Straumhvörf - 15.03.1943, Blaðsíða 16

Straumhvörf - 15.03.1943, Blaðsíða 16
46 sætt, að réttmætt sé, að þjóðfélagið í heild bæti bændastéttinni í ein- hverju markaðstöp þau, er hún hefir orðið fyrir. Ég geri ráð fyrir, að deil- urnar um verðlag landbúnaðarafurða á innlendum markaði stafi að miklu leyti af því, að menn geri sér ekki almennt grein fyrir framleiðslukostn- aði þessara vara. Að vísu er nokkrum örðugleikum bundið að finna réttan mælikvarða til að meta framleiðslu- kostnaðinn, en ég hygg, að sá grund- völlur, sem Búreikningaskrifstofa rík- isins hefir fundið í þessu efni, sé það traustur, að óhætt sé að byggja á nið- urstöðum hennar. Forstöðumaður Búreikningaskrif- stofunnar hefir komizt að þeirri nið- urstöðu, að ef reiknað er með kaupi kr. 4,00 á vinnustund karla og kr. 2,00 á vinnustund kvenna og liðlétt- inga, er vinna að bústörfum, þá hefðu bændur þurft að fá sem hér segir fyrir hvert kg.: af mjólk kr. 0,92, af kjöti, ull og gærum kr. 6,80 að meðal- tali. Kr. 12,00 fyrir slátur og mör úr kind, og kr. 88,00 fyrir tunnuna af garðávöxtum. Þessar tölur eru háar, en þó verð- ur vart með sanngirni ætlazt til, að bændur vinni fyrir minna kaup en um getur, miðað við kaup annarra starfsveita landsins. Hins vegar mun skorta nokkuð á, að bændur hafi fengið þetta verð greitt fyrir vörur sínar til jafnaðar á s. 1. ári. Þær hefðu því orðið að vera nokkru dýr- ari, að óbreyttri skipan vörudreifing- arinnar, til þess að bændur hefðu borið ofangreint kaup úr býtum. En á hinn bóginn viðurkenna allir, að STRAUMHVÖRF æskilegast væri fyrir þjóðarheildina, að landbúnaðarafurðir væru mun ó- dýrari en þær eru nú. Til þess að unnt sé að ráða bót á þessu, verða menn að gera sér glögga grein fyrir hinum einstöku þáttum, sem hafa áhrif á verð landbúnaðarvaranna. Til hægð- arauka má skipta þessum þáttum í tvo flokka, þann, sem veit að neyt- endum annars vegar, og hinn, er að bændum snýr. Ef útsöluverð á landbúnaðarafurð- um í Reykjavík t. d. er borið saman við greiðslur þær, er bændur fá í sinn hlut, komumst við að raun um, að þær eru stundum allt að helmingi lægri. Okkur verður á að spyrja, hvað valdi þessum mikla mun, og verða þá fyrir okkur milliliðirnir. Þeir eru flestir búsettir í bæjunum, og eru því í hópi neytenda og taka laun sín af mismun þeim, sem er á útsölu- verði og verði því, er bændum er greitt. Ég geri ekki ráð fyrir, að þetta fólk fái hærri laun en því ber fyrir vinnu sína, eða að það sé betur launað en aðrir, svo að þar getur naumast orðið um neina lækkun að ræða, nema því aðeins, að kaup lækki almennt. Hitt er svo annað mál, hvort ekki væri hægt að lækka þennan kostnaðarlið verulega með bættri skipulagningu á vinnu og verzlunar- háttum. Þetta þyrftu fróðir menn um þessi efni að taka til athugunar. Þá eru vinnulaun annar liður, er miklu ræður um framleiðslukostnað- inn. Það er augljóst af rannsóknum þeim, er gerðar hafa verið á búnaðar- háttum okkar, að þeir eru mjög vinnufrekir. Vinnan hlýtur því alltaf

x

Straumhvörf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.