Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Qupperneq 36
Fyrirtækið Plantronics þekkja líkast til helst tölvulúðar,enda er það helst þekkt fyrir heyrnartól með hljóðnemumtil tölvubrúks, og er brautryðjandi í slíkum apparötum frá
því það var stofnað af flugmönnum á sjöunda áratugnum til að
framleiða heyrnartól fyrir flugvélar og síðar fyrir geimflaugar.
Með tímanum varð fyrirtækið síðan ráðandi í þráðlausum síma-
heyrnartólum og þaðan var ekki langt að fara inn í tölvu-
leikjaheiminn.
Í gegnum tíðina hef ég átt og prófað ýmis Plantronics-
heyrnartól og fundist þau alla jafna vera mjög hagnýt og hag-
kvæm, en ekki ýkja spennandi. Hljómur í þeim hefur verið
prýðilegur, skýr og góður, en oft hefur vantað smá líf í hann,
meiri botn í bassann, mýkt í miðjuna eða snerpu í diskantinn.
Það kom því skemmtilega á óvart
þegar ég prófaði ný heyrnartól frá
fyrirtækinu, Backbeat Pro, sem
skila einkar skemmtilegum hljóm
hvort sem maður er að hlusta á
bassadrunur í hiphopi, diskant í
svartmálmi eða sæta strengi
strengjakvartetts.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd þá eru heyrnartólin
lokuð, þ.e. þau leggjast yfir
eyrað og þétt að höfðinu. Kostur við þetta er að
maður getur spilað eins hátt og mann lystir án
þess að ónáða nærstadda og þeir ónáða mann
líka síður, en getur verið ókostur líka, því
hljómur í slíkum heyrnartólum verður ekki
eins „lifandi“, eðli málsins samkvæmt, því
umhverfishljóð eru alla jafna hluti af hljóð-
myndin þegar hlustað er á tónlist.
Aðalmálið við þessi heyrnartól er þó
ekki það að þau séu lokuð og hljómi
vel, heldur það að þau eru sérdeilis
tæknileg og reyndar ævintýralega
tæknileg ef miðað er við verð.
Þannig eru þau þráðlaus
(Bluetooth v4.0 Class 1) með
rafhlöðu sem dugir í sól-
arhring og það þó notuð
sé innbyggð umhverf-
ishávaðavörn. Sú vörn
byggist á því að í
heyrnartólunum er
hljóðnemi sem grein-
ir umhverfishljóð og
heyrnartólin senda
síðan frá sér sam-
svarandi hljóð-
bylgjur til að
„kæfa“ óæskilegar
hljóðbylgjur. Alla
jafna virkar þetta
helst á samfelld um-
hverfishljóð, eins og til
að mynda hávaða í flug-
hreyflum eða vélum bifreiða og
því koma slík heyrnartól helst að
gangi á ferðalögum.
Vörnin virkar mjög vel á þessum
Plantronics-heyrnartólum, en það kem-
ur nokkuð niður á hljómgæðum þegar
kveikt er á kerfinu – hljómur verður allur daufari
og styrkur minnkar. Þó að það sé vissulega galli þá varð
ég ekki var við það þegar ég notaði heyrnartólin á hávaðasöm-
um stöðum – það dró ævintýralega mikið niður í umhverf-
ishljóðum og fyrir vikið fannst mér hljómur í tólunum einfald-
lega frábær við þau skilyrði. Það má líka geta þess að hægt er
að nota heyrnartólin sem eyrnaskjól, því vitanlega er hægt að
nota þau til að draga úr umhverfishljóðum án þess að vera
með músík í gangi.
Það er einkar auðvelt að eiga við heyrnartólin. Ef smellt er
hátalaraskálarnar sjálfar getur maður sett músíkina af stað og
stoppað hana (vinstri skál) eða tekið símann (hægri skál). Á
skálunum utanverðum eru líka hjól sem hægt er að snúa til
að hækka og lækka (hægri) eða stökkva á milli laga
(vinstri). Það byggist þó á því að maður sé að nota Blueto-
oth-tenginguna, því ekki er hægt að stýra tækjum gegnum
hátalarasnúrur. Að því sögðu þá er fjarstýring á snúrunni
sem fylgir með heyrnartólunum og þar hægt að stoppa og
spila, og hún er Apple-vædd, þ.e. tengið á henni nær niður í
Apple-tengi.
Ef maður er með heyrnartólin á kollinum og að hlusta á
músík úr síma láta þau vita ef hringt er í símann; tónlistin
lækkar og hljóðmerki gefur símtal til kynna. Með því að
smella á hnappinn á hægri skálinni er hægt að svara í sím-
ann og þá notar tækið hljóðnema fyrir umhverfishávaða-
vörnina til að svar í símann. Virkar fínt og hljómaði bráðvel
að sögn þess sem tók þátt í þeirri tilraun. Þetta virkar líka
vel ef maður er með tvö tæki tengd og þá kannski að horfa
á kvikmynd eða spila leik í spjaldtölvu, en getur svarað í
símann án þess að taka heyrnartólin af kollinum.
Sami hnappur lækkar tímabundið í tónlistinni ef mann
langar að heyra eitthvað frá umhverfinu.
Með heyrnartólunum fylgir gerviefnispoki með frönskum
rennilás til að geyma þau í, metralöng hátalarasnúra og
USB-snúra með micro-tengi til að hlaða þau. Það tekur um
þrjá tíma að hlaða þau ef búið er að tæma af þeim alla
hleðslu og hver hleðsla dugir í sólarhring ef maður notar
umhverfishávaðavörnina og allt að sextíu tímum ef slökkt
er á henni. Nú situr enginn, eða næstum enginn, með
heyrnartól á kollinum samfleytt í marga klukkutíma, en
Backbeat Pro-tólin eru þeirrar náttúru að þau slökkva sjálf-
krafa á sér þegar þau eru tekin niður, eða réttara sagt
doka við, sem spara náttúrlega rafmagn.
Galli við Bluetooth-vædd heyrnartól (og hátalara) hefur
iðulega verið að tengingin er ekki traust og drægnin lítil,
þ.e., ekki þarf nema nokkur skref þá er sambandið lélegt
eða ekkert. Í því ljósi fannst mér drægnin býsna góð á
BackBeat Pro því ekki rofnaði samband eða varð lakara þó
að ég færi alllangt frá músíkspilaranum og veggir væru á
milli. Á vefsetri Plantronics er þess getið að drægnin sé allt
að 100 metrum sem ekki verður dregið í efa hér.
Þegar kveikt er á heyrnartólunum (og maður er með þau
á höfðinu) kemur rödd sem segir til um hleðslu og tengingu
(„tengt við tæki eitt“ o.s.frv.). Að því er kemur fram á síð-
um Plantronics er hægt að fá þau skilaboð á ýmsum tungu-
málum, til að mynda dönsku, kóresku, þýsku, ítölsku,
rússnesku og mandarín. Það eru líka gaumljós á
heyrnartólunum sem sýna hleðsluna þegar kveikt
er á þeim.
Plantronic BackBeat Pro kostar 49.900 kr. í
netverslun Nýherja.
HÁTÆKNILEG HEYRNARTÓL
HEYRNARTÓL ERU EKKI ALLTAF BARA HEYRNARTÓL, EINS OG SJÁ MÁ OG REYNA Á NÝJUM HEYRNARTÓLUM FRÁ PLANTRONICS, BACKBEAT PRO, SEM
ERU SÉRDEILIS TÆKNILEG, EKKI SÍST EF MIÐAÐ ER VIÐ VERÐ.
* Þess má svo geta að biðtímiheyrnartólanna er þrjár vikur, en
heyrnartólin eru ekki notuð lengi
dregur svo úr straumeyðslu að
hleðsla ætti að haldast í allt að sex
mánuði af sögn framleiðanda. Raf-
hlaðan er innbyggð og ekki hægt
að skipta um hana sjálfur, en sé
ekki að að sé vandamál miðað
við auglýsta endingu.
* BackBeat Pro heyrnar-tólin eru óneitanlega nokkuð
þung, 340 grömm - það
kostar sitt að hafa ala þessa
tækni tiltæka. Þau fara vel á
höfði og ég fann ekki fyrir
þyngslunum framan af, en
þegar ég var búinn að sitja
með þau samfellt í klukku-
tíma fann ég óneitanlega
fyrir þyngslunum.
* Það er sárareinfaltað tengja heyrnartónlist
við Android farsíma
enda styðja þau NFC
tengingar. Það eina
sem þurfti var að
bera símann upp af
NFC-merki á vinstri
skálinni og heyrnar-
tólin tengdust um
leið. Hægt er að
tengja tvö tæki við og
þannig vera með farsíma
og spjaldtölvu tengd samtímis
til að mynda og skipta á milli
þeirra.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Græjur
og tækni
CE-vottað sleppur inn í landið
Morgunblaðið/Rósa Braga
*Tollstjóri sendi frá sér tilkynningu í vikunni til aðbenda á, að gefnu tilefni, að rafmagnstæki sem keypteru erlendis eða pöntuð á netinu þurfa að bera CEmerkingu til að flytja megi þau til landsins sam-kvæmt gildandi tilskipunum á Evrópska efnahags-svæðinu. Lausleg samantekt sýndi að 70-80 send-ingar frá Kína voru stöðvaðar á tveggja mánaða
tímabili í sumar vegna þess að CE-merkingar vant-
aði. Einkum var um að ræða síma og spjaldtölvur.