Straumhvörf - 15.03.1943, Síða 18

Straumhvörf - 15.03.1943, Síða 18
48 STRAUMHV ÖRF stað handaflsins, en því miður vant- ar enn mikið á, að bændur eigi nóg af búvélum og einnig, að þeir geti haft þeirra svo góð not sem skyldi. Þrátt fyrir þetta hefir þó þessi breyt- ing haft það í för með sér, að nú af- kastar hver maður, sem vinnur land- búnaðarstörf, jafnmiklu og tveir til þrír gerðu áður, þótt hann vinni skemmri tíma á dag. Þessi munur kemur þó enn betur í ljós, ef við ber- um búreikninga frá þeim búum, sem nota vélar, saman við búreikninga þeirra búa, sem engar hafa. T. d. munu sumir bændur eyða allt að 10 vinnustundum að meðaltali við að framleiða einn heyhest, þar sem þeir, er betur eru settir, vinna sama verk á tveimur og hálfum tíma. Úr þessu verður að bæta, og er það jafnt í þágu neytenda sem bænda, að það sé gert og það sem fyrst. Þá má einnig nefna, að víða er ræktuninni ábótavant, og ræktaða landið gefur þess vegna ekki þann af- rakstur, sem vænta mætti. Sums stað- ar er áburðarskorti um að kenna. T. d. ber mjög á því, að bændur dreifi áburðarmagni sínu á of stór svæði, og fá þeir því oft allt að helmingi minni uppskeru af hverri flatarein- ingu en ella. Hins vegar verður vinnukostnaðurinn með þessu móti allt að helmingi meiri en þörf er á. Öll vinnutækni við landbúnaðar- störf hér á landi er mjög í molum. Þetta er öllum, sem unnið hafa að slíkum störfum hjá öðrum þjóðum, mjög vel ljóst. Hjá frændum okkar á Norðurlöndum vinna ungir menn sem lærlingar fyrir litlu kaupi við landbúnaðarstörf á betri búum, svo árum skiptir, áður en þeir eru teknir sem fullgildir menn til þeirra starfa. Hér þykist hvaða liðleskja sem er eiga heimtingu á fullu kaupi, þó að hún hafi aldrei unnið slík verk eða yfirleitt nokkur ærleg störf, ef hún einungis hangir við verkið einhvern ákveðinn tíma. Af þessu hefir skap- azt sá hugsunarháttur hjá mörgum, að allir geti búið, og a$ það sé eitt- hvert auðveldasta starf, sem menn geti tekizt á hendur. En í rauninni er þessu svo farið, að fáar stöður í þjóð- félagi okkar eru vandasamari og krefjast meiri alhliða þekkingar en bóndastaðan, ef hún á að vera vel rækt. Hitt er annað mál, að lengi má hokra þannig, að menn hafi eitthvað að éta í góðærum, ef ekki eru gerðar kröfur til annars, en slíkt er enginn búskapur. Þá vil ég aðeins nefna búnaðar- fræðsluna við bændaskólana. Þar var vel af stað farið og merkinu lyft hátt, en því miður hefir því ekki verið haldið eins hátt á lofti siðan. Sérstak- lega harma ég það, að vinnukennsla var lögð niður við bændaskólana. Þó að hún hafi nú verið tekin upp að nokkru aftur, vantar enn mikið á, að hún sé svo fullkomin, sem æski- legt væri. Þá má einnig geta þess, að kynbæt- ur búfjár eru mjög skammt á veg komnar hjá okkur, og er þar mikið verkefni óunnið, sem gæti lækkað framleiðslukostnaðinn mikið. Sama máli gegnir um heildarskipulagningu landbúnaðarmálanna. í því efni er flest ógert ennþá, en þar sem því

x

Straumhvörf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.