Fréttir - Eyjafréttir - 14.09.2000, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 14. september 2000
Sigga Vídó minnst í
bæjarstjórn
Áður en gengið var til dagskrár á
i'undi bæjarstjórnar, sl. fimmtudag,
minntist forseti bæjarstjómar, Sig-
rún I. Sigurgeirsdóttir, Sigurgeirs
Ólafssonar, sem lést 2. ágúst sl.,
með eftirfarandi orðum:
„Sigurgeir var fæddur 21. júní
1925. Hann var stýrimaður og
skipstjóri í mörg ár og útgerðar-
maður. Sigurgeir var hafnarstjóri á
árunum 1982 - 1991. Hann var
forseti bæjarstjómar 1982 -1984 og
sat í bæjarráði sama tímabil.
Sigurgeir var varabæjarfulltriíi 1978
- 1982ogbæjarfulltrúi 1982- 1986
og sat alls 19 bæjarstjómarfundi.
Ég vil biðja viðstadda að rísa úr
sætum og minnast Sigurgeirs Ólafs-
sonar.“
Stefón vill vera
Jónasson
Á fundi bæjarstjómar á fnnmtudag
í síðustu viku voru allir liðir fund-
argerðar skipulags- og bygginga-
nefndar samþykktir, þó með breyt-
ingu á fyrsta máli fundar-
gerðarinnar. Þar stóð upphaflega:
„Stefán óskar eftir að bókað verði,'1
en var með sjö santhljóða at-
kvæðum bæjarstjórnar samþykkt að
breyta í: „Stefán Ó. Jónasson óskar
eftir að bókað verði.“
Fyrirmyndar-
dansleikur
framhalds-
skólanema
Alls vom 174 færslur í dagbók lög-
reglu í síðustu viku. Er það nokkru
minna en í vikunni á undan. Ekki
var mikill erill hjá lögreglu, þó var
nokkuð að gera í tengslum við
dansleik á veguni Nemendafélags
Framhaldsskólans. Að sögn lög-
reglu fór þó sá dansleikur mjög vel
fram.
Saupsóttir við skól
Ein líkamsárás var tilkynnt lögreglu
um helgina. Þar höfðu lent í átök-
um tveir menn sem báðir vom við
skál. Ekki liggur l'yrir kæra í
málinu.
Ein kæra í
umferðinni
Aðeins eitt umferðarlagabrot var
kært í vikunni og var þar um að
ræða vanrækslu á að færa ökutæki
til skoðunar. Er langt síðan jafn-
rólegt hefur verið í umferðinni og
vonandi að þau rólegheit haldist
áfram.
Virðið reglur um
gangbrautir og
útivist
Enn vill lögregla minna ökumenn á
að fara varlega í nágrenni skólanna
og virða gangbrautaiTéttinn. Þá vill
lögregla og minna foreldra og
forráðamenn á útivistarreglumar.
Þær eru börnunum til verndar og
því er þetta spurning um að vernda
bömin sín en ekki að vera
„leiðinlegt" foreldri.
Minnihlutinn til varnar
IBV í þjóðhátíðarmálinu
EÐLILEGA tekur nokkurn tíma að hreinsa til og taka niður búnað eftir þjóðhátíð en þetta framtak ÍBV
gefur mikinn pening í bæinn.
Á síðasta fundi umhverfisnefndar
var m.a. rætt um viðskilnað
þjóðhátíðarnefndar í Herjólfsdal.
Frá þeim fundi var greint í Fréttum
fyrir skömmu en ályktun nefndar-
innar var stutt og skorinorð:
„Nefndin harmar viðskilnað þjóð-
hátíðarnefndar í Herjólfsdal.“
Formaður þjóðhátíðamefndar svaraði
í Fréttum fyrir sína menn og taldi
umhverfisnefnd fara offari í ásök-
unum sínum. Nú hefur ÍBV og
þjóðhátíðarnefnd borist óvæntur liðs-
auki því að á fundi bæjarstjómar sl.
fimmtudag báru fulltrúar Vestmanna-
eyjalistans fram svohljóðandi bókun:
„í 3. máli fundargerðar umhverfis-
nefndar álykta sjálfstæðismenn með
afar ósmekklegum hætti og án
nokkurs rökstuðnings gegn þjóð-
hátíðamefnd vegna viðskilnaðar í
Herjólfsdal eftir þjóðhátíð. Við teljum
að íþróttahrcyfingin eigi margt annað
skilið en slíkar ályktanir vegna fram-
lags síns til íþrótta- og menningarmála
í Vestmannaeyjum. Við krefjumst
þess að nú þegar verði gerður samn-
ingur við íþróttahreyfinguna um með
hvaða hætti skuli ganga frá Herjólfs-
dal eftir þjóðhátíð og hvert hlutverk
íþróttahreyfingarinnar annars vegar og
bæjaryfirvalda hins vegar eigi að vera
í því sambandi."
Að lokinni þessari bókun bað Elsa
Valgeirsdóttir, fulltrúi meirihlutans
um fundarhlé og var það veitt. Síðan
bar meirihluti sjálfstæðismanna fram
svohljóðandi afgreiðslutillögu:
„Leggjum til að 3. máli fundargerðar
umhverfisnefndar 23. ágúst sl. verði
frestað og óskað eftir greinargerð frá
garðyrkjustjóra vegna málsins."
Þessi afgreiðslutillaga var síðan sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæðum
og þar með ljóst að þessi einkar
stuttorða bókun umhverfisnefndar
hefur farið fyrir brjóstið á fleirum en
þjóðhátíðamefnd einni saman.
KFUM&K þingaði í Eyjum
námskeið sem hefur átt sinn þátt í
eflingu starfsins þar. Tvær ungar
stúlkur frá Reykjavík kynntu
hugmyndir frá KFUM&K í Dan-
mörku frá ráðstefnu sem haldin var í
maí sl. I kjölfar erindis þeirra voru
umræður í hópum um ýmsa þætti í
starfinu sem vöktu þingfulltrúa til
umhugsunar enda margar mjög
athyglisverðar hugmyndir þar á ferð.
Á þinginu létu tvær kjamakonur í
stjóminni af störfum, þær em Stella
Skaptadóttir fulltrúi Vestmannaeyja
og Guðný Einarsdóttir fulltrúi Reykja-
víkur og vom þeim þökkuð vel unnin
störf í þágu félaganna.
Núverandi stjórn skipa Björgvin
Þórðarson, Böðvar Björgvinsson, Haf-
dís Hannesdóttir, Jóhanna S. Erlu-
dóttir, Jón Oddgeir Guðmundsson,
Kristján Sigurðsson og Eyjamaðurinn
Ólafur Jóhann Borgþórsson.
Þinginu lauk með helgistund í
stafkirkjunni og sá sr. Bára Frið-
riksdóttir um hana. Þingfulltrúar
gengu til altaris, er þetta fyrsta
altansgangan í stafkirkjunni og því um
sögulega stund að ræða.
Að loknu þinginu var Vestmanna-
eyingum þökkuð góð skipulagning og
gestrisni og ekki skemmdi fyrir
frábært veður.
Þing Landssambands KFUM&K og tóku þátt í þingstörfum sem auk þess sem ýmis mál tengd félags-
var haldið í Vestmannaeyjum stóðu allan daginn. starfinu vom rædd. Þar kom m.a. upp
síðasta iaugardag. Þar voru saman- I frétt af þinginu segir að þar hafi á borðið vandamál landsbyggðar-
komnir 32 fulltrúar víða aflandinu farið fram venjuleg aðalfundarstörf félaga og kynntu Akumesingar
LOKAHNYKKUR þingsins var guðsþjúnusta í stafkirkjunni þar sem Bára Friðriksdóttir messaði og
gengu allir þingfulltrúar til altaris og einum betur.
FRETTIR
I
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Omar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið