Fréttir - Eyjafréttir - 14.09.2000, Page 23
Fimmtudagur 14. september 2000
Fréttir
23
Landssímadeildin: KR 1 - IBV 0
m
Draumur um íslands-
mcistaratitil úti
-KR með pálmann í höndunum
ÍBV og KR mættust í næstsíðustu
umferð Landssímadeildarinnar í
Vesturbænum síðastliðinn sunnu-
dag. Eins og undanfarin ár var
fjölmennt á áhorfendabekkjum
vallarins og óhætt að ætla að um
3500 manns hafi verið á leiknum.
Leikurinn sjálfur var hins vegar lítil
skemmtun framan af, liðin fóru
varlega í sóknaraðgerðir og stillti
Kristinn Jónsson þjálfari ÍBV,
Steingrími einum frammi sem gafst
illa. Seinni hálfleikur var skárri en
sá fyrri en aðeins eitt mark var
skorað, Hjalti Jónsson var svo
óheppinn að skalla boltann í eigið
mark og þar við sat.
Eins og áður sagði var leikurinn
tilþrifalítill til að byija með. Liðin
fóru sér afar varlega, enda dýrt að
lenda undir snemma leiks. ÍBV liðið
var að spila illa í hálfleiknum, miðju-
mennimir vom ekki að finna sig og
frammi átti Steingrímur einn erfitt
uppdráttar. Fyrsta færi ÍBV átti þó
Steingrímur á 24. mínútu þegar hann
átti skot úr þröngu færi en Kristján
Finnbogason sá við honum. Þremur
mínútum síðar átti Goran góðan sprett
upp vinstri vænginn og átti
stórhættulega fyrirgjöf en þá vantaði
einhvem inn í teig KR-inga til að reka
endahnútinn á sóknina. KR-ingar áttu
fá færi í fyrri hálfleik, eins og reyndar í
leiknum öllum en á 37. mínútu
skomðu þeir mark eftir að vöm IBV
hafði átti í vandræðum með að hreinsa
boltann í burtu. En markið var
réttilega dæmt af vegna rangstöðu.
Undir lok fyrri hálfleiks þurfti Birkir
svo að taka á honum stóra sínum
þegar Andri Sigþórsson fékk
stungusendingu inn fyrir vöm ÍBV en
Birkir náði að skalla knöttinn í burtu
enda kominn út fyrir vítateig.
Tómas Ingi kom svo inn á í hálfleik
og við það breyttist leikur ÍBV mikið.
Nú var fækkað á miðjunni og spilað
leikkerfið 4-4-2. ÍBV var sterkari
aðilinn í seinni hálfleik og fékk liðið
þrjú ágætis færi sem ekki tókst að
nýta. Eftir tíu mínútna leik í seinni
hálfleik komst Steingrímur einn á móti
markverði KR-inga en þrátt fýrir að
hafa ágætis tíma fyrir sig þá náði
Steingrímur ekki að klára færið og
skot hans var varið í hom. Tæplega
tíu mínútum síðar átti Ingi svo góða
fyrirgjöf á Goran, en hann náði ekki í
boltann og færið rann út í sandinn. Á
76. mínútu áttu KR-ingar svo
homspymu. Kjartan og sóknarmaður
KR áttust við í skallaeinvígi en
hvorugur náði að skalla boltann og
Hjalti fékk boltann á hausinn á sér og
þaðan fór hann inn. Slysalegt mark en
líklega hefur Hjalti hreinlega ekki séð
boltann. Eftir það höfðu heimamenn
leikinn í hendi sér og héldu sínum hlut
út leikinn.
Leikur IBV olli nokkmm von-
brigðum á sunnudaginn. Fyrirleikinn
átti IBV möguleika á Islands-
meistaratitlinum og því súrt að liðið
náði ekki betri leik. Reyndar þurfti
Baldur Bragason að yfirgefa völlinn
en hann meiddist um miðjan fyrri
hálfleik eftir glæfralega tæklingu
Hollendingsins í liði KR og fór af velli
stuttu síðar. Sóknarleikur ÍBV var á
köflum mjög tilviljunarkenndur og
munar mikið um að hafa ekki eins
sókndjarfa bakverði eins og
undanfarin ár. Nafnamir Páll
Almarsson og Guðmundsson leysa
reyndar vamarhlutverkið vel, en Páll
Almarsson sem spilar hægra megin er
meiri miðvörður en bakvörður og hinu
megin er réttfættur maður í stöðu
örvfætts manns. Fyrir vikið vantar oft
þau hlaup upp í homin sem hafa
skapað svo mikla hættu undanfarin ár.
Hlynur Stefánsson sagðist alls ekki
vera sáttur við niðurstöðu leiksins
gegn KR. „Ég er að sjálfsögðu mjög
ósáttur við úrslitin en mér fannst við
eiga eitt ef ekki öll stigin skilið miðað
við gang leiksins. En við lögðum upp
með að veijast vel og vera þolinmóðir,
því eftir sem lengra liði á leikinn
myndi draga af KRingum og við fá
okkar markfæri eins og kom á daginn.
