Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Síða 44
Fjármál
heimilanna
AFP
*Októberfest er orðin fastur liður í íslenskridrykkju- og veislumenningu og er það vel.Ekki er bjórinn samt ódýr á Íslandi, né heldurallra þjóða dýrastur. Samkvæmt vefsíðunniPintprice.com er glasið ódýrast í Tadsjikistan,Bútan og Búrúndí, kostar undir 72 kr. Dýr-astur er bjórinn á Grænlandi, í Noregi, Ísrael
og Katar, að jafnaði seldur fyrir meira en
1.150 kr. í löndunum fjórum.
Hvar er bjórinn ódýrastur?
Lífið er leikur einn fyrir Ólaf Þór Jóelsson
en hann hefur í tólf ár stýrt tölvu-
leikjaþættinum Gametíví. Á döfinni er Fifa
15 leikjamót sem haldið verður á Glaum-
bar 6. október á vegum FM 957 og Senu.
Hvað eruð þið mörg á heimilinu?
Við erum 4-5 í heimili, en talan lækkar og
hækkar eftir því hvort 13 ára guttinn minn
er á staðnum, en hann er alltaf reglulega
hjá okkur. Einnig hanga inni tveir kettir.
Hvað áttu alltaf til
í ísskápnum?
Mjólk og brauð toppa líklega þennan lista,
en það er alltaf einhver öryggistilfinning
sem fylgir því að eiga smánammi og hafra-
mjöl í hafragrautinn.
Hvað fer fjölskyldan með í
mat og hreinlætisvörur á
viku?
Alltof mikið eða í kringum 30-40 þús-
und og ekki er ég að strá gullflögum
yfir matinn.
Hvar kaupirðu helst inn?
Ég skipti innkaupunum bróðurlega á
milli Bónuss, Nettó og Krónunnar, fer
eftir stað og stund.
Hvernig sparar þú
í heimilishaldinu?
Ég er einfaldlega alltof latur við það og
kæmist örugglega ekki á pall á Ólymp-
íuleikum „sparara“. Hér þarf ég að
gera miklu betur.
Hvað vantar helst á heimilið?
Þar sem ég er staddur í miðju líkamlegu
átaki myndi ég vilja vaða í einn grjótharðan
„blender“ sem getur mulið allt. Blender-
inn sem ég er með núna á meira að segja í
erfiðleikum með að glíma við banana.
Eyðir þú í sparnað?
Ég tek alltaf reglulega upphæð á mánuði og
set í sparnað, svo er ég líka með sér-
eignasparnað, þannig að ég stend ágætlega
að vígi þar.
Skothelt sparnaðarráð?
Gera matseðil og versla á mánudögum
fyrir alla vikuna. Geggjað ráð skilst mér og
ég vona að ég nái einhverntíma tökum á
því.
ÓLAFUR ÞÓR JÓELSSON
Stráir ekki gullflögum yfir matinn
Ólafur segir því fylgja öryggistilfinning að eiga smávegis nammi.
Aurapúkinn er á þeirri skoðun að
alltaf eigi að vera til á heimilinu eitt-
hvert gott og seðjandi snarl til að
grípa í. Eitthvað sem er tilbúið til
átu, eða því sem næst, ekki of óhollt
né of hollt, og ekki of dýrt.
Í tilviki Aurapúkans er túnfisksalat
þessi undirstaða, þetta slökkvitæki
og skyndihjálparbox ísskápsins,
tilbúið fyrir neyðartilvik og aldrei
hægt að borða of mikið af. Tekur
enga stund að útbúa ef til eru
nokkrar túnfiskdósir, mæjónes, egg
og laukur.
Málið er nefnilega að án túnfisk-
salatsins verður yfirleitt eitthvað
annað, óhollara og dýrara, fyrir val-
inu þegar ísskápurinn er tómlegur
og garnirnar gaula. Púkanum hættir
þá til að kaupa sér dýran skyndibita
eða gúffa í sig einhverju kolvetnaríku
með afleitt næringargildi. Í besta falli
að Púkinn fer svangur að kaupa í
matinn, en eins og lesendur vita eru
matarinnkaup á tóman maga ekki
það sniðugasta fyrir pyngjuna né
heldur fyrir mittismálið.
púkinn
Aura-
Fyrsta hjálp
við hungur-
verkjum
Á
undanförnum árum hafa komið
fram á sjónarsviðið vefsíður sem
bjóða neytendum nýjan valkost í
gistingu þegar ferðast er. Vefir á
borð við Airbnb leyfa almenningi að leigja
ferðalöngum auka herbergi á heimilinu, heilu
íbúðirnar og jafnvel heilu húsin og hallirnar.
