Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.10. 2014
Matur og drykkir
NAUTAFILLE:
Olía
hvítlaukur (eftir smekk, við
notum ca 5-6 hvítlauksgeira)
pipar
Öllu blandað saman og penslað
yfir kjötið rétt áður en kjötið fer
á grillið. Grillað á hvorri hlið í ca
4 mín, látið standa í nokkrar mín
undir álpappír. Skorið í sneiðar og
saltað eftir smekk.
CHIMICHURRI:
½ bolli rauðvínsedik
1 tsk salt
3-4 hvítlauksgeirar
1 rautt chili
ein lúka steinselja
½ laukur
¾ bolli ólífuolía
2 stk oregano
svartur pipar eftir smekk.
Gott er að láta blandara skera
þetta ef hann er til á heimilinu en
einnig er hægt að saxa þetta nið-
ur sjálfur. Fyrir þá sem eru hrifnir
af kóríander þá er mjög gott að
bæta honum við.
Kartöflur:
Litlar kartöflur, hreinsaðar vel
og skornar í báta. Olíu, hvítlauk,
rósmarín, salt og pipar er blandað
yfir þær. Bakað í ofni í ca 45 mín,
ofninn stilltur á grill síðustu 5
mín.
Meðlæti:
Ég notaði veislusalat, en er
mjög hrifin af klettasalati með
þessu (var ekki til). Vatnsmelóna
skorin í litla bita, rauðlaukur skor-
inn í þunnar ræmur, hreinn feta-
ostur og ristaðir pekanhnetu-
kjarnar.
H
arpa Káradóttir er iðin í eldhúsinu en hún segir áhugann á
matargerð hafa komið með aldrinum. „Já, ætli ég flokkist
ekki undir það að vera matgæðingur. Ég hef sífellt meiri
áhuga á matargerð og öllu sem við kemur því að elda mat
og bera hann á borð,“ segir Harpa en hún er sjálfstætt starfandi
sminka og á von á sínu fyrsta barni með unnustanum Daníel Ólafssyni.
Báðum þykir þeim gaman að elda og eru dugleg að gera það í samein-
ingu. „Okkur finnst mjög gaman að skipta með okkur verkum og reyn-
um að blanda okkur ekki mikið í það sem hinn aðilinn er að gera,“
segir Harpa brosandi. „Ég sé þó yfirleitt um að leggja á borð og gera
fínt og finnst Daníel það oft geta verið fullmikið af því góða, sér-
staklega á virkum dögum,“ segir Harpa og hlær. Hún segir það þó
skipta máli að hafa huggulegt í kringum sig, sér í lagi þegar halda á
matarboð. „Það er svo margt sem gerir matarboð ennþá betra. Fyrst
og fremst myndi ég segja að sá sem er að bjóða ætti að vera búinn að
skipuleggja sig vel og alls ekki vera í tímaþröng. Stemningin hefur allt
að segja þegar kemur að því að bjóða fólki í mat. Það er mikilvægt að
hafa huggulegt í kringum mann og leggja fallega á borð, kveikja á
kertum og setja á einhverja skemmtilega tónlist. Gott vín með matnum
er nokkuð sem minn vinahópur hefur einnig mjög gaman af.“
Lærði af Hrefnu Sætran
Harpa var sminka fyrir meistarakokkinn Hrefnu Rósu Sætran í mat-
reiðsluþáttum hennar og segist hún hafa lært helling af því. „Ég sá
hvað góð vinnubrögð skipta miklu máli og einnig hvað góð eldhúsáhöld
geta létt manni lífið. Auðvitað er miklu skemmtilegra að vinna með
góða hnífa og réttu græjurnar hverju sinni. Þar lærði ég einnig að ef
maður gefur sér tíma, vandar sig við hvern einasta hlut, gengur jafn-
óðum frá og þrífur áhöldin á milli verka, þá einhvernveginn virðast
hlutirnir ganga betur upp. Ég mæli með því fyrir þá sem eru að stíga
sín fyrstu skref í eldamennsku að læra af foreldrum sínum og fólkinu í
kringum sig, vera óhrædd við að prófa sig áfram og gefast ekki upp
þó að maður klúðri einhverju. Það er ekki sjálfgefið að hlutirnir
heppnist í fyrstu,“ segir Harpa sem segist vera meira fyrir það að
elda heldur en að baka. Það geti hins vegar verið því hún hafi ekki
æft sig nógu mikið í bakstrinum. „En ég hef mjög gaman af því að
skoða myndir af mat og eftirréttum á Pinterest, sérstaklega eftir að
ég varð ólétt, þá hefur áhugi minn á því að kunna að baka verulega
aukist.“
Flugnasprey í kökuna
Samhliða spjalli um bakstur lumar Harpa á skemmtilegri sögu úr eld-
húsinu þegar hún var svo elskuleg að baka köku fyrir veika vinkonu
sína á yngri árum. „Ég var mjög ung þegar ég bakaði köku fyrir vin-
konu mína, Kollu, en hún lá þá veik heima. Ég spreyjaði óvart köku-
formið með flugnaspreyi í stað þess að nota kökusprey. Alsæl gekk ég
yfir til vinkonu minnar, skælbrosandi og stolt, en kakan vakti ekki
mikla lukku,“ segir Harpa og hlær.
Morgunblaðið/Ómar
FYLGDIST MEÐ VINNUBRÖGÐUM HREFNU SÆTRAN ER HÚN VANN VIÐ ÞÆTTI HENNAR
Skipta með sér verkum
PARIÐ HARPA KÁRADÓTTIR OG DANÍEL ÓLAFSSON HAFA TAMIÐ SÉR ÞAÐ AÐ ELDA KVÖLDMATINN Í SAMEININGU.
GOTT VÍN MEÐ MATNUM, KERTALJÓS, SKEMMTILEG TÓNLIST OG HUGGULEG STEMNING ER NOKKUÐ SEM SKIPTIR
MIKLU MÁLI ÞEGAR HALDA Á MATARBOÐ. HARPA ER HINS VEGAR DUGLEG VIÐ AÐ SKAPA EINNIG HUGGULEGA
STEMNINGU FYRIR KVÖLDVERÐI VIRKU DAGANA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Harpa og Daníel njóta þess að elda saman og eiga þau von á sínu fyrsta barni.
Morgunblaðið/Ómar
Nautafille með
chimichurri