Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Qupperneq 47
Ísland fer með formennsku í Norrænu
ráðherranefndinni á þessu ári og óskaði af
því tilefni eftir samstarfi við hin Norður-
löndin. Staðbundin samstarfsnet verða sett á
öllum Norðurlöndunum, þar með talin
Álandseyjar, Færeyjar og Grænland.
Kennsluverkefnið hefur fylgt Björk um all-
an heim en í borgunum þar sem Biophiliu-
tónleikar voru haldnir var staldrað við og
samstarf haft við vísindamenn og tónlistar-
kennara. Oftar en ekki urðu skólar í fátækari
borgarhlutum fyrir valinu, þar sem nemendur
eiga jafnvel ekki snjallsíma. „Þetta hefur ver-
ið mikið ævintýri og öllum hugmyndum var
safnað saman í poka sem bætist við hug-
myndirnar sem Reykjavíkurborg safnaði
saman í samskonar vinnu í þrjú ár. Það er
því úr ýmsu að moða og með hjálp norræns
styrks, sem við höfum fengið, búum við til Bi-
ophiliu 203. Verkefnið mun eflaust ekki heita
það en þú skilur hvað ég er að fara. Þarna er
ég ekki að tala um dulspekilegt app, heldur
námsefni sem hvaða kennari sem er getur
farið með inn í skólastofuna.“
Erfitt að hengja lög á vegg
Þar með er verkefnið raunar komið í hring.
„Upphaflegur tilgangur verkefnisins var að
taka tónlistarnámið út úr bókinni og þess
vegna er það óneitanlega mótsagnakennt að
setja efnið inn í bók. En svona hefur þetta
þróast og það hefur verið rosalega gaman að
vinna með öllu þessu fólki sem flestallt gefur
vinnu sína.“
Það er skammt stórra högga á milli hjá
Björk en MoMA, nútímalistasafnið í New
York, tilkynnti í sumar að safnið mundi á
næsta ári halda sýningu sem tileinkuð er
fjölþættri list hennar. Sýningin, sem heitir
einfaldlega Björk, er skipulögð af Klaus Bie-
senbach, safnstjóra MoMA og deildarstjóra
MoMA PS1, og spannar meira en tuttugu ár
af djörfum og ævintýralegum verkefnum
Bjarkar ásamt sjö stúdíóplötum hennar í
fullri lengd, frá Debut (1993) til Biophiliu
(2011).
Á heimasíðu safnsins kemur fram að varp-
að verði ljósi á feril Bjarkar í gegnum tón-
listina, kvikmyndir, myndefni, hljóðfæri,
hluti, búninga og flutning. Innsetningin mun
innihalda frásögn, bæði ævisögulega og
skáldaða, sem samin er af Björk og rithöf-
undinum Sjón. Samvinna Bjarkar við leik-
stjóra, ljósmyndara, fatahönnuði og lista-
menn verður hluti af sýningunni. Sérstök
mynd verður gerð fyrir sýninguna þar sem
leikstjórinn Andrew Huang og Autodesk,
leiðandi afl í þrívíddarhönnun, munu hugsa
og hanna í samvinnu við Björk.
Sýningin mun standa frá 7. mars til 7. júní
2015 og er MoMA eini sýningarstaðurinn.
„MoMA hafði fyrst samband við mig fyrir
um fjórum árum og óskaði eftir samstarfi
um sýningu,“ upplýsir Björk. „Ég var auðvit-
að upp með mér en vissi ekki alveg hvernig
ég átti að taka þessu. Það er svolítið erfitt
að hengja lög upp á vegg.“
Hún brosir.
„Ég velti þessu fyrir mér í tvö ár en það
var á endanum Anthony vinur minn söngvari
sem sannfærði mig um að slá til. Ég yrði að
gera þetta í nafni tónlistarinnar og í nafni
kvenna. Þá tókst mér að búa til einhvern
kyndil.“
Ný plata á næsta ári
Hugmyndavinnan er í fullum gangi og Björk
segir aðstandendur vera komna niður á nálg-
un sem hún vonar að virki. „Sýningin verður
í fjórum hlutum og stór partur verður Bio-
philiu-tengdur. Hljóðfærin, kennslupró-
grammið og fleira.
Enn og aftur er ég úti í kanti varðandi
baksýnishluta sýningarinnar enda ekki við
hæfi að ég sé að fjalla um mig. Best að láta
öðrum það eftir. Sá hluti sýningarinnar sem
ég læt mig aðallega varða er ný lög sem
flutt verða í MoMA og ég er einmitt að
vinna í þeim núna. Það kemur pottþétt plata
á næsta ári með þessu efni og væntanlega
einhverju meira.“
Spurð í hvaða átt hún ætli á þeirri plötu
hallar Björk sér aftur í sætinu, hugsi. „Ég
veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því,“
segir hún eftir stutta stund. „Þegar maður
er inni í miðju verkefni er hættulegt að lýsa
því. Tali maður um eitthvað sem maður er
ekki búinn að gera getur maður ekki hætt
við það. Eða hvað? Það eina sem ég get sagt
á þessum tímapunkti er að þetta verkefni
verður öfugt við Biophiliu.“
Ekki í partíum með Jackson
Fáeinar mínútur eru eftir af umsömdum við-
talstíma og upplagt að nota þær til að spyrja
Björk aðeins út í persónulega hagi hennar.
Eftir að hún sló í gegn á heimsvísu hefur
Björk skipt tíma sínum nokkuð jafnt milli Ís-
lands og útlanda. „Það halda sumir að ég sé
lítið hérna heima en það er öðru nær. Ég
tala að vísu mjög lítið við fjölmiðla meðan ég
er hérna heima og þess vegna heldur fólk
kannski bara að ég sé úti í heimi í partíum
með Michael Jackson. Þá er ég bara í Vest-
urbæjarlauginni.“
Hún glottir.
Undanfarin sex ár hefur skiptingin verið
mjög skýr. Dóttir Bjarkar gengur í skóla í
Brooklyn frá janúar til júní og hér heima frá
ágúst til jóla. „Það gengur mjög vel og við
höldum því örugglega áfram. Ég var mikið
heima í sumar sem var mjög gaman. Sumrin
eru skemmtilegust á Íslandi. Og jólin. Ann-
ars er ég alltaf að læra betur að meta haust-
in og þau eru að verða svolítið uppáhalds.
Það er eitthvað við haustin!“
* Ég var auðvitað uppmeð mér en vissiekki alveg hvernig ég átti
að taka þessu. Það er svo-
lítið erfitt að hengja lög
upp á vegg.
7.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47