Fréttir - Eyjafréttir - 14.09.2000, Side 1
27. árgangur » Vestmannaeyjum 14. september 2000 » 37. tölublað » Verðkr. 140,- « Sími: 481 3310 » Fax:481
Kostnaðaráætlun
Vegaaerðarinnar
s
I
I
Það kom í hlut sr. Báru Friðriksdóttur að sjá um fyrstu
altarisgönguna í stafkirkjunni en hún var á laugardaginn.
er óraunhæf
og tilboð Samskips enn óraunhæfara, segir
Árni Johnsen sem telur að taka eigi því tilboði
sem næst er raunveruleikanum
„Ég leyni því ekki að ég er
vonsvikinn eftir niðurstöðuna á
mánudag,“ sagði Árni Johnsen,
alþingismaður. „Sérstaklega af því
að ég tei að tilboð Herjólfs hf. hafi
byggst á rauntölum. Vegagerðin
hefur á undanförnum árum haft
hönd í bagga með þessum rekstri og
ætti því að vera hnútum kunnug.
Utboðsgögnin tryggðu líka aukna
þjónustu, heimahöfn og aðsetur í
Vestmannaeyjum.
Svo koma þessi tvö tilboð, ásamt
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
sem ég fullyrði að sé 50-60 milljónum
króna of lág og mjög óraunhæf,
miðað við þær forsendur sem Vega-
gerðin hefur sjálf gefið. Mér finnst
ámælisvert af Vegagerðinni að leggja
fram svo óraunhæfa áætlun. Herjólfur
hf. hefur ekki verið rekinn með
tekjuafgangi og það var þeim fyllilega
kunnugt um. Tilboð Samskips er enn
óraunhæfara og erfitt að sjá að það fái
staðist nema þeir ætli sér jafnframt
þessu að nýta skipið til annarra
flutninga sem ég fæ ekki séð að sé
unnt.
I mínum huga er það grund-
vallaratriði að taka því tilboði sem
næst er raunveruleikanum. Tilboðs-
gjafar verða að gera grein fyrir sínum
tilboðum og Vegagerðin hefur marg-
oft hafnað tilboðum sem að hennar
mati hafa verið óraunhæf. Ég tel ekki
mögulegt að inna af hendi þá þjónustu
sem áskilin er í útboðsgögnunum,
fyrir þessa upphæð. Mér dettur helst í
hug að þeir Samskipsmenn hafi hrein-
lega gleymt að reikna með einhverju
atriði, t.d. leigu fyrir skipið sem er 36
milljónir á ári eða 108 milljónir fyrir
þriggja ára tímabil. Um það veit ég
ekki og get því ekki dæmt um það en
helst dettur manni eitthvað slíkt í hug.
Eg hef gagnrýnt Vegagerðina allt frá
því að ákveðið var að fara í útboð.
Þrátt fyrir EES-ákvæði um útboðs-
skyldu þá höfum við mörg dæmi þess
frá Evrópu þar sem ekki hefur verið
farið eftir þeim ákvæðum vegna
sérstakra staðbundinna aðstæðna,
svipað og hér eru fyrir hendi. Enda
kom það í ljós að engin tilboð bárust
utanlands írá.
Auðvitað er best að hafa þennan
rekstur í höndum heimamanna undir
virku aðhaldi opinberra aðila og
grundvallaratriði að stjómunin sé í
heimahöfn skipsins. Það hefur gengið
vel fram tiþ þessa og lítil ástæða til
breytinga. Éghefkallaðsamanfundí
kvöld með þingmönnum Suðurlands,
bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum og
framkvæmdastjóra Herjólfs hf. Þar
verður farið yfir stöðuna í þessu máli,“
sagði Ámi Johnsen.
Sjá bls. 18 og 19.
Fráleitt að bjóða út þjóð-
veginn milli lands og eyja
-segir Isólfur Gylfi Pálmason. Þingmenn
kjördæmisins funda um Herjólfsmálið í kvöld
„Ég var alltaf mótfallinn því að
bjóða rekstur Herjólfs út og fór
ekki dult með þá skoðun mína,“
sagði Isólfur Gylfi Pálmason þegar
rætt var við hann í gær. Ég tók
þetta mál upp í þinginu í fyrra og
skrifaði um það í Fréttir.
Mér þótti það fráleitt að bjóða út
þjóðveginn milii lands og eyja og það
kom mér á óvart að aðrir þingmenn
kjördæmisins skyldu ekki styðja mál
mitt á þingi. Fyrrverandi samgöngu-
ráðherra sagði raunar að Herjólfur
yrði ekki boðinn út en eftirmaður hans
var ekki á sama máli og nú liggur
niðurstaðan fyrir.“
Isólfur Gylfi sagði að þingmenn
Suðurlandskjördæmis myndu hittast á
fundi í kvöld og þar yrði þetta mál
rætt. „En við stöndum frammi fyrir
því að ákveðið var að setja reksturinn
f útboð og því verður ekki breytt
héðan af. Nú þýðir ekki að segja „allt
í plati“ við erum hættir við allt saman,
þannig vinna menn ekki. Þetta er búið
og gert og fátt annað í stöðunni en að
sjá hvemig málin þróast. Ég mun
fylgjast vel með allri þróun þessa
máls, hvemig sem það fer þá verður
Herjólfur alltaf í mínum huga heima-
skip Vestmannaeyinga," sagði ísólfur
Gylfi Pálmason.
Helmingur treystir Samskipum
K117.05 í gær höfðu 68 greitt atkvæði í spruningu vikunnar á eyjafrettir.is
um hvort vikomandi treysti Samskip hf. jafn vel og Herjólfi hf., til þess að
sjá um rekstur Herjólfs.
Já sögðu 50.00 % (34), Nei sögðu 47.06 % (32) og Skiptir ekki máli svömðu
2.94 % (2)
GARÐURINN við Hólagötu 41 fékk verðlaun um-
hverfisnefndar og Rotarý þetta árið. Sjá bls. 20
í
Bílaverkstæðið Bragginn s.f.
Réttingar og sprautun
Flötum 20 - Sími 481 1535
Viðgeróir og smurstöð
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshðfn
Alladaga. kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
Flötum 20 ■ Sími 4813235
{<$|>Herjólfur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991
TT Í ■ TM-ÖRYGGI
_£gl_ FYRIR
iSi FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll trygg ngamálin
- á öllum svidum'