Straumhvörf - 15.03.1943, Side 20

Straumhvörf - 15.03.1943, Side 20
50 STRAUMHVÖRF HERMANN JÓNSSON: Skyldurnar við lýðræðið Flestir íslendingar hafa vafalaust gert sér grein fyrir því, að stjórnar- form lýðræðisins veitir þegnum sín- um meira frelsi og meiri réttindi en önnur stjórnarform. Á ég þar fyrst og fremst við kosningarréttinn, sem veitir einstaklingunum aðstöðu til á- hrifa á löggjöf þjóðfélagsins og stjórn. Eðlileg afleiðing hans ætti að vera velmegun, farsæld og frelsi, ef þegnarnir sýndu þann vilja og þroska, sem til þarf. Menn hafa því viljað vera vel á verði, þegar einræðisstefn- ur hafa skotið hér upp kollinum. Flokkur þjóðernissinna eftir þýzkri fyrirmynd var stofnaður hér fyrir nokkrum árum, en naut aldrei fylgis og lognaðist út af. Kommúnistaflokk- ur var hér starfandi alllengi, en hann aflaði sér ekki teljandi fylgis, fyr enn hann hafði skipt um nafn og tek- ið upp lýðræðissinnaða stefnuskrá. Þrátt fyrir þessar staðreyndir virðist hafa ríkt töluverður ótti við þessa flokka, enda hafa forráðamenn ann- arra flokka gert allt, sem í þeirra valdi stóð, til að skapa hann og auka. Gekk þetta jafnvel svo langt, að á Alþingi var rætt um frumvarp til laga, sem áttu að verja lýðræðið gegn þeirri hættu, sem stafaði af slíkum flokkum, og til þess átti auk þess að beita aðferðum, sem voru vægast sagt mjög ólýðræðislegar. Allur þessi ótti er frá mínu sjónarmiði gjörsam- lega ástæðulaus. Lýðræðinu stafar engin hætta utan frá. Sú eina hætta, sem því er bi'iin, kemur innan að, og mun ég rökstyðja það nánar. Flestir, ef ekki allir, munu vera sammála um, að stjórnarfar okkar hefur á síðustu tímum lent í allmikl- um ógöngum og endað með alvarlegu áfalli í lok síðastliðins árs, þegar Alþingi gafst upp við að mynda stjórn. Forystumenn flokkanna reyna með miklum bægslagangi að skella skuldinni hver á annan, og má vart á milli sjá, hver bezt dugir og hæst lætur. En einnig aðrir hafa talsvert rætt og ritað um þessi mál, en oftast á þá lund, að bent er á glundroðann og spillinguna í stjórnarfarinu, án þess að kryfja orsakirnar til mergj- ar. Virðist svo, sem ætlazt sé til, að þær ályktanir séu dregnar, ef því er ekki beinlínis haldið fram, að lýðræð- ið hafi siglt í strand, og einræðið hljóti að taka við, hvort sem við ósk- um þess eða ekki. Spillingin í þjóðfé- laginu er ekki afleiðing utan að kom- andi afla, því eins og áður var getið hafa einræðisflokkar aldrei náð fót- festu í íslenzkum jarðvegi, og ekki er vitað, að nokkurt erlent ríki láti sig það máli skipta, hvaða stjórnarform við höfum. Sú augljósa hætta, sem lýðræðinu stafar af spillingunni, kem-

x

Straumhvörf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.