Fréttablaðið - 07.02.2013, Page 30

Fréttablaðið - 07.02.2013, Page 30
FÓLK|TÍSKA Blómatískan verður allsráðandi næstu mánuði og ber litskrúðugt úrvalið í íslenskum verslunum þess merki. Blómum skreyttar buxur, blómajakkar og blómakjólar eru á hverju strái. Því ýktara sem munstrið er því betra, virðist vera. Tískan er ekki gripin úr lausu lofti en hún hefur víða verið að ryðja sér til rúms að undanförnu. Bresk-/tyrkneskættaði hönn- uðurinn Erdem Moraliogu heldur henni sérstaklega á lofti og hefur hver stjarnan á fætur annarri skartað blómakjól frá honum á rauða dreglinum síðustu vikur. Má þar nefna Siennu Miller, Marion Cotillard, Gemmu Arterton, Nicole Kidman og Anne Hathaway, en hönnuðurinn hefur þrátt fyrir ungan aldur skipað sér í sveit með tískuhönnuðum á borð við Burberry, Christopher Baily, Marc Jacobs, og Miuccia Prada. Sjálfur segist hann ekki fylgja tískustraumum. Það sem vakir fyrir honum er eingöngu að láta konur skarta sínu fegursta. „Ég horfi á útlínurnar og að kon- an samsvari sér vel. Litadýrð, glæsileiki og ljúft og áreynslulaust yfirbragð er það sem vakir fyrir mér.“ BLÓMATÍSKAN ALLSRÁÐANDI SKARTA SÍNU FEGURSTA Það sem vakir helst fyrir tískuhönnuðinum Erdem Moraliogu er að konur skarti sínu fegursta og að hans mati eru það blómin sem fara þeim best. Hann er sá hönnuður sem notar blómamunstur hvað mest um þessar mundir og hefur hver stórstjarnan á fætur annarri skartað blóma- kjól frá honum síðustu vikur. Nýr ilmur frá Andreu Maack verður kynntur í dag klukkan fimm í Sparki að Klapparstíg 33. Ilmurinn ber nafnið COAL og er innblástur- inn sóttur til kolateikninga Andreu, tilfinn- ingarinnar að vinna með kol, lyktarinnar og hljóðsins sem þau gefa frá sér. COAL er sjötti ilmurinn sem Andrea sendir frá sér en áður hafa komið út ilmirnir SMART, SHARP, CRAFT, SILK og DARK. Allir eiga ilmirnir uppruna sinn í mynd- listarverkum Andreu og í Sparki verða einnig til sýnis og sölu þrjú ljósmynda- verk hennar sem unnin voru út frá kolateikningum í samvinnu við Vigfús Birgisson. COAL fæst nú í verslunum víðs vegar um heiminn, meðal annars í Harvey Nichols í London, Henri Bendel í New York, Printemps í París og Storm í Kaup- mannahöfn. Sjá www.sparkdesignspace.com. ■ rat NÝR ILMUR ANDREU Í SPARKI COAL Andrea Maack kynnir nýjan ilm í Sparki í dag. MYND/ARNÞÓR ÞVÍ MEIRA ÞVÍ BETRA Leikkonan Gemma Arterton klæddist kjól frá Erdem á frumsýningu Hansel & Gretel. KVENLEGT Stjörnurnar hafa margar hverjar fallið fyrir Erdem en hann leggur upp með klæðileg snið. Nicole Kidman er ein þeirra. FRÁ TOPPI TIL TÁAR Litadýrð vakir fyrir Erdem. Marion Cotillard á BAFTA-verð- launahátíðinni í LA í skósíðum blómakjól. ÆPANDI Leikkonan Anne Hath- away aðhyll- ist blóma- tískuna. BLÓMA- RÓS Sienna Miller á Golden Globe-verð- laununum 13. janúar síðastliðinn. N O RD IC PH O TO S/ G ET T YEnskuskóli Erlu Ara - enskafyriralla.is Enska í Englandi fyrir 13-16 ára Tvær vikur i Kent School of English Íslenskir hópstjórar með í för allan tímann. Skráning í síma 8917576 og erlaara@gmail.com Tæplega 1000 nemendur hafa komið með frá árinu 2000 Nánari upplýsingar á enskafyriralla.is Verð: ca 230 þúsund; allt innifalið. myndir á facebook Facebook, vertu vinur facebook.com/enskafyriralla Ferðaskipuleggjandi Belladonna á Facebook Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Nýjar vörur í hverri viku Vor 2013 SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR! Skipholti 29b • S. 551 0770            FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.