Straumhvörf - 15.03.1943, Blaðsíða 9

Straumhvörf - 15.03.1943, Blaðsíða 9
STRAUMHVÖRF 39 SR. SIGURBJÖRN EINARSSON: Vori brugðið? i. Apríldagur með frosti og byl. Fyr- ir fáum dögum var vorið komið, frostlaus heiðríkja, sumarsól. Þröst- urinn söng við sunnanverðan Laufás- veg, og lóan var komin í Vesturbæ- inn. Nú er aftur hávetur, hríð og kuldi. Ekkert í náttúrufari þessa lands er hvikulla en vorið. Hér getur vet- urinn orðið að vori. En mörg vorin snerust í vetur. Þó var hvert vor fyr- irheit um sumar. Og sumarið hafði eins mikla þýðingu fyrir líf fólksins hér eins og annars staðar. En stund- um brást íslenzka sumarið. Það haustaði án þess að komið hefði sum- ar. Við töluðum um vortíma íslenzks þjóðlífs. Einhvern tíma sungum við um vormenn íslands. Sú var okkar köllun að vinna vorverkin á íslandi. Sumarið var í nánd, — loksins eftir langan vetur. Það voru vorannir í landi í tuttugu ár. Ekki fylgdi lífgun hverri leysingu, ekki sáning hverri plægingu. En eitt var víst: Það var eitthvað að gerast á Islandi. En manni virtist meira vera eftir. Sjálft andrúmsloftið var mettað af mögu- leikum. Landið beið, eins og mold á vordegi, sem er að verða móðir lífs. Við væntum þess, að upp af frelsuð- um moldum landsins myndi spretta mikill gróður. Við viljum ekki að vorið sé farið. Við viljum ekki að sumarvon íslands bregðist. Hver svo sem niðurstaða þessarar styrjaldar verður, þá vilj- um við ekki, að sú verði afleiðing hennar fyrir Island. Það er málstað- ur íslands, hvað sem öðru líður: ís- land á að vera f jálst land. Það er eng- um mönnum heimilt til afnota, nema okkur, niðjum þeirra manna, sem það nærði — og kvaldi — í þúsund ár. n. Ekki skyldum við gylla fyrir okk- ur tuttugu ára skeið sjálfstæðisins. Það var gelgjuskeið. Við vorum ó- sjálfstæðir í hugsun þó við værum stjórnskipulega sjálfstæðir. Við göptum við heimsmenningunni eins og kolbítur nýrisinn úr ösku. Við reyndum að fylgja takti æðasláttar- ins utan úr Evrópu, vitandi ekki það, að menning meginlandsins var sjúk eftir síðasta stríð. Ýmiskonar dýr arfur frá öldum armæðunnar var í fullkomnum voða vegna þess, að við héldum það okkar mestu smán, að vera öðruvísi en aðrir. Við vorum ekki búnir að finna sjálfa okkur. Við mændum á útlendinginn eins og hundur á húsbónda sinn og spurðum: Hvað lízt þér? Smæðarvitundin og sú reynsla, að oft vár á okkur logið í út- löndum, heimsku og óupplýstu fólki

x

Straumhvörf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.