Fréttablaðið - 07.02.2013, Síða 46

Fréttablaðið - 07.02.2013, Síða 46
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 „Ég hef reynt að halda leikskólanum á lofti í ýmsum miðlum gegnum tíðina, til dæmis í gegnum blogg og fésbókarsíður. Síðan Laupurinn er tileinkuð leikskólanum og ég var að stofna síðu út frá Laupnum um þróunarverkefni innan leikskólans,“ segir Kristín Dýrfjörð nýkomin með viður- kenningarskjal í hendur fyrir umfjöllun um leikskólastarf. Hún bauð Sturlu Þór Traustasyni, fimm ára sonarsyni sínum, með á athöfnina enda kveðst hún hafa bloggað mikið um hans þroskaskref og viðfangsefni, séð með augum leikskóla- kennarans. Það er fóstrulykt Kristín byrjaði að vinna á leikskóla árið 1978 á Landakoti og rifjar upp er hún fór út á róló við Vesturgötu með börnunum að horfa á Brúðubílinn og hitti þar starfsfólk frá fleiri leikskólum. „Bryndís Zoëga, for- stöðukona á Drafnarborg, ein af eldri leik- skólakennurum landsins og þekkt persóna, settist við hlið mér á sandkassabrún og við röbbuðum saman um stund. Þar kom að hún spurði: „Ertu fóstra?“ „Nei, nei,“ svar- aði ég, sannleikanum samkvæmt. „Þú átt eftir að verða fóstra, það er fóstrulykt af þér,“ sagði sú gamla og svo var hún rokin.“ Eftir stúdentspróf kveðst Kristín hafa farið í Fóstruskólann, þá komin með tvö börn. „Ég horfði á ítalskan framhaldsþátt í sjónvarpinu þegar ég var um fermingu sem hafði sterk áhrif á mig. Hún fjallaði um kennara í fátækrahverfi í Róm sem fór með krakkana út fyrir skólastofuna og tengdi samfélagið og skólann saman. Ég á bókina Dagbók kennara sem myndin er byggð á. Þessi mynd hafði sterk áhrif á mig og varð til þess að ég ákvað að þetta vildi ég leggja fyrir mig. Mér fannst að hver dagur í leikskóla væri ný áskorun.“ Leikskólinn alltaf staðið mér nærri Sem útskrifuð fóstra fór Kristín að vinna á leikskólanum Hlíðarenda við Laugarás- veg. Í næsta húsi var vöggustofa á vegum Thorvaldsen. Eftir tvö ár sótti hún um leikskólastöðu innan Thorvaldsen og fékk hana og varð strax þátttakandi í félags- málum stéttarinnar, meðal annars fyrsti formaður Reykjavíkurdeildar. „Ég fékk strax áhuga á sögu leikskólans, málefni hans og leikskólabarna hafa alltaf staðið mér nærri,“ segir hún. Kristín var leikskólastjóri í tíu ár en þá fór hún að kenna við Háskólann á Akur- eyri og er þar dósent. „Ég kenni verðandi leikskólakennurum og í háskólanum fæ ég tækifæri á að skoða hluti í nýju ljósi, hef tök á að stofna heimasíður og ástunda rannsóknir,“ lýsir hún. En hver telur hún stærstu skrefin í framþróun leikskólans á þeim tíma sem hún hefur fylgst með honum? „Það eru nokkrar vörður á þeirri leið. Í fyrsta lagi stofnun leikskóla Sumar- gjafar. Svo þegar fyrsta uppeldisáætlunin á vegum Menntamálaráðuneytisins 1985 er gefin út sem Valborg Sigurðardóttir skóla- stjóri Fóstruskólans skrifaði. Þá fengum við okkar fyrstu aðalnámsskrá, fræðilega umgjörð um leikskólastarfið. Þá tel ég það hafa haft mikið að segja fyrir okkur leik- skólakennara að við stofnuðum okkar eigið stéttarfélag 1988. Árið 1991 voru sett lög um leikskólastigið og við lentum í því að það var bitist um okkur í ráðuneytunum. Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála ráðherra vildu bæði fá málaflokkinn. Við vildum til- heyra menntamálum og gerum það. Í lögun- um er leikskólinn skilgreindur á for sendum barnsins, ekki foreldra. Að það sé réttur barnsins að vera í leikskóla. Það hefur mér alla tíð fundist afar mikilvægt.“ Kristín segir það hafa haft mikil áhrif á starf leikskólanna þegar settur var peningur í þróunarsjóð sem styrkt hafi innra starf og fagvitund. „Góð þróunar- verkefni smita út frá sér og þessi verkefni hafa áhrif á að ýta faglegu starfi í leik- skólunum áfram.“ Vill að stolt stétt útskrifist Að lokum er Kristín spurð hvað hún sé ánægðust með af því sem hún hefur áork- að og eftir smá umhugsun nefnir hún fyrst þátt sinn í að skrifa aðalnámsskrár leik- skólanna en víkur svo talinu að kennsl- unni á Akureyri. „Ég var leikskólastjóri í stórum leikskóla 1997 þegar ég var beðin að sækja um stöðu á Akureyri. Var með skóla í uppbyggingu og gott samstarfs- fólk og sá fram á að við gætum búið til gott módel sem ég væri stolt af sem leik- skólakennari. En svo hugsaði ég: „Hvernig hef ég mest áhrif á aðstæður allra barna í íslenskum leikskólum?“ Og ákvað að það væri við nýja menntastofnun. Kannski er ég ánægðust með það skref að fara inn í háskólann og koma ástríðu minni fyrir málefnum barna og leikskóla áfram til nýrra leikskólakennara. Ég þreytist aldrei á að hvetja þá til að vera fag legir, að hlusta eftir rannsóknum og nýjum kenningum og vera alltaf tilbúnir að gera betur. Einnig að efla stolt þeirra því ég vil að það sé stolt stétt sem útskrifast.“ gun@frettabladid.is Hver dagur í leikskóla ný áskorun Dagur leikskólans var í gær. Þá veitti menntamálaráðherra í fyrsta skipti viðurkenninguna Orðsporið þeim sem hafa skarað fram úr og unnið ötullega í þágu leikskólans og leikskólabarna. Kristín Dýrfj örð, leikskólakennari og dósent, var ein þeirra sem hlutu þann heiður. KRISTÍN MEÐ SONARSONINN STURLU ÞÓR TRAUSTASON „Ég horfði á hans þroskastig öðru vísi en ég gerði með mín börn, sem dæmi var hann bara nokkurra mánaða þegar hann var búinn að uppgötva valdatækið á heimilinu, réttu fjarstýringuna,” segir hún glaðlega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 29 07 0 2/ 13 15% afsláttur gildir út febrúar Mixtúrur og Paratabs Lægra verð í Lyfju

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.