Morgunblaðið - 15.09.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2014
Náðu þér í aukin ökuréttindi
Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi
Öll kennslugöng innifalin
www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga
Næsta
námskeið
hefst
17. sept.
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku
Meirapróf
Þekking og reynsla
í fyrrirúmi
Það er nóg að gera hjá skriffinn-unum í Brussel. Ekki aðeins
telja þeir sig þurfa að samræma
skattastefnu allra aðildarríkja
ESB, samræma peningastefnuna og
utanríkisstefnuna, svo nokkuð sé
nefnt, heldur þurfa þeir að leggja
mikla vinnu í að
hafa vit fyrir öllum
þeim hundruðum
milljóna manna
sem falla undir
áhrifasvæði skriff-
innanna.
Gústaf Adolf Skúlason segir ípistli á blog.is frá umfjöllun
Daily Mail um áform ESB um að
„banna orkumiklar hárþurrkur, að
ekki sé nú minnst á hraðsuðukatla,
straujárn og brauðristar“.
Daily Mail segir að sönnun séfengin fyrir því að þetta sé
brjálæði, því að könnun á áhrif-
unum hafi leitt í ljós að „sparneyt-
nari“ rafmagnstækin sem ESB vill
nú þvinga fólk til að nota taki ekki
aðeins lengri tíma í að ljúka þeim
verkum sem neytandinn vilji, svo
sem að þurrka hár eða rista brauð,
heldur sé niðurstaðan stundum sú
að meiri orka sé á endanum notuð
til verksins.
Útþensla skriffinnanna í Brusselá verkefnum sínum er að því
er virðist algerlega stjórnlaus.
Engu virðist skipta hvort viðfangs-
efnið er smátt, eins og hárþurrka,
eða stórt, eins og skattkerfi 28
ríkja, öllu vilja þeir ná undir vald
sitt og samræma.
Á vef ESB er listi ríkja undiryfirskriftinni: „Aðildarríki
ESB“. Við hlið hans er annar listi
með yfirskriftinni: „Á leiðinni að
verða aðildarríki ESB.“ Á síðari
listanum er Ísland. Er Ísland virki-
lega á leið inn í þetta samræming-
arbandalag skrifræðisins eins og
ESB segir sjálft?
„Á leiðinni að
verða aðildarríki“
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 14.9., kl. 18.00
Reykjavík 13 alskýjað
Bolungarvík 16 skýjað
Akureyri 18 skýjað
Nuuk 2 alskýjað
Þórshöfn 12 léttskýjað
Ósló 18 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 17 léttskýjað
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 16 skýjað
London 20 léttskýjað
París 21 léttskýjað
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 18 skýjað
Berlín 20 heiðskírt
Vín 18 skýjað
Moskva 8 skúrir
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 8 skýjað
Montreal 8 alskýjað
New York 17 heiðskírt
Chicago 15 léttskýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:51 19:56
ÍSAFJÖRÐUR 6:54 20:03
SIGLUFJÖRÐUR 6:36 19:46
DJÚPIVOGUR 6:20 19:26
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingar, hefur sent Velferðarvakt-
inni bréf þar sem farið er þess á leit
að sérstök úttekt verði gerð á áhrif-
um fyrirætlunar ríkisstjórnarinnar
að hækka virðisaukaskatt á matvæl-
um og öðrum vörum í neðra þrepi
virðisaukaskatts úr 7 prósentum upp
í 12 prósent. Bréfið kynnti hann á
blaðamannafundi sem flokkurinn
hélt í gær. Velferðarnefnd er ætlað
að huga velferð og afkomu efnalítilla
fjölskyldna og afla upplýsinga um
velferð þeirra sem búa við fátækt svo
draga megi úr henni.
Í bréfinu segir að lauslegar grein-
ingar sem Samfylkingin hafi gert
bendi til þess að breytingin muni
koma lágtekjufjölskyldum hlutfalls-
lega verst „enda fer stærri hluti
tekna lágtekjufólks til kaupa á mat-
vælum en hjá hærri tekjuhópum“. Þá
er einnig vísað til úttektar Alþýðu-
sambands Íslands á efninu. „Þar við
bætast svo áform í fjárlagafrumvarpi
um hækkun viðmiðunarfjárhæða í
greiðsluþátttöku lyfja, sem munu
líka leggjast þyngst á lágtekjufólk.“
Á fundinum sagði Árni Páll að erf-
itt væri að sjá að boðaðar mótvæg-
isaðgerðir myndu ná að vega að fullu
leyti á móti þessari kjaraskerðingu
hjá lágtekjufólki, þar sem barnabæt-
ur munu ekki eftir boðaða hækkun
ná því sem þær voru árið 2013 auk
þess sem ekki væru öll lágtekjuheim-
ili með börn á framfæri. „Mótvæg-
isaðgerðin við matarskattshækkun-
inni felst í lækkun á óskyldum
vöruflokkum sem eru síður þeir sem
eru í innkaupakörfu lágtekjufjöl-
skyldna,“ sagði hann. „Við viljum
tryggja það að ríkisstjórnin hugsi
sinn gang.“
Spurður hvaða mótvægisaðgerðir
myndu henta betur segir hann þing-
menn Samfylkingar vera sammála
um að gott væri að fara í einföldun á
skattkerfinu og þeir teldu vörugjöld
óþarfa skattlagningu. „En það eru til
margar aðrar leiðir. T.d. er í tvígang
búið að veita afslátt af veiðigjaldi og
fallið var frá hækkun á virðisauka-
skatti í ferðaþjónustu. Hvað varðar
matarskatt værum við tilbúin að
ræða hækkun á neðra þrepi ef góðar
mótvægisaðgerðir kæmu á móti og
má þar t.d. nefna lækkun á álagningu
á innfluttum matvælum.“
sunnasaem@mbl.is
Úttekt á hækkun matarskatts
Hækkun virðisaukaskatts á matvælum sögð koma lágtekjufjölskyldum verst
Morgunblaðið/Kristinn
Fundur Helgi Hjörvar, Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir í gær.