Morgunblaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 13
samningar í Japan og vinna við
samninga í Bandaríkjunum og
Kanada er komin áleiðis. Þá hafa
hjólin um nokkurt skeið verið til
sölu annars staðar á Norð-
urlöndum og í Norður-Evrópu.
Þau hafa selst vel í Þýskalandi.
Þau eru einnig til sölu hér innan-
lands. Kostar eldri gerðin frá 60 til
100 þúsund krónur og nýrri gerðin
frá 100 til 140 þúsund. Samtals
hafa um eitt þúsund hjól verið seld
á þessu ári.
Steingrímur kveðst bjartsýnn
á framtíð fyrirtækisins en segir að
enn sé langt í land. Fjárfestar hafi
lagt mikið fé í þróun hjólsins og
markaðssetningu og taki tíma að
það skili sér, enda sé um að ræða
markaði þar sem mikil samkeppni
sé og ekki einfalt að byggja upp
nýtt vörumerki. Mikilvægt sé að
leggja alúð í þjónustu við við-
skiptavini enda sé orðsporið það
sem öllu ráði.
Hópur fjárfesta
Fjárfestarnir á bak við Fossa-
dal eru allir íslenskir nema einn.
Flestir eru frá Ísafirði. Verkefnið
hefur einnig fengið ýmsa nýsköp-
unarstyrki.
Steingrímur Einarsson er
Reykvíkingur að uppruna og fisk-
eldisfræðingur að mennt. Hann
fluttist til Ísafjarðar árið 1998, en
þar er kona hans fædd og uppalin.
Á Ísafirði tók hann þátt í stofnun
fyrirtækis sem framleiddi vél-
búnað fyrir matvælavinnslu. Þar
kviknaði hugmyndin um smíði
fluguhjóls og gerði hann nokkrar
tilraunar í þá veru. Prufuhjólin
vöktu athygli veiðimanna og þetta
vatt upp á sig. Vorið 2007 var
ákveðið að stofna félagið Fossadal
um hugmyndina og síðan hefur
boltinn rúllað.
Morgunblaðið/Kristinn
Framleiðsla Unnið að samsetningu fluguveiðihjólanna á verkstæðinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Varan Hjólin sem Fossadalur framleiðir hafa fengið mjög góðar viðtökur.
Fossadalur Steingrímur
Einarsson, framkvæmda-
stjóri Fossadals, og Magnús
Hávarðarson markaðsstjóri.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2014
Staðbundin matargerð er hugtak
sem heyrist æ oftar, en með því er
átt við mat sem unninn er úr hrá-
efni og sam-
kvæmt hefðum
tiltekins svæð-
is. Næsta vor
verður haldin
keppni í vest-
firsku mat-
arhandverki á
Patreksfirði og
er tilgang-
urinn að efla
matarmenn-
ingu á svæð-
inu, kynna nýjar vörur og koma
þeim í framleiðslu. „Með mat-
arhandverki er átt við mat sem er
ekki framleiddur í miklum mæli í
verksmiðju. Við viljum byggja á
hinu smáa og sérstæða og leggj-
um áherslu á að mannshöndin
komi að verkinu,“ segir Viktoría
Rán Ólafsdóttir, verkefnastjóri
hjá Atvinnuþróunarfélagi Vest-
fjarða, en félagið stendur að
keppninni ásamt Matís.
Viktoría segir keppnina vera
fyrir alla, ekki bara fyrir reynda
matreiðslumenn.
Fyrirmyndin kemur frá Svíþjóð
og takist vel til mun keppnin
verða haldin í fleiri landshlutum.
Spurð um hvað einkenni vest-
firska matargerð segir Viktoría
það vera margt. „Þetta er svo
stórt landsvæði. T.d. erum við
með fugl og egg við Breiðafjörð,
landbúnaðarvörur í Strandasýslu
og svo er mikið um saltfisk, há-
karl og siginn fisk. Svo eru það
auðvitað bláberin okkar.“
annalilja@mbl.is
Matarhandverkskeppnin á Vestfjörðum
Byggja á hinu
smáa og sérstæða
Ljósmynd/Ágúst G. Atlason
Kræsingar Áhugasamir frumkvöðlar geta látið ljós sitt skína í Mat-
arhandverkskeppninni sem verður haldin á Patreksfirði næsta vor.
Viktoría Rán
Ólafsdóttir
Vænleg sprotafyrirtæki
NÝSKÖPUN OG FRUMKVÖÐLASTARF Á VESTFJÖRÐUM
Á Vestfjörðum eru mörg vænleg sprotafyrirtæki.
Nefna má fjögur lítil fyrirtæki sem athygli hafa
vakið: Víur, ræktunarfélag fóðurskordýra á Ísa-
firði, stefnir að framleiðslu skordýrapróteins;
Icelandic Fish Exports í Bolungarvík er að hanna
rekjanleikalausnir fyrir sjávarútvegsfyrirtæki;
Gullsteinn á Reykhólum framleiðir vörulínu af
lífrænum þara í formi fæðubótarefna; Bíldalía á
Bíldudal vinnur að margmiðlunarverkefni.
Þaratöflur Jón Árni
Sigurðsson hjá Gull-
steini með vöruna.
vandamál tengd loftslagsbreyt-
ingum,“ segir hún.
Dagný segir umhverfið á
Ísafirði henta vel fyrir námið,
þar sé rannsóknarumhverfi þar
sem nemendur geta aflað sér
upplýsinga og margir nemendur
geri lokaverkefni sem tengjast
rannsóknarverkefnum á stað-
inum. Þá segir hún námsfólkið,
sem hefur margvíslegan bak-
grunn, setja mark sitt á sam-
félagið.
„Þetta hefur gert mikið fyrir
mannlífið. Krítíski massinn, 20-
30 manns á ári í bænum, verður
til þess að það er hægt að reka
eitt kaffihús í viðbót. Við höfum
auk þess nokkuð mörg hjóna-
bönd á samviskunni,“ gantast
hún „Mér finnst þetta mjög já-
kvætt fyrir samfélagið; að fá nýtt
blóð, fólk með nýjar hugmyndir.“
Morgunblaðið/Kristinn
Nám Dagný Arnarsdóttir fagstjóri.
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
nýja súrdeigsbrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.