Hrund - 01.09.1967, Blaðsíða 14
HEIMU
Þegar ég hitti hana í fyrsta sinn, var hún á leið upp á
stjörnuhimininn. Það var í Madrid, þegar hún lék í
„Doctor Zhivago.“ Hún var þá yfir sig hrifin af þeirri
veröld, sem skyndilega hafði viðurkennt hana. Hún var
lífsglöð og kát og kallaði alla ,,félaga.“
Hún kallar mann ekki lengur „félaga.“ Hún er óskarsverð-
launahafi og hefur fengið nýja ábyrgðartilfinningu. Og
hún hefur þroskazt . . . Hún er ákafur aðdáandi leik-
listarinnar og altekin leikástríðunni, eins og ólæknandi
sjúkdómi. En þegar hverju ætlunarverki er lokið, dregur
hún sig í hlé . . . inn í sína eigin veröld, þar sem hún er
eingöngu kona. Hún hefur lært, að draumar eru góðir,
svo langt sem þeir ná, en lífið er veruleikinn.
Uppreisnin er á enda.
Hendur Julie, grannar og fimar, voru önnum kafnar við
prjónana. Hún hafði aldrei prjónað áður. Hún hafði tekið
upp á því, vegna þess að „Eg átti prjónakjól, en mig
vantaði belti við hann. Eg hugsaði með mér, að ég skyldi
láta búa til belti handa mér. En skyndilega flaug mér í
hug, að þetta væri nú bara belti - hamingjan góða, ég
hlyti að geta búið það til sjálf. Svo prjónaði ég belti. Strax
og því var lokið, byrjaði ég á öðru — og ég hef mjög gaman
af þessu.“
Hún brosti með sjálfri sér. Andlit hennar var fölt og
tekið. Handavinnan virtist þó róa hana. Hún hafði létzt
mjög mikið upp á síðkastið, og á kvöldin var hún vön að
rannsaka spegilmynd sína gaumgæfilega - og hrista síðan
höfuðið - efins. Var þetta hún? Ekkert nema skinn og
bein.
„Julie er áköf og einlæg,“ sagði John Schlesinger, „og
skapandi. Ég þarf ekki að hvetja hana til að einbeita
sér - hún sér um það sjálf. Hún lifir sig inn í hlutverkin -
leiklistin er henni ástríða, eins og hræðilegur sjúkdómur
eða eiturlyf.“
Schlesinger stjórnaði töku myndarinnar „Far from the
madding crowd,“ sem er byggð á sögu Tómasar Hardy.
Sagan er um konuna Bathshebu Everdene og mennina
þrjá, sem elskuðu hana. Julie leikur Bathshebu, vilja-
sterku ungu konuna, sem í fyrstu vísar öllum hjónabands-
tilboðum á bug, vegna þess að hún vill ekki vera nokkrum
manni háð. Seinna verður hún ástfangin af laglegum
Þessi grein er unnin úr tveim viðtölum, sem Henry
Gris átti við leikkonuna Julie Christie. Það fyrra var
tekið, þegar leikkonan vann að kvikmyndinni „Far
from the madding crowd,“ í Englandi, hið síðara í
Bandaríkjunum, meðan hún lék í myndinni „Petulia.“