk eru frá 1993 en þá ákvað ég að læra alveg upp á nýtt að mála og lagði frá mér allt sem ég hafði lært. Tók auðan striga og byrj- aði að maka lit á hann, var að vinna gegn hinni lærðu vinnusemi og vand- virkni Íslendingsins. Það var erfitt en ég reyndi að halda léttleikanum í þessu,“ segir hann. Portrettið hefur löngum verið við- fangsefni Hallgríms, í myndum og texta. „Það er rétt, ég hef alltaf verið heillaður af fólki,“ segir hann. „Er alltaf að búa til persónur og lýsa fólki; reyni að fanga kjarnann.“ Myndir af heitustu hugðarefnunum  Sýna málverk Hallgríms Helgasonar frá 1993 til 1997 Morgunblaðið/Einar Falur Persónur „Þetta eru paródíur af dæmigerðum augnablikum,“ segir Hallgrímur um sum verkin í Tveimur hröfnum. Í tilefni af fjögurra alda minningu Hallgríms Péturssonar verður í dag kl. 16 opnuð sýning í Þjóðarbókhlöð- unni. Sýningin er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands – Háskóla- bókasafns og Stofnunar Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum. Meðal þeirra sem flytja ávarp við opnunina eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Ingibjörg Stein- unn Sverrisdóttir landsbókavörður og Margrét Eggertsdóttir rannsókn- arprófessor á Stofnun Árna Magn- ússonar auk þess sem Spilmenn Rík- ínís flytja tónlist við texta Hallgríms. Sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson. Sýning til heiðurs Hallgrími skáldi Nóg járn ámeðgöngu Hvernig er best að viðhalda járnþörf líkamans eðlilegri? Ef þú þjáist af járnskorti ámeðgöngu þá þarftu að borðamikið af járnríkummat til að leiðrétta það. Mörgumófrískum konumfinnst erfitt að borða það magn semþarf til að hækka og viðhalda járnbirgð- um líkamans. Þá þurfa þær önnur ráð, Floradix hágæða járnbætandi blanda getur hjálpað til að ná upp járnbirgðum líkamans hratt. Floradix inniheldur járn sem frásogast auðveldlega í líkamanumásamt C-vítamíni, ávaxta- og jurtaþykkni til að bæta enná upptökuna. Þessar sérstöku blöndur innihaldamýkjandi jurtir sem hjálpa til að haldameltingunni góðri og koma í veg fyrir harðlífi sem járntöflur geta valdið. Mikilvægt er að nýbakaðarmæður haldi áfram að taka Floradix eftir fæðingu til að viðhalda góðum járnbúskap og byggja upp orku og kraft. Því litla barnið þarfnast þess að eigamömmu semer full af orku og áhuga. Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum. ★★★★ – SGV, Mblamlet Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Róðarí (Aðalsalur) Þri 16/9 kl. 20:00 Sun 28/9 kl. 20:00 Sun 12/10 kl. 20:00 Mið 24/9 kl. 20:00 Lau 4/10 kl. 20:00 Kameljón (Aðalsalur) Fös 12/9 kl. 20:00 Lau 27/9 kl. 20:00 Sun 21/9 kl. 20:00 Sun 5/10 kl. 20:00 Trúðleikur (Aðalsalur) Sun 14/9 kl. 14:00 Sun 28/9 kl. 14:00 Sun 21/9 kl. 14:00 Sun 12/10 kl. 14:00 Petra (Aðalsalur) Fim 11/9 kl. 20:00 GOOD/BYE (Aðalsalur) Þri 23/9 kl. 21:00 Blái hnötturinn (Aðalsalur) Fim 18/9 kl. 18:00 Fös 19/9 kl. 18:00 Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.