Morgunblaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 29
» Lína langsokkur, Níels api og hesturinn mættuí Borgarleikhúsið sl. laugardag ásamt vinum
sínum Tomma og Önnu og skemmtu frumsýning-
argestum eftir mætti. Leikritið hitti í mark og
kemur ekki á óvart enda má þess geta að
Astrid Lindgren, höfundur Línu langsokks, er
einn ástsælasti barnabókahöfundur allra tíma.
leikhúsinu
Spennt Björk Vilhelmsdóttir, Eldar Zopes, Eygló Angarita, Eva Björk
Angarita og Sveinn Rúnar Hauksson.
Fjölmenni Ólafur
Ragnar Grímsson,
forseti Íslands,
mætti með fjölmenni
á sýninguna.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2014
Boyhood eftir bandaríska leikstjórann Richard Linkla-
ter verður lokamynd Alþjóðlegrar kvimkyndahátíðar í
Reykjavík, RIFF. Myndin hefur hlotið lofsamlega
dóma gagnrýnenda, er með fullt hús stiga á vefjunum
Metacritic og Rotten Tomatoes og þykir merkileg fyrir
þær sakir að hún var tekin upp á 12 ára tímabili.
Í Boyhood er fylgst með uppvexti ungs drengs, Ma-
son, sem leikinn er af Ellar Coltrane. Segir af einstæðri
móður, Oliviu, sem flytur með börnum sínum til Hou-
ston og hefur þar nám. Hún giftist kennara, Bill, sem á
einnig börn og þurfa börn beggja að laga sig að nýjum
aðstæðum og læra að búa saman. Þegar líður á sam-
búðina kemur í ljós að Bill er drykkfelldur ofbeld-
ismaður. Patricia Arquette og Ethan Hawke leika Oli-
viu og Bill en Hawke hefur leikið í nokkrum mynda
Linklaters.
„Riff náði á lokametrunum að gera samning um
þessa mynd til sýninga á hátíðinni og við erum mjög
stolt af því að sýna þessa frábæru mynd sem vakið hef-
ur heimsathygli,“ segir í tilkynningu frá RIFF um
myndina.
Hátíðin hefst 25. september og stendur til 5. október.
Einstök Ellan Coltrane í Boyhood. Gagnrýnendur hafa ausið myndina lofið og m.a. kallað hana tímamótaverk
og algjörlega einstaka. Myndin var tekin á 12 árum og eldist því Coltrane um jafnmörg ár í henni.
Lokamynd RIFF tekin á 12 árum
EIN ÓVÆNTASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
JENNIFER ANISTON
ISLA FISHER
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
L
12
12
NOVEMBER MAN Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:20
PÓSTURINN PÁLL 2D Sýnd kl. 5:50
PARÍS NORÐURSINS Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:10
LIFE OF CRIME Sýnd kl. 10
LUCY Sýnd kl. 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Hollar vörur úr náttúrunni
í hæsta gæðaflokki
Hamp fræ Kinoa fræ Chia fræ Möndlumjöl
H-Berg efh | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is
FRÁBÆR
T
VERÐ
Morgunblaðið/Eggert