Fyrir eigandann þýðir þetta ágætis auka-
tekjur og fyrir ferðalanginn er þessi tegund
gistingar iðulega ódýrari en að dvelja á hót-
eli. Margir eru líka á því að það geri ferðina
ánægjulegri að búa inni á heimamanni sem
getur veitt selskap og ábendingar um hvað
er best að skoða.
Úttekt á vegum rannsóknarfyrirtækisins
Pricenomics leiðir hins vegar í ljós að það er
ekki alltaf ódýrara að velja gistingu í gegn-
um Airbnb og munurinn á verði hótels og
heimagistingar getur verið mismikill eftir
borgum.
Framboð og eftirspurn
Rannsóknin einblíndi á bandarískar borgir og
reiknaði út að að jafnaði kostar heil íbúð á
Airbnb 21,2% minna en hótelherbergi. Að
leigja stakt herbergi í heimahúsi kostaði að
jafnaði 49,5% minna en hótelherbergi.
Rétt er að taka fram að erfitt er að bera
saman mismunandi hótel í mismunandi gæða-
flokkum og íbúðir og herbergi af mismunandi
toga. Í íbúð hefur fólk aðgang að þægindum
á borð við eldhús og þvottavél en á hóteli er
aftur á móti iðulega hægt að finna líkams-
rækt, njóta herbergisþjónustu og ýmissa ann-
arra þæginda sem hótelið kann að bjóða.
Leigð herbergi bjóða líka upp á mismikið
næði, og ef gesturinn þarf t.d. að deila bað-
herbergi með öðrum heimilismeðlimum væri
nær að bera verð saman við farfuglaheimili.
Eins verður að muna að hótel eru oft stað-
sett nær ferðamannastöðum á meðan heima-
hús eru eðli málsins samkvæmt oftar í íbúða-
hverfum.
Hótelin ráða í Las Vegas
Þá breytist myndin þegar ferðast er til
smærri borga, þar sem framboðið á heima-
gistingu er minna. Þar minnkar verðbilið á
milli Airbnb og hótela og í sumum tilvikum
verður heimagistingin töluvert dýrari.
Þannig má reikna með að ódýrara sé að
gista á hóteli í glysborginni Las Vegas. Þar
kostar dæmigerð hótelnótt 94 dali en Airbnb
íbúð 135 dali. Eru hótelin einnig ódýrari
kostur í Houston, að jafnaði á 87 dali fyrir
nóttina á meðan Airbnb-gisting kostar að
meðaltali 100 dali. Í borginni Tucson í Ari-
zona er meira að segja ekki mikill munur á
hótelgistingu og að leigja stakt herbergi
gegnum Airbnb, 69 dalir á móti 60 dölum.
Er rétt að bæta við að gagnrýnendur hafa
bent á þann veikleika í rannsókninni að
Pricenomis miðaði við listaverð hótelanna,
þ.e. það verð sem boðið er þegar herbergið
er pantað beint í gegnum hótelið. Er mjög
oft hægt að finna sömu herbergi í boði á af-
sláttarkjörum á bókunarsíðum á borð við
Travelocity og Hotels.com.
Er því góð regla áður en ferðast er að
gera vandaðan samanburð á milli valkosta og
ganga ekki að því sem vísu að annaðhvort
hótelin eða heimagistingin séu ódýrari.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERA VERÐSAMANBURÐ
Ekki alltaf sparað
með Airbnb
HEIMAGISTING ER AÐ JAFNAÐI ÓDÝRARI EN HÓTELGISTING EN Í SUMUM BANDARÍSKUM BORGUM
MÁ REIKNA MEÐ AÐ HAGKVÆMARA SÉ AÐ GISTA Á HÓTELI EN LEIGJA ÍBÚÐ.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Waldorf Astoria hótelið í New York. Það er ekki svo auðvelt að bera saman verð á hótelum annars
vegar og heimagistingu hins vegar, enda íburðurinn og þjónustan ekki alltaf sú sama.
Ljósmynd / Wikipedia - Hennem08 (CC)