Fréttir - Eyjafréttir - 14.09.2000, Blaðsíða 15
'immtudagur 27. júlí 2000
Frhttir
15
Árin frá 1968 til 1970 voru þungbær fyrir íslensku þjóðina:
Eldsvoðar og skipstapar urðu
tugum sjómanna að fiörtjóni
SVANUR ÍS var í hópi báta sem smíðaðir voru fyrir íslendinga í
Austur-Þýskalandi.
í sjómannablaðinu Víkingi er sagt
frá þeim hörmungarslysum í mars
1969, sem voru bara örfá dæmi um
þá slysaöidu sem reið yfir íslenska
sjómenn á þessum árum
„Að morgni níunda mars þótti útséð
um afdrif tveggja fiskiskipa okkar,"
segir í greininni í Víkingi. „Sex manna
var saknað á tveimur bátum, Fagranesi
ÞH 123 frá Akranesi og Dagnýju SF
61 sem keyptur var til Stykkishólms
og var á leiðinni þangað. Mennimir
voru úr Stykkishólmi, af Akranesi og
úr Reykjavík. Síðast heyrðist í
Fagranesi um sjöleytið að kvöldi 7.
mars þegar báturinn átti eftir 20
mínútna siglingu til Akraness. Dagný
sendi skeyti kl. 6 sama kvöld, er
báturinn var staddur út af Garðskaga
og kvaðst hann verða í Reykjavík upp
úr kl. 9. Ekki gátu skipverjar þess að
neitt væri að en veður var mjög vont,
kafaldsbylur og geysileg ísing.“
Fagranes var 17 tonna bátur og
Dagný var 27 tonna bátur. Þrátt fyrir
mikla leit fundust mennimir ekki.
Daginn áður varð hörmulegt slys
um borð í síðutogaranum Hallveigu
Fróðadóttur RE þegar eldur kom upp í
mannaíbúðum og fómst þar sex menn.
1 Víkingi er einnig sagt frá því að
ungur maður hafi farist af reykeitrun
um borð í síðutogaranum Agli
Skallagnmssyni RE í erlendri höfn en
ekki er tekið fram hvenær slysið varð.
Að taka slysum með
karlmennsku
„Allir þessir þrettán sjómenn vom á
besta aldri og margir þeirra höfðu ný-
iega byrjað sjómennsku. Afhroð það
sem þjóðin hefir beðið við missi þeirra
er tilfinnanlegt en því tjóni verður að
mæta með karlmennsku og endur-
nýjaðri sókn við að vinna að bættum
öryggisbúnaði á allan hátt til að forða
okkur frá því að siík slys geti skeð á
ný,“ segir í greininni í Víkingi.
I 1. til 2. tölublaði Vikings sama ár
er sagt frá giftusamlegri björgun
áhafnarinnar á Svani IS 214 frá
Súðvík þegar bátnum hvolfdi út af
Ísaíjarðardjúpi eftir að ólag reið yfir
hann. „Mátti ekki tæpara standa að
skipverjar næðu að komast í gúmmí-
björgunarbátinn og úr honum hálf-
ónýtum yfir í heila gúmhátinn," segir í
grein Víkings.
„Þó mun hafa ráðið úrslitum um
hina giftursamlegu björgun þessara
ungu og hraustu manna að þeir gátu
gert öðmm skipum vart við sig með
neyðartalstöðinni sem er af
LINKLINE gerð og mjög traust-
byggð.
Skipstjóri og 1. vélstjóri sýndu
mikla ráðsnilii við að losa um björg-
unartækin og hagnýta þau og mátti
ábyggilega ekki skeika mörgum
mínútum að illa færi.
Voru allir skipverjar sammála um
að neyðartalstöðin hefði bjargað lífi
þeirra því þeim tókst að senda út
neyðarkall með henni auk þess sem
leitarskip náðu að miða út sendingar
stöðvarinnar. Það var svo Sólrún frá
Bolungarvík sem fann gúmmíbjörg-
unarbátinn en þeim var síðan bjargað
um borð í varðskipið Þór sem var
staddur við Vestfirði þegar slysið
varð.“
Austurþýsku bátamir
Svanur var smíðaður í Austur-
Þýskalandi en margir bátar af þessari
gerð voru smíðaðir fyrir Islendinga á
þessum árum. I Vestmannaeyjum var
Leó VE meðal báta af þessari gerð.
Árið 1970 ferst Sæfari BA frá
Tálknafirði með allri áhöfn og árið
1969 mátti litlu muna að Leó VE
færist úti við Surt þegar hann lagðist á
hliðina eftir að hann fékk á sig brot.
Þetta varð ekki til að draga úr afreki
Ömólfs Grétars Hálfdánarsonar
skipstjóra á Svani ÍS. Á sjó-
mannadaginn 1969 voru honum veitt
sérstök afreksverðlaun og í frásögn
Víkings segir: Ömólfur var með Svan
IS 214 þegar þegar báturinn sökk í
fárviðri út af Vestfjörðum íjanúarsl.
Áhöfnin, sex menn, bjargaðist eftir
fjögurra tíma hrakninga í gúm-
björgunarbát. Annar gúmbátur rifnaði
en fyrir snarræði og hugdirfsku skip-
stjórans tókst skipverjum að komast í
hinn björgunarbátinn. Einnig tókst
honum að ná í neyðartalstöðina.
Mikil blóðtaka fyrir lítið
þ°rp
Talið er fullvíst að snarræði Ömólfs
Grétars hafi bjargað lífi áhafnarinnar.
Þá má geta þess að Svanur var
þriðji báturinn sem fórst frá Súðavík á
innan við tveimur ámm. Árið 1967
fórst Freyja IS með fjögurra manna
áhöfn, árið eftir fór Trausti IS með sex
manna áhöfn og svo Svanur 29. janúar
1969. Þetta var mikil blóðtaka fyrir
lítið þorp, sem taldi 400 til 500 íbúa og
í tengslum við öll þessi slys segir
Ömólfur Grétar að hann hafi verið
varaður við. „Halldór Magnússon,
sveitarstjóri í Súðavík, sagði mér
merkilegan draum sem tengdist því
þegar kirkja var flutt frá Hesteyri til
Súðavíkur. Hann dreymir þrjá krossa
yfir kirkjunni, tvo kolsvarta og sá
þriðji var ijósleitari. Halldór sagði mér
þennan draum einhvem tímann milli
jóla og nýárs áður en Svanur sökk.
Hann réð drauminn þannig að þrír
bátar frá Súðavík myndu farast og það
gat passað með Freyju og Trausta en
þriðja bátinn vantaði. Halldór bað mig
um að fara varlega því hann óttaðist
um okkur. Það var rétt liðinn mánuður
af árinu þegar Svanur sökk og var það
þriðji báturinn á innan við þremur
ámm því aldrei náði að líða heilt ár á
milli þess að þessir þrír fæmst. Það
vantaði alltaf nokkra daga upp á,“
sagði Ömólfur Grétar.
Mikil slysaár frá 1968 til
1970
Meðal sjóslysa á þessum ámm má
nefna að árið 1967 fórst Freyja ÍS frá
Súðavík með fjómm mönnum.
Árið 1968 fórst Trausti ÍS frá Súðavík
með sex mönnum, 4. febrúar fórst
Heiðrún ÍS frá Bolungarvík með 6
mönnum, enski togarinn Ross
Cleveland sökk á Isafjarðardjúpi og
komst aðeins einn af 19 manna áhöfn
lífs af og sama dag strandaði Notts
County við Isfjaraðardjúp og fórust
tveir með honum, samtals fómst því á
þriðja tug sjómanna við Djúpið
þennan dag. Ekki fóm Vest-
mannaeyingar varhluta af þessari
slysaöldu því um haustið fórst Þráinn
með 11 manna áhöfn. Samtals fórust
62 til sjós þetta ár en alls fórst 81 af
slysförum þetta ár.
Árið 1970 sökk svo Sæfari frá
Tálknafirði með sex manna áhöfn.
Tekið skal fram að þetta er ekki
tæmandi listi.
Ó.G.
JílorjEjnuliIníiiJ)
20 daga stranga
norðanátt þyrfti
Mynfsafnarafólog
fsfancfs sfofnað
Prjónastofa á
Egilsstöðum
Kastaði sér i sjóinn í brunagaddi
á eftir björgunarbátnum
Heiðraður fyrir
björgun G manna
ÍAUGlVSIHGARl
MIKIÐ var fjallað um björgun áhafnarinnar á Svani í fjölmiðlum. Frásögnum blaða frá þessum tíma
ber undatekningarlítið sama við það sem kemur fram hjá Örnólfl Grétari. Einnig eru því gerð góð skil
þegar hann á sjómannadaginn fær sérstaka viðurkenningu fyirr afrek sitt.
Námskeið
fyrir skot-
veiðimenn
Lögregla vill beina því til þeirra
sem hafa liugsað sér að fara í
veiði nieð skotvopnum að hafa
gild skotvopnaleyfi og veiðikort
meðferðis.
Fyrir þá sem ekki eru með gild
skotvopnaleyfi og veiðikort er
ætlunin að halda veiðinámskeið á
næstunni ef næg þátttaka fæst.
Hægt er að skrá sig í það námskeið
á lögreglustöðinni en námskeiðið
verður síðan auglýst með tveggja
vikna íyrirvara.
Síðastliðinn mánudag færði
Vestmannaeyjadeild
Sjúkraliðafélags íslands kapellu
Heilbrigðisstofnunarinnar í
Vestmannaeyjum kristalsvasa og
blóm að gjöf til að prýða altari
kapellunnar. Einnig gaf deildin
kapellu Hraunbúða vasa af sama
efni og blóm nokkrum dögum
fyrr. Myndin er tekin í kapellu
Heilbrigðisstofnunarinnar í
Vestmannaeyjum þegar Bjarney
Pálsdóttir formaður
Vestmannaeyjadeildarinnar
afhenti séra Kristjáni Björnssyni
vasann og blómin. Aðrir á
myndinni eru fr. v. Selma
Guðjónsdóttir, Guðný
Jóhannsdóttir og lengst til hægri
er Halldór Halldórsson djákni.
Þiggjendur vasanna vildu koma á
framfæri kæru þakklæti til
gefenda fyrir þann hlýhug sem
fylgdi gjöfunum.