Fréttablaðið - 07.02.2013, Síða 2
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VINNUMÁL Hjúkrunarfræðingar
segja boðaða launahækkun sam-
kvæmt nýjum stofnanasamningi
Landspítalans nema 65 króna
hækkun á tímakaupi.
Þannig segir Birgir Örn Ólafs-
son skurðhjúkrunarfræðingur
tómt mál að tala um að hækkun
á mánuði nemi að jafnaði 25 þús-
und krónum. „Það er í raun ekki
rétt tala því eftir að búið er að
taka launatengd gjöld frá þeim
370 milljónum sem ríkið veitir í
samninginn eru ekki nema 296
milljónir eftir, eða 18.200 krónur
að meðaltali.“ Af þeirri fjárhæð sé
síðan greidd staðgreiðsla aftur til
ríkisins þannig að eftir standi um
10.900 krónur. „Það gera 520 krón-
ur á dag eða sem nemur 65 krónum
á tímann.“
Birgir segir ljóst að bjóði ríkið
stéttinni, sem hafi langt nám að
baki og hafi lengi setið eftir í
kjaramálum, ekki betur verði tölu-
verð fækkun á meðal hjúkrunar-
fræðinga á Landspítalanum um
mánaðamótin.
Erna Einarsdóttir, framkvæmda-
stjóri mannauðssviðs Landspítal-
ans og formaður kjara- og launa-
nefndar spítalans, áréttar að
samkvæmt nýjum stofnanasamn-
ingi hækki laun hjúkrunarfræðinga
mismikið og ráðist hækkunin bæði
af menntun og vinnufyrirkomulagi.
„Sumir fá meira og aðrir minna, en
við höfum reiknað það þannig að
laun hjúkrunarfræðinga hækki að
meðaltali um 4,75 prósent.“ - óká
Segja tímakaup hjúkrunarfræðinga ekki hækka um nema 65 krónur:
Fækkun bjóði ríkið ekki betur
FUNDUR Hjúkrunarfræðingar höfnuðu á mánudag tillögu að nýjum stofnana-
samningi við LSH. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞJÓNUSTA Íslensk hótel leigja sum
hver út herbergi frá morgni fram
á síðdegi eins og færst hefur í vöxt
á hótelum víða um heim. Þessi
kostur er til dæmis í boði hér á
landi á Radisson Blu Hótel Sögu,
en starfsmaður þar segir ekki
mikið sótt í slíkt.
Á vef BBC er fjallað um þetta
fyrirbæri og þess getið að dags-
útleiga á herbergjum hafi verið
litin hornauga og þeir sem sækt-
ust eftir slíku taldir standa í ein-
hverju lítt siðsamlegu. Flugvalla-
hótel hafi þó verið undantekning
lengi vel, en í dag bjóði hins vegar
mörg hótel og jafnvel frægar
alþjóðlegar keðjur upp á slíkt.
Þessi þjónusta sé oft ekki til tekin
á vefsíðum hótelanna en standi til
boða ef hringt sé fyrir fram og
beðið um hana.
Útleigutíminn er milli átta á
morgnana og sjö á kvöldin, en
með því að leigja herbergin út á
þessum tíma geta hótelin feng-
ið tekjur af þeim eftir að nætur-
gestir eru farnir og áður en næstu
gestir koma um kvöldið.
Þeir sem helst nýta sér þessa
þjónustu eru, að sögn BBC, ferða-
menn sem eru að bíða eftir kvöld-
flugi eða þurfa hvíld milli funda,
en þetta má einnig nýta sér til að
geyma farangur.
Meðal þeirra alþjóðlegu keðja
sem minnst er á í frétt BBC eru
tvær með starfsemi hér á landi;
Hilton og Radisson.
Hilton á Suðurlandsbraut býður
ekki upp á þennan valkost, að sögn
starfsmanns í bókunardeild, en á
Radisson Blu á Hótel Sögu stendur
slíkt til boða.
„Við bjóðum upp á slíkt og
verðið er um helmingurinn af
verðinu fyrir venjulega nætur-
gistingu,“ segir Gunnar Guð-
mundsson, starfs maður í
gestamóttöku, í samtali við
Fréttablaðið.
Hann segir ekki mikið sótt í
þessa þjónustu en þá sé það yfir-
leitt fólk sem hafi misst af flugi
og sé að bíða eftir næstu vél.
Spurður hvort fólki þyki
feimnis mál að kaupa herbergi til
svo skamms tíma segir Gunnar
að sumir séu ekki lausir við það.
„Fólk skýrir oft mjög vel út
hvers vegna það þurfi slíkt, en við
erum hins vegar ekkert að spá í
það, heldur afgreiðum bara við-
skiptavininn án athugasemda.“
thorgils@frettabladid.is
Feimnismál að biðja
um herbergi dagpart
Færst hefur í aukana að alþjóðlegar hótelkeðjur bjóði upp á herbergi sem leigð eru
út til skamms tíma að degi til. Þess háttar gistikostur stendur til boða á Radisson
Blu á Hótel Sögu. Viðskiptavinum finnst oft feimnismál að biðja um slíkt.
AÐ DEGI TIL Hótel Saga býður upp á herbergi til leigu að degi til, en sá valkostur
hefur notið vinsælda hjá stórum alþjóðlegum hótelkeðjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fólk skýrir oft mjög
vel út hvers vegna það
þurfi slíkt, en við erum
hins vegar ekkert að spá í
það.
Gunnar Guðmundsson
starfsmaður gestamóttöku
á Radisson Blu
HAPPDRÆTTI Íslenskur Víkinga-
lottóspilari datt heldur betur í
lukkupottinn í gær, en hann var
einn með allar tölurnar réttar og
hlýtur því allan pottinn, sem nam
tæplega 127 milljónum króna.
Í tilkynningu frá Íslenskri
getspá segir að um langstærsta
vinning í sögu félagsins sé að
ræða. Þetta er í 22. skiptið sem
Íslendingur vinnur fyrsta vinn-
inginn í Víkingalottóinu.
Miðinn góði var keyptur á
heimasíðu Getspár, lotto.is.
Sá stærsti í sögunni:
Heppinn spilari
fær 127 milljónir
STJÓRNMÁL Árni Páll Árnason,
nýkjörinn formaður Sam-
fylkingar innar, ætlar ekki að
leggja til breytingar á ráð-
herraliði flokksins fram að
kosningum. Hann mun því
áfram vera utan ríkisstjórnar.
Árni segist hafa haft tvennt að
leiðarljósi við þessa ákvörðun:
„Hagsmuni þjóðarinnar af
stjórnfestu og þá nauðsyn að
finna fyrirheitinu um ný vinnu-
brögð og hreinskiptin stjórnmál
farveg í verkum Samfylkingar-
innar við landsstjórnina.“
Hann muni engu að síður vera
pólitískur talsmaður flokksins
og leiða stefnumörkun hans.
- sh
Leiðir stefnumörkun:
Árni Páll ekki í
ráðherrastól
GRÆNLAND Kuupik Kleist, for-
maður grænlensku heima-
stjórnarinnar, er ásamt fleiri
grænlenskum stjórnmálamönnum
og embættismönnum sakaður um
að blanda saman stjórnmálum og
persónulegum hagsmunum vegna
tengsla sinna við námu iðnaðinn.
Kuupik Kleist og Ove Karl
Berthelsen auðlindaráðherra
eru stofnendur námufyrirtækis-
ins GreenGems sem þeir stjórn-
uðu til 2009, samkvæmt frétt á
vef Politiken. Nú eru eiginkonur
þeirra stjórnendur fyrirtækisins.
Berthelsen er einn stofnenda
flutningafyrirtækis sem mun
hagnast verulega ef fyrirhugað
álver verður reist. - ibs
Námuiðnaður á Grænlandi:
Saka ráðherra
um spillingu
SPURNING DAGSINS
Dóri, mun „Sandman“ ekki
bara svæfa Gunnar Nelson?
„Nei, ætli Gunni muni ekki syngja
Bí bí og blaka fyrir hann þegar upp
er staðið.“
Dóri DNA er sérfræðingur í MMA-bardögum.
Hann spáir Gunnari sigri gegn Jorge „Sand-
man“ Santiago. Í enskumælandi löndum er
Óli lokbrá kallaður „Sandman“.
NOREGUR Hæstiréttur í Noregi vís-
aði skattsvikamáli gegn listamann-
inum Odd Nerdrum aftur til milli-
dómstigs í gær, en hann var í fyrra
dæmdur í tæplega þriggja ára fang-
elsi fyrir að hafa ekki staðið skil á
skattgreiðslum af sölu 32 málverka
upp á fjórtán milljónir norskra
króna, sem jafngildir rúmum 300
milljónum íslenskra, á árunum 1998
til 2002.
Hæstiréttur fann hins vegar galla
á málsmeðferð sem þóttu þess eðlis
að málið þyrfti að taka aftur fyrir
í heild sinni á neðri dómstigum.
Málið er talið áfangasigur fyrir
Nerdrum, sem var veittur íslenskur
ríkisborgararéttur árið 2003. Hann
segir í samtali við norska fjölmiðla
að norska ríkið hafi ofsótt hann allt
síðan hann kom fram á listasviðið
á sínum tíma. Þetta mál sé einung-
is síðasta holdtekja þess. Það hefur
staðið yfir frá árinu 2002, eftir að
blaðið Dagens Næringsliv vakti
athygli á því, en formleg rannsókn
hófst eftir að listamaðurinn flutti til
Íslands. - þj
Skattsvikamáli gegn norsk-íslenskum listmálara vísað til neðri dómstiga:
Áfangasigur fyrir Nerdrum
SEGIST OFSÓTTUR Odd Nerdrum sakar
norska ríkið um að ofsækja sig. Yfir-
standandi skattamál sýni það gjörla.
SKEMMDIR Hús í þorpinu Venga í Santa Cruz skemmdust mikið þegar flóðbylgjan
reið yfir. NORDICPHOTOS/AFP
ÁSTRALÍA, AP Margra er saknað og fjöldi heimila eyðilagðist eftir að
öflugur jarðskjálfti olli flóðbylgju við strendur Salómonseyja í gær.
Jarðskjálftinn mældist átta stig á Richter-kvarða en bylgjur skullu
á vestanverða eyjuna Santa Cruz. Fjögur þorp urðu fyrir flóðbylgj-
unni sem eyðilagði um 80 heimili.
Fimm höfðu fundist látnir í gær en talan kemur eflaust til með að
hækka, að sögn yfirvalda. Önnur svæði í kring eru talin hafa sloppið
við meiri háttar skemmdir. - mlæ
Jarðskjálfti um átta stig á Richter við Salómonseyjar:
Margra er saknað eftir flóðbylgju