Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 41
5.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
•100%
NÁTTÚRUL
EG
T
•
Fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!
Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt
öðrum öflugum góðgerlum
Oft spurt?
Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð-
gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga-
erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang,
uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl.
Svar
Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ
DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa
ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana.
Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur
þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum,
vinnusamur og stöðugur.
Notkun
2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir
sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari.
- Prófaðu og upplifðu muninn
www.gilbert.is
ÚRAFRAMLEIÐANDI
Í HEIMI
SENNILEGA MINNSTI
V
ið Kolbrún Bergþórsdóttir,
samstarfskona mín, elsk-
um leikarann George
Clooney ákaflega heitt og þess
vegna brugðum við á það ráð að
halda íslenska veislu í tilefni af
brúðkaupi hans og Amal Ala-
muddin en eins og fram hefur
komið í fréttum gifti parið sig um
síðustu helgi í Feneyjum. Aðal-
fréttin í þessu er náttúrlega sú að
Clooney var búinn að gefa það út
að hann ætlaði aldrei að kvænast
eftir að hafa prófað það eitt sinn í
upphafi ferils síns. Þetta hefur
gert það að verkum að hann hefur
verið í stöðugri eftirspurn – ekki
framboði.
Til þess að geta slegið upp veisl-
unni þurfti undirrituð að fjárfesta í
sérstökum „brúðartertuformum“
og auðvitað er ekki hægt að baka
brúðartertu nema það sé huggu-
legt par á toppnum. Á algerlega
síðasta snúningi labbaði ég eins og
óð kona inn í Smáralind og fjár-
festi í brúðartertuformum og
brúðarpari. Afgreiðslukonan var
svo sérstaklega almennileg þegar
ég var að velja brúðarparið og
kökuformin að ég þorði ekki öðru
en að segja henni að þetta væri
sko ekki fyrir mína veislu …
Það að eiga sín eigin brúð-
artertuform og brúðarpar setur
mann alveg á sérstakan stað í líf-
inu og getur svo sannarlega fram-
kallað ýmisleg ævintýri. Kolbrún
stakk reyndar upp á því að brúð-
arparið yrði geymt vel og vand-
lega þangað til Prinsinn Harry
myndi gifta sig. Ég benti henni á
að það yrði líklega búið að moka
yfir okkur báðar áður en sú stund
rynni upp. Svona villikettir eins og
Harry láta nú ekki binda sig niður
svo auðveldlega …
Í gegnum tíðina hef ég bakað
allskonar tertur og haft gaman af
og eftir að hafa bakað þetta
þriggja hæða flykki veit ég að það
tekur sirka átta tíma að klambra
því saman – hræra í og baka. Ég
meina, ef næsta brúðkaup ber
brátt að er ágætt að vera með
tímarammann á hreinu því miðað
við viðtökurnar gæti nýr frami
verið í uppsiglingu …
Þegar ég var búin að baka brúð-
artertuna lenti ég í smá vandræð-
um. Það er nefnilega ekkert grín
Undirrituð og Kolbrún Bergþórsdóttir með brúðartertuna.
Hinn gullni
þríhyrningur
Amal Alamuddin og Georg Clooney
glæsileg á forsíðu Hello.
að koma þriggja hæða tertu úr
miðbænum upp í Hádegismóa. Ég
brá því á það ráð að hafa botnana
þrjá aðskilda á leiðinni upp eftir og
keyrði löturhægt upp Ártúns-
brekkuna. Á leiðinni upp í Móa
kom ég við á uppáhaldskaffihúsinu
mínu og hitti þar tvo afar
skemmtilega menn, annar er verð-
launaleikstjóri og hinn athafna-
maður. Þegar ég fór að segja þeim
frá brúðartertunni sagði verð-
launaleikstjórinn: „Karlmenn eru
svolítið eins og þríhyrningur og þú
getur aldrei fengið öll þrjú hornin
til að vera í sinki. Karlmann hafa
yfirleitt tvo eiginleika af þremur. Í
grunninn er þeir myndarlegir, gáf-
aðir og traustir. Ef þeir eru mynd-
arlegir og gáfaðir þá eru þeir aldr-
ei traustir og ef þeir eru gáfaðir og
traustir þá eru þeir aldrei mynd-
arlegir. Ef þeir eru myndarlegir
og traustir þá getur þú gleymt því
að þeir séu gáfaðir.“
Ég verð að játa það að þetta var
töluvert áfall. Alla mína tíð hef ég
nefnilega haldið að karlmenn
væru þríhyrningar og það væri
eðlilegt ef þeir tikkuðu í öll horn
þríhyrningsins. Við Kolbrún Berg-
þórsdóttir erum sammála um að
Clooney sé hinn fullkomni gullni
þríhyrningur, gáfaður, myndar-
legur og traustur. Traustið komi
alltaf af sjálfu sér ef menn eru
kvæntir réttu konunum. Svo er
ágætt að hafa það bak við eyrað, ef
þú telur þig hafa hnotið um hinn
gullna þríhyrning, að það sem
maður veit ekki af truflar mann
ekki …