Fréttir - Eyjafréttir - 14.09.2000, Side 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 14. september 2000
Mikil vinna í Vinnslustöðinni:
Metframleiðsla á saltfiski
Góður kraftur hefur verið í
Vinnslustöðinni frá því vinnsla
hófst á ný eftir sumarstopp. Salt-
fiskverkun ásamt frystingu á karfa
er meginuppistaða vinnsiunnar.
Einnig er ætlunin að vera með tvo
báta á humarveiðum fram að síld-
arvertíð.
Þorsteinn Magnússon, framleiðslu-
stjóri, segir að vinnsla hafi byrjað á ný
21. ágúst eftir tæplega þriggja vikna
sumarhlé. „Síðan má segja að við
höfum verið á fullu, bæði í saltfiski og
karfafrystingunni,“ segir Þorsteinn.
„Saltfiskvinnslan hefur gengið þokka-
lega en um 2000 tonn af þorsk- og
ufsaafurðum vom framleidd hjá okkur
á rekstrarárinu sem lauk þann 31.
ágúst sl. Þetta er meira magn en mörg
undanfarin ár og lítur út fyrir aukn-
ingu í ár. Til að skjóta enn styrkari
stoðuni undir saltfiskvinnsluna verð-
um við í haust með tvo netabáta í stað
eins. Til þessa hefur Brynjólfur verið
eini netabáturinn okkar en nú bætist
Guðjón við auk þess sem alltaf fellur
eitthvað til af Jóni Vídalín og Dranga-
vík í saltfiskvinnsluna.“
Góður markaður fyrir karfa
Þorsteinn segir að mikil karfavinnsla
hafi verið í sumar og framhald verði á
því í haust. „Við lausfrystum karfa-
flökin og flytjum út til Þýskalands.
Markaðurinn hefur verið góður og
ekki annað að sjá en að söluhorfur séu
góðar."
Hefðbundinni humarvinnslu lauk í
ágúst en á tímabilinu maí til júlí vom
unnin 30 tonn, miðað við slitinn
humar og segir Þorsteinn að milli 30
og40 unglingarhafiunniðíhumriog
karfa í Vinnslustöðinni þegar mest var
í sumar. „Megninu af humrinum var
pakkað heilurn og fór framleiðslan á
Spánar- og Italíumarkað en einnig
vom frystir halar á Bandaríkjamarkað.
Nú ætlum við að reyna fyrir okkur í
haust og vera með humarbáta fram að
sfid. Við vomm með einn bát í fyrra á
þessum veiðum og það kom ágætlega
út. I ár verður aftur unnin sfld í
Vinnslustöðinni en loðnu- og sfldar-
skipið Sighvatur Bjamason, sem nú er
í viðhaldi í Póllandi, mun sjá
vinnslunni fyrir hráefni þegar síld-
veiðar hefjast upp úr miðjum október.
Það má segja að vinnsla á síld til
manneldis hafi verið í nokkurri lægð
-Síld unnin til manneldis í haust
ÞAÐ var létt yfir konunum í saltfiskinum enda nóg að gera og mikið framundan.
undanfarin ár en nú virðist markaður
fyrir heilfrysta sfld í Rússlandi að
opnast á ný eftir nokkurra ára hlé og
að auki munum við framleiða flök
bæði í frystingu og söltun. I dag starfa
um 50 manns í fiskvinnslunni hjá
okkur og það er Ijóst að við verðum
að bæta við okkur fólki þegar sfldin
byrjar," segir Þorsteinn sem ekki
óttast verkefnaskort í Vinnslustöðinni
á næslum vikum og mánuðum.
VSV-open
Síðasta vetur var stofnað starfs-
mannafélag í Vinnslustöðinni og er
því stjórnað af Eydísi Asgeirsdóttur.
Félagið hefur staðið fyrir ýmsum
uppákomum, m.a. grillveislu í Her-
jólfsdal í maí og á föstudaginn var
haldið golfmót „VSV open“. Eftir að
hafa tekið golfið með trompi var
slegið upp veislu í golfskálanum. Þar
fór fram verðlaunaafhending með
tilheyrandi spennu. Eins og alltaf geta
ekki allir unnið, en með olympíu-
hugsjónina að leiðarljósi, fóru allir
sáttir heim.
STEFNT er að því að framieiða 2000 tonn af karfaflökum í ár.
Barna-
starf
Landa-
kirkju
að hefjast
Barnastarfið sem svo mörg börn
hafa spurt eftir í sumar er að
hefjast í Landakirkju.
Fastir liðir í barna og
foreldrastarfinu verða Tíu Til
Tólf ára starf (TTT) á
fimmtudögum og verður fyrsti
fundur í dag, fimmtudaginn 14.
september kl. 17 -18.
Sunnudaginn 17. sept. hefst
sunnudagaskólinn með
nýjum söngvum, fallegum
kirkjubókum, Jesúmyndunum
og frænda fuglsins Dindils, að
ógleymdum Silla sem verður
fastur liður í barnastarfinu með
öllum sínurn kostum og kynjum.
Við sýnum gleðina í söng og
dansi í vetur.
Krakkaklúbburinn
Kirkjuprakkarar (KKK) verður
á þriðjudögum kl. 16.30 -17.30
og byrjar 19. september.
Foreldramorgnar verða á
fimmtudagsmorgnum kl. 10 og
verður fyrsti fundur 5. október.
Þar er vettvangur fyrir
heimavinnandi foreldra að koma
með börn sín, njóta samvista og
fá harnaefni við hæfi allra yngstu
barnanna. Æskulýðsfundir eru á
sunnudagskvöldum kl. 20.30 í
Landakirkju og opið hús fyrir
unglinga í KFUM&K-húsinu kl.
20 á miðvikudögum.
Barnaefnið í vetur er vandað og
spennandi. Öflugir leiðtogar eru
í öllu barnastarfinu og líturn við
fagnandi til vetrarins.
Markmiðið með barnastarfi
kirkjunnar er að styðja foreldra í
kristilegu uppcldi og siðgæði.
Starfsfólk Landakirkju vonast til
góðrar samvinnu við foreldra í
sókninni, að saman styðjum við
börnin til góðs og uppbyggilegs
þroska.
Sjáumst í kirkjunni.
Prestar Landakirk ju.
jyrn cj
l
þM J
Hjóna-
og para-
keppni
ó laug-
ardag
Hjóna- og parakcppnin verður í
golfinu á laugardag. Eins og
nafnið gefur til kynna leika tvö
saman í liði og er hægt að velja
um að slá annað hvort högg eða
að annar aðilinn slær öll högg á
braut og hinn sér um að pútta.
Skráning er hafin í
Golfskálanum og lýkur henni á
föstudag kl. 20.
VSV- open er með athyglisverðari golfmótum sumarsins.