Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 33
Sífellt algengara er að fólk vilji deila með vinum sínum á samskiptamiðlum hvaða kvikmyndir og sjónvarpsefni það horfir á. Þá nota margir tækifærið og segja skoðun sína á efninu. Notendur Netflix gera þetta í miklum mæli en fyrir- tækið býður nú notendum sínum upp á þá nýjung að stýra því betur hverjir úr þeirra vinahópi á Facebook geta séð hvað horft er á gegnum Netflix. Þannig er ekki stöðugt streymi af tilkynningum um að þessi hafi horft á þetta og líkað eða líkað ekki, heldur er hægt að velja sér sérstaka vini sem notandinn telur að hafi áhuga á að heyra af áhorfinu. Með þessu vonast Netflix eftir því að til verði líflegri umræða um hverja þáttaröð eða kvikmynd, þannig að þeir sem raunverulega hafa áhuga á efninu taki þátt í stað þess að áhugalausir séu stöðugt upplýstir um hluti sem þeir þurfa ekki að vita og vilja ekki vita. Um 50 milljónir manna hafa aðgang að Netflix en þjónustan veitir aðgang að fjölda kvikmynda og sjón- varpsþátta. Notendur greiða mánaðargjald fyrir notk- unina en ekki er greitt fyrir einstakan þátt eða kvik- mynd. Langflestir notendur eru í Bandaríkjunum, eða 36 milljónir, en notendur dreifast allt á 40 þjóðlönd. Í hverj- um mánuði horfa notendur á efni á veitunni í yfir saman- lagt einn milljarð klukkustunda. Hjá Netflix starfa nú um 900 manns. HÆGT AÐ DEILA MEÐ VÖLDUM VINUM Netflix-veitan fer sístækkandi og notendur geta tengt að- gang sinn við Facebook. Morgunblaðið/Kristinn Nýir möguleikar hjá Netflix 7.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 *Ég vakna á hverjum morgni og hugsameð mér, hvernig get ég þrýst fyrirtæk-inu í jákvæða átt á næstu 24 stundum? Leah Busque, stofnandi og framkvæmdastjóri markaðsfyrirtækisins TaskRabbit. Hvíta húsið hefur ráðið konu sem tæknistjóra hússins. Sú heitir Megan Smith og hefur starfað meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá Google og hefur áratuga reynslu í tæknigeiranum. Stefna Bandaríkjanna er sú að fylgja öllum tækninýjungum sem ríða yfir heiminn og tengja jarðarbúa sífellt betur saman. Obama og hans föruneyti er því í góðum höndum hjá Smith við að læra á nýjustu tæknina jafnóðum. Obama sagði í fréttatilkynningu að Megan hefði á far- sælum ferli verið leiðandi á sínu sviði, stjórnað hæfi- leikaríkum hópum og átt frumkvæði að ýmsum krefjandi og frumlegum hugmyndum, hönnun og uppsetningu á sviði tækni og nýsköpunar. Hann segist sannfærður um að í nýju starfi sem tæknistjóri Bandaríkjanna muni Smith nýta forystuhæfileika sína og framúrskarandi hæfni til að starfa í þágu bandarísku þjóðarinnar. MEGAN SMITH VERÐUR YFIR ÖLLU TÆKNISVIÐI HVÍTA HÚSSINS Nýr tækni- stjóri Hvíta hússins Ánægja ríkir hjá Obama og hans fólki í Hvíta húsinu með ráðningu Megan Smith sem tæknistjóra Bandaríkjanna. Breska dagblaðið Telegraph greindi frá því í vikunni að í Bretlandi væri þriðji hver Breti farinn að huga að snjallsímanum sínum um leið og hann vaknaði – og áður en hann færi fram á bað- herbergi. Flestir eru að athuga hvort einhver hafi sent þeim skilaboð, sms eða á samfélagsmiðlum, um nóttina. Flestir skoða fyrst sms- in, þá tölvupóstinn og facebook-skilaboðin. Það var Deloitte í samstarfi við UK mobiles sem lét gera rannsókn- ina. Þá leiddi rannsóknin einnig í ljós að einn af hverjum sex snjall- símanotendum kíkir á símann sinn meira en fimmtíu sinnum á sólarhring. Fólk á aldrinum 18-24 ára er áköfustu notendurnir. Samkvæmt frétt Telegraph eru æ fleiri snjallsímanotendur farnir að gera sér grein fyrir notkun sinni og hafa jafnvel lagt símann tímabundið alveg á hilluna og far- ið í „afvötnun“. Í Bretlandi er jafnvel hægt að fara í stafrænar afvötnunarbúðir þar sem fólk æf- ir sig í því að vera ekki í síman- um og fráhvarfseinkenni eru víst jafn algeng og í áfengismeðferð. Rannsókn, einnig á vegum Deloitte, sem framkvæmd var fyrir nokkru leiddi í ljós að snjall- símaeigendur hlaða þó æ færri smáforritum niður. BRESK RANNSÓKN Snjallsímafíklar Snjallsímar geta verið mjög ávanabind- andi og erfitt að minnka notkun þeirra. AFP 11" verð frá 159.990.- 13" verð frá 179.990.- Libratone LOOP Nýjasti hátalarinn frá Libratone. Glæsileg hönnun, tær og hreinn hljómur. AirPlay og PlayDirect tækni til að spila þráðlaust, jafnvel án WiFi nets. Verð94.990.- Master Tracks Sol Republic Master Tracks eru vönduð og stílhrein heyrnartól. Þú færð þægindi, hljómgæði, og vandaða tækni. Verð 24.990.- Verð áður 32.990.- Lækkað verð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.