Mér fannst þeir ekkert eiga sigurinn
skilið en það er ekki spurt að því í
knattspymunni í dag og ekki orð um
það meir. Núna em það nýkrýndir
deildarbikarmeistarar Grindavík sem
koma í heimsókn, en ég tel að þeir séu
eitt af bestu liðum deildarinnar. En
það er mikilvægt fyrir okkur að sigra
og halda þriðja sætinu og vera á góðu
róli fyrir bikarúrslitaleikinn."
KR1-IBV0
ÍBV spilaði 4-5-1: Birkir
Kristinsson, Páll
Guðmundsson, Kjartan
Antonsson, Hlynur
Stefánsson, Páll Almarsson,
Goran Alcksic, Momir
Mileta, Hjalti Jónsson,
Baldur Bragason, Ingi
Sigurðsson, Steingrímur
Jóhannesson.
Varamenn sem komu inn á:
Bjarni Geir Viðarsson,
Tómas Ingi Tómasson,
Jóhann Möller.
Yngri flokkarnir: Annar flokkur karla
Strákarnir urðu í 2* sæti
Annar flokkur karla undir stjórn Zejlko
Sankovic hefur náð nokkuð góðum árangri
í sumar en standa þó uppi titilslausir sem
verða að teljast nokkur vonbrigði miðað við
mannskapinn sem er fyrir hendi. Síðasti
leikur liðsins var á tinimtudaginn en fyrir
leikinn var IBV í öðru sæti, stigi á eftir
Keflavík og átti því möguleika á
íslandsmeistaratitlinum ef Keflavík hefði
tapað stigum gegn ÍA. Leikið var gegn
Fylki á Týsvellinum og settu léleg
vallarskilyrði mark sitt á leikinn. IBV var
mun sterkari aðilinn í leiknum en gekk illa
að skapa sér færi. Það var svo fyrirliði
liðsins, Davíð Egilsson sem kom sínum
mönnum á bragðið en Tómas Reynisson
bætti svo öðru marki við. Lokatölur
leiksins urðu 2-0 fyrir ÍBV en því miður
sigraði Keflavík Skagamenn og urðu þeir
því íslandsmeistarar en ÍBV fékk silfrið.
GUNNAR Heiðar er marka-
hæstur í 2. flokki Islandsmótsins
með 18 mörk.
SILFURHAFAR ÍBV ásamt þjálfara sínum.
O I
Handboltinn farinn
að rúlla
Karlalið ÍBV í handknattleik lék
sína fyrstu opinbera æfingaleiki á
Islandi nú um helgina en þá tók
liðið þátt í Reykjavíkurmótinu.
IBV spilaði þijá leiki, gegn
Stjömunni, Fram og Selfossi. ÍBV
sigraði Fram en tapaði hinum
tveimur leikjunum.
Erlingur Richardsson fyrirliði
liðsins sagði að mótið væri hraðmót
og því væri kannski ekki svo mikið
að marka úrslit leikja. „Þetta er
náttúrulega bara æfingamót og því
spilum við kannski ekki eins og við
munum gera í vetur, heldur em
ýmsir hlutir pmfaðir og allir fá að
spila. Hins vegar tökum við þessa
leiki alvarlega og notum þá til þess
að sjá hvað má betur fara í leik
okkar."
Kvennalið ÍBV tók ekki þátt í
Reykjavíkurmótinu í ár.
Bikarleikurinn á
sunnudeginum -
Pakkaferðir
verða á leikinn
Strax og ljóst var að ÍBV kæmist í
úrslitaleik bikarkeppninnar létu þeir
í Ijós áhuga á að færa leikinn fram á
laugardaginn til þess að auðveldara
væri um vik fyrir stuðningsmenn
liðsins að komast á leikinn og til
baka án þess að eiga það í hættu að
missa dag úr vinnu. Skagamenn,
mótheijar IBV í leiknum tóku undir
ósk ÍBV og því sameiginlegur vilji
liðanna að færa leikinn. En sú
fomaldarstofnun sem gengur undir
nafninu Knattspymusamband ís-
lands sá sér ekki fært að færa
leikdaginn og líklega ráða þar pen-
ingasjónarmið ferðinni.
Pakkaferðir verða á leikinn og
hefur það fengist staðfest hjá ÍBV.
Bæði verða í boði ferðir með
Herjólfi og Flugfélagi íslands en
verð og nákvæmari upplýsingar
verður auglýst í næsta blaði.
Bjarnólfur í
Scunthorpe
Hlutimir hafa gerst hratt að undan-
fömu hjá Eyjapeyjanum Bjamólfi
Lámssyni. Þegar síðast spurðist til
Bjamólfs var hann á leiðinni heim í
heiðardalinn og jafnvel að hugsa
um að setjast á skólabekk í vetur.
En skjótt skipast veður í lofti og nú
er Bjamólfur genginn til liðs við
Scunthorpe sem nú er í sjötta sæti í
ensku 3. deildinni en liðið féll úr 2.
deild á síðasta tímabili. Bjamólfur
mun hafa skrifað undir samning
sem gildir út tímabilið og er því enn
möguleiki á því að hann gangi til
liðs við ÍBV á komandi sumri.
Framundan
Laugardagur 16. september
Kl. 14.00 ÍBV-Grindavík Lands-
símadeild karla.
Sunnudagur 24. september
Kl. 14.00 ÍBV - ÍA mætast í
úrslitum Bikarkeppninnar.