Straumhvörf - 15.03.1943, Page 14

Straumhvörf - 15.03.1943, Page 14
44 STRAUMHVÖRF Af þessu sézt enn greinilegar en áður, að það eru engin smáþing, sem í'rændþjóðir okkar eiga að hafa, til þess að geta talizt jafnokar smá- þjóðarinnar, íslendinga, í þessum efn- um. Hvað sem þessum samanburði líð- ur, er engin vafi á því, að hér mætti fækka þingmönnum til muna, án þess að þing eða þjóð missti nokkurs við það. Skal ekki með þessari fullyrð- ingu kastað neinni rýrð á Alþingi eða þingmenn. Sá ofvöxtur, sem verið hefir í þessari stofnum undanfarna áratugi, er .aðeins einn hluti þeirrar pólitísku meinsemdar, sem nú þjáir þjóðina og hefur náð að þróast í skjóli flokkshyggjunnar og flokks- ræðisins. Fækkun. kjördæma og þingmanna yrði því einn liður í þeirri baráttu, sem þarf að hefjast til þess að bæta stjórnarfarið í landinu, sem er væg- ast sagt alvarlega rotið. Fækkun þingmanna er auðvitað hægt að framkvæma á ýmsan hátt, en hér skal aðeins minnzt á þrjár leiðir: 1. Að gera landið eitt kjördæmi, þar sem allir þingmenn væru kosnir hlutfallskosningu. " 2. Að skipta landinu í kjördæmi eftir fjórðungum og hafa Reykjavík sérstakt kjördæmi. Yrðu þá kjördæmin 5. 3. Að skipta landinu utan Reykja- víkur í 18—20 einmenningskjör- dæmi. Fleiri leiðir má vitanlega finna, og ber að velja þá, sem þar um dóm- bærir menn telja bezta. Grein þessi er ekki rituð með það fyrir augum að gera neinar ákveðn- ar tillögur um kjördæmabreytingu og fækkun þingmanna. Tilgangur henn- ar á aðeins að vera sá, að vekja menn til umhugsunar um þetta mál og leiða rök að því, að vöxtur sá, sem verið hefir í Alþingi á undanförnum ára- tugum, er ekki heilbrigður, heldur of- vöxtur, sem bæði er óhollur stofnun- inni og þjóðfélaginu, og í ósamræmi við stærð þjóðarinnar. Það er eins með þingið og þjóð- félagsheildina. Það er ekki hægt að meta afköst þess og árangur eftir mannfjölda, heldur mannkostum. Það á því að vera stefna okkar í fram- tíðinni að hafa fámennt þing, en vel skipað, og sé stærð þess ákveðin með hag þjóðarinnar fyrir augum, en ekki flokkanna, eins og verið hefir til þessa.

x

Straumhvörf